Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 33

Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 33
Kristnesi og hlýjar móttökur, allt varð þetta til að auka enn á ánægju okkar og vellíðan. Þann tíma, er við höfum dvalið hér, hafa gestgjafar okkar gert allt það, er okkur gat orðið til ánægju. Hér á íslandi virðist ekki aðeins hafa varðveizt siður forfeðranna að nefna hver annan fornafni, hin forna gest- risni virðist einnig hér í heiðri höfð. Mér er ekki unnt að telja alla þá, er á einn og annan hátt gerðu okkur dvölina ógleym- anlega, og við höfum ekki einu sinni getað þakkað þeim öllum vinsemdina, en ég vil reyna að bæta úr því nú og þakka forystu- mönnum og meðlimum S. I. B. S. móttök- urnar. I göngulagi, er finnskir æskumenn syngja, hljóðar stefið: Söngurinn lýkur upp hjörtun- um og sameinar þau. Þá list kunnu vinir okk- ar hér. A leiðinni norður hafði söngurinn í langferðavagninum fært okkur saman en við vorum of sljóir og þreyttir, til að njóta hans til fulls, en söngurinn hljóðnaði ekki þótt norður væri komið. Hljóðfallið í göngulagi S. í. B. S. var viðfelldið, að lagið gat eins vel hafa orðið til í heimalöndum okkar sjálfra. Fallegu, en þunglyndislegu þjóðlögin snertu viðkvæma strengi í hugum okkar, einkum þó vögguvísa, gamalt íslenzkt al- þýðulag, sem sungið var yfir þreyttum ferða- löngum á leiðinni frá Mývatni til Akureyr- ar. Síðan hefur lagið hljómað fyrir eyrum mér og mun hljóma lengi enn. Það fór svo, að þrátt fyrir höf og hauður, sem aðskildu lönd okkar fannst okkur við vera heima meðal vina og kunningja. En það var ekki aðeins hugarfar okkar sjálfra, sem hafði tekið breytingum, heldur einnig veðurfarið og við það hafði náttúran skipt um svip. Við höfum séð ýmsa fegurstu staði landsins, oftast í sól og hlýju sumars- ins. Mývatnssveitin, Þingvellir, Geysir, Gull- foss og Goðafoss, ásamt ótal fleiri fögrum stöðum, standa okkur skýrt fyrir hugskots- sjónum. Vatnsaflsstöðvar syðra og nyrðra, fullbyggðar og í byggingu, vinnuvélar á bóndabæjum og þjóðvegum, stór fullræktuð landflæmi og búsmalinn upp um heiðar og fjöll, bera því glöggt vitni, að hér býr þraut- Rf.vkjalundur seig þjóð, iðin og vinnusöm, og að henni hefur tekizt að gera sér náttúruna undir- gefna. Náttúru, sem okkur virtist í fyrstu hrjóstrug og ófrjó. Talandi tákn þeirra erfiðleika, sem lands- menn hafa yfirunnið, eru brýrnar 106 að tölu milli Akureyrar og Reykjavíkur, auk allra ræsanna. Þeir hafa þurft að brjóta veg yfir svo miklar torfærur, að með því nær tveggja kílómetra millibili hefur orðið að byggja brú, eða veita lækjasprænu gegnum veginn. Slíkir erfiðleikar við vegalagnir munu víðast óþekktir og koma hvergi fyrir í Finnlandi. Við komumst að raun um, að þjóðin hef- ur varðveitt forna lýðræðishugsjón sína gegn- um aldirnar, þrátt fyrir þrengingar. Heilsu- gæzlan og tryggingarlöggjöfin eru á háu stigi á nútíma mælikvarða. A því sviði munu fáar þjóðir jafnlangt komnar, flestar skemur. Það, sem einkum vakti áhuga minn fyrir þeim málum á Islandi, var Reykjalundur og starf S. í. B. S. Starfsemi sambandsins er þegar svo kunn, að um það læt ég nægja örfá orð: S. í. B. S. og Reykjalundur eru glæsilegt tákn þess, hvað samstarf og samhugur heill- ar þjóðar fá áorkað í menningarmálum. ☆ Þá mun ég að lokum lýsa því hvernig Is- land kemur mér fyrir sjónir. Náttúrufeg- urðin er mikil og sérkennileg. Hér ber margt fyrir augu, sem er sjaldséð og ógleym- anlegt. En ég varð ekki fyrir mestum áhrif- um af náttúrunni, heldur íbúunum og því þjóðfélagi, er þeir hafa skapað. Islendingarnir og þjóðfélag þeirra, hreif mig mest þann stutta tíma, er ég dvaldi hér. ★ Stein Yik, skólastjóri: Þing S. í. B. S. af sjónarhóli Norðmanns. Stjórnarmeðlimum D. N. T. C. gafst kostur á að vera viðstaddir þinghald S. I. B. S. í sum- ar. Okkur virtist áberandi hversu ánægðir þátttakendurnir voru yfir að mögulegt hafði reynzt að halda þingið norðanlands. Ég hafði verið svo lánsamur að fá tækifæri 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.