Reykjalundur - 01.06.1952, Síða 41
Sú sveit skipar nú æðstu stöður íslenzkra
flugmála og stjórn beztu farkosta loftsins.
Og þar ætti hann öruggt sæti nú, ef ekki
hefðu ill sköp um ráðið.
Um það leyti sem Kjartan Guðbrands-
son var að ljúka æðstu menntun á sviði
flugmálanna í framandi landi, veiktist hann
af berklum — og eftir það voru vængir
hans stífðir og sköp hans ráðin. En hann
sá drauminn rætast: framgang flugmálanna
verða staðreynd, landi og þjóð til blessun-
ar.
Með Kjartani Guðbrandssyni er genginn
óvenjugóður drengur, prúður. hjálpsamur
og skemmtilegur í vina hópi, enda afburða-
vinsæll og vel látinn. Hann var gæddur
þeirri karlmennsku, sem þolir allt og umber
allt, án þess að missa sjónir á því kátbroslega
í þessu forundarlega jarðlífi. — Ég býst
ekki við, að mér endist aldur til að gleyma
svo ágætum dreng og félaga.
Árni úr Eyjum.
Gestur Loftsson.
F. 9. ágúst 1916. D. 3. marz 1952.
Með hverju ári falla í valinn fleiri og
fleiri af brautryðjendum S. í. B. S. Það kem-
ur engum á óvart, sem til þekkja. Stofnend-
ur og hvatamenn þessa félagsskapar voru
margir hverjir ekki líklegir til langlífis þeg-
ar þeir hófu baráttuna fyrir bættum lífs-
skilyrðum berklasjúklingum til handa. En
þeir áttu eld áhuga og trúar á mátt sinn og
möguleika til að vinna góðu máli verðugan
framgang. Og fyrir trú þeirra og viljastyrk
er Reykjalundur risinn af grunni. Einn í þess-
um brautryðjendahópi var Gestur Loftsson,
er andaðist að Vífilsstöðum 3. marz s. 1. eftir
langan og erfiðan sjúkdómsferil. Gestur
fæddist 9. ág. 1916. Foreldar hans voru þau
Gróa Einarsdóttir og Loftur Bjarnason, er þá
bjuggu að Sandnesi við Steingrímsfjörð.
Fjögurra ára missti Gestur móður sína, en
hún dó að Vífilsstöðum í ársbyrjun 1921.
Hann ólst upp hjá móðursystur sinni, Guð-
Reykjalundur
björgu Einarsdóttur og manni hennar Sig-
valda Guðmundssyni.
Aðeins tólf ára gamall veiktist hann fyrst
af þeim sjúkdómi, er yfirgaf hann aldrei að
fullu síðan. Það er löng barátta og harður
skóli ungum manni að berjast í nær tuttugu
ár fyrir lífi sínu og heilsu, ýmist í sjúkra-
húsum eða heilsuhælum. Það er þröngur
stakkur skorinn æskunni, með allri sinni
frelsis- og athafnaþrá. Væri nokkur furða,
þótt uppgjafar og örvæntingar gætti á slíkri
leið? En manninum er ekki eiginlegt, að
gefast upp, heldur að mótast eftir aðstæðum
Gestur Loftsson.
og umhverfi og leita eðli sínu útrásar við
þau skilyrði, sem fyrir hendi eru hverju
sinni Þannig sé ég Gest fyrir mér: sífellt
leitandi hug sínum verkefna, brjótandi til
mergjar heimsspekileg viðfangsefni, eða rýn-
andi fyrirbæri daglega lífsins.
Það gat ekki hjá því farið, að Géstur yrði
athafnasamur hðsmaður S. í. B. S. Hann var
einn af stofnendum Sjálfsvarnar í Kristnes-
hæli og í stjórn þess félags, þar til hann fór
að Vífilsstöðum síðsumars 1942. í félagssam-
tökum þar, gerðist hann og sterkur liðsmað-
ur bæði sem formaður og stjórnarmeðlimur
um mörg ár. Hann var fulltrúi á hverju
39