Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 39

Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 39
Brostnir hlekkir Jónatan Sveinbjörnsson. F. 22. ágúst 1920. D. 19. nóv. 1951. Jónatan var fæddur að Eiði í Garði. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Ivarsson og Halldóra Sigvaldadóttir kona hans. Hann dvaldi í heimahúsum til fimm ára aldurs, en þá tóku systkinin Þorgerður og Þorsteinn Eggertsson í Vesturkotí í Leiru, hann í fóst- ur, og ólst hann þar upp. Jónatan byrjaði snemma að stunda sjó og Jónatan Sveinbjörnsson. hafði það að aðalstarfi, þar til hann veiktist af berklum árið 1945. Hann var lagður inn í Vífilstaðahæli 26. ágúst það ár og dvaldi þar óslitið til dauðadags. Framan af dvöl sinni þar, mun Jónatan oft hafa verið þungt haldinn, en er ég kynntist honum í ársbyrj- un 1947, var hann allhress orðinn og virtist á góðum batavegi. Hann tók virkan þátt í félagslífi berklasjúklinga, var í stjórn félags- Reykjalundur ins Sjálfsvarnar á Vífilsstöðum, sat sem full- trúi þess félags á 7. þingi S. í. B. S. árið 1950, var í skemmtinefnd sjúklinga og vann í bókasafni hælisins. Þótti vel skipað sæti, þar sem Jónatan var. Hann var með afbrigð- um ötull og samvizkusamur við allt, er hann tókst á hendur, og greiðvikni hans var við- brugðið. í vinahópi var hann hrókur alls fagnaðar. Hann var hreinskilinn og stund- um opinskár, en fastur fyrir ef því var að skipta og lét þá ógjarnan hlut sinn. Jónatan var gervilegur maður að vallar- sýn og framkoma hans öll vakti traust þeirra, er kynntust honum. Við fráfall hans eru sam- tök berklasjúklinga ötulum liðsmanni fátæk- ari, þjóðfélagið hefur misst nýtan þegn og vinir og ættingjar kæran ástvin. Ó. J. Halldóra Sigríður Halldórsdóttir. Þegar okkur berst lát góðs vinar, verðum við hljóð, og mitt í önnum dagsins stöldrum við við og sendum þessum vini okkar hug- heilar kveðjur og biðjum guð að fylgja hon- um á þessari nýju vegferð hans. Ég veit, að margir hafa sent Sigríði Hall- dórsdóttur hlýjar hugarkveðjur, er hún kvaddi þennan heim, því að hún átti fjöl- marga vini, ekki sízt innan samtaka S. I. B. S., þar sem hún hefur starfað af frábærum dugnaði og ötulleik um margra ára skeið. Halldóra Sigríður Halldórsdóttir er fædd 14. marz 1908 að Sigtúnum í Eyjafirði, dóttir þeirra Marselínu Jónasdóttur frá Bringu og Halldórs Benjamínssonar frá Hóli í Staðar- byggð. Árið 1937 giftist hún Völundi Kristj- ánssyni vélstjóra, og var heimih þeirra á Akureyri hin síðari ár. 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.