Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 34
til að koma til landsins einu sinni áður, og
hafði því nokkra hugmynd um hvað í vænd-
um var og þau áhrif, sem það hefur á útlend-
ing að koma til Islands í fyrsta sinn.
Stein Vik.
Við erum þakklátir S. í. B. S., Berklavörn
á Akureyri og Sjálfsvörn í Kristneshæli fyrir
að hafa fengið að sitja þingið, og við erum
hrifnir af öllum undirbúningnum. Við erum
því vanastir, á meðan þinghald stendur yfir,
að enginn hafi tíma til að sinna gestum, en
fundum greinilega þessa dásamlegu daga og
hrífandi björtu nætur, að við vorum gestir,
ekki aðeins samtakanna, heldur hvers manns
innan S. í. B. S.
Undirbúningur þingsins og fyrirkomulag,
sem varð til þess, að allt gekk eins og bezt
varð á kosið, er hrósvert. Ég vil einkum nefna
forseta þingsins, Steindór Steindórsson, sem
stjórnaði því, af röggsemi og festu, svo að
því varð lokið á tveim dögum í stað þriggja,
sem ákveðnir höfðu verið í dagskrá.
Umgjörð þingsins, Kristneshælið, fagur-
lega í sveit sett, með blaktandi fánum Norð-
urlanda í snörpum vindi, tignarleg, snæ-
krýnd háfjöllin og gróðurrík jörðin var allt
ævintýri líkast og ógleymanlegt.
Við höfum séð á þessu þingi, hvernig af-
greiða má mál hratt og vel, og sá háttur, er
hafður var á, að láta fulltrúana frá hinum
hælunum dvelja í Kristnesi, fannst okkur
mjög heppilegur og eftirbreytni verður.
32
Við höfðum ána'gju af að kynnast þeím
viðfangsefnum, er bíða úrlausnar og þótt
málið yrði okkur þrándur í götu, var hvar-
vetna hægt að fá þá hjálp og skýringar, sem
þörf var á.
Þing, sem þetta, eru oft sannkallaðir gos-
hverir ósamlyndis og reynist stjórnunum
oft erfitt að komast klakklaust í gegnum
slíkan hreinsunareld, en að þessu sinni varð
ég ekki var við neina verulega gagnrýni,
hvorki er skýrslur voru ræddar, reikningar
eða tillögur um ný útgjöld. Þetta er mikil
viðurkenning á störfum stjórnarinnar og yfir-
manna þeirra fyrirtækja, er S. I. B. S. rek-
ur, ekki hvað sízt er við bætast öll þau lofs-
yrði, er þeir hlutu, ásamt óskum um áfram-
haldandi velgengni.
S. í. B. S. er í stöðugum vexti. Okkur
voru áður kunn störf sambandsins að Reykja-
lundi, og sá árangur, er þar hefur náðst, enda
er sá staður til fyrirmyndar stórum hluta
heims. En Vöruhappdrættið vakti nú eink-
um athygli okkar, og okkur varð ljóst, að hér
fá berklasjúklingar betra tækifæri til sjálfs-
bjargar, en víðast annarsstaðar. — Berkla-
sjúklingar innan S. I. B. S. virðast einnig
fullkomlega sjálfbjarga, en það er önnur
saga. —
Við, fulltrúar hinna Norðurlandanna, ber-
um virðingu fyrir þeim mikla árangri, sem
Smiðisgripir unuir i skóla T. II. O.
(Samband norskra berklasjúklinga).
Reykjalundur