Reykjalundur - 01.06.1952, Síða 40

Reykjalundur - 01.06.1952, Síða 40
Árið 1936 veiktist Sigríður af berklum og dvaldist þá nokkra mánuði í Kristneshæli. Eftir að hún fluttist til Akureyrar með manni sínum, tók hún virkan þátt í félagsstarfi Berklavarnar og var lengst af í stjórn félags- ins, þar af tvö síðustu árin gjaldkeri þess. Sigríður lézt 28. febrúar s. 1. Hennar er sárt saknað af eiginmanni og öðrum ástvinum. Við vinir hennar og félagar í S. í. B. S. söknum hennar líka og vitum, að með henni hafa samtökin misst einn af sínum áhuga- sömu og fórnfúsu starfsmönnuln, því að hún var alltaf reiðubúin að vinna að hugsjóna- málum S. í. B. S., og sparaði þar hvorki tíma né fyrirhöfn. Og eftir að hún kenndi þess sjúkleika, er síðar dró hana til dauða, Halldóra Sigriður Halldórsdótlir. var það henni áhyggjuefni að geta ekki beitt kröftum sínum jafnmikið og fyrr í þágu samtakanna. Þau félagssamtök, sem eiga innan sinna vébanda marga liðsmenn, sem líkjast Sigríði, eru á framtíðarvegi. ★ Sigríður, þú starfaðir af heilum hug í þágu hinna veiku og' smáu. Þér mun verða laun- að. Guð blessi þig. I. H. 38 Kjartan Guðbrandsson. F. 9. júní 1919. D. 6. febr. 1952. Fátt er jafn furðulegt í lífi og sögu íslenzku þjóðarinnar sem hin hraða þróun frá lífs- háttum miðalda til nútíma þjóðfélags. Þessi Kjartan Guðbrandsson. þróun, sem tekur til flestra þátta þjóðlífs- ins, gerist raunverulega á hálfri öld. Slík þróun var því aðeins hugsanleg, að þjóðin eignaðist menn, er skildu til fullnustu fram- vindu tímans, hvort sem það var á sviði atvinnumála, samgangna, heilbrigðismála, lista eða alhliða menningar. Og íslenzka þjóð- in eignaðist furðu marga slíka menn. Einn þeirra manna var Kjartan heitinn Guðbrandsson sonur Matthildar Kjartans- dóttur og Guðbrands Magnússonar for- stjóra. — í stað þess að þræða hinn hefðbundna veg langskólabóknáms, beindi hann áhuga sínum og atorku að einni djörf- ustu nýjung tímans: fluginu. Hann gerði sér ljóst, að þar var ekki aðeins um djarfan og karlmannlegan leik að ræða — heldur blasti þarna við lausnin á samgöngumálum veglauss lands: flugsamgöngur. Þessvegna skipaði hann sér í sveit þeirra ungu manna, er leituðu fyllstu menntunar á þessu sviði meðal þeirra þjóða, er þar höfðu forystuna. Revkjalunuur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.