Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015
BAKSVIÐ
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Íslendingar bera enn höfuð og
herðar yfir nágrannaþjóðirnar þeg-
ar kemur að því að nota lyf til að
hjálpa sér að sofna. Samkvæmt nýj-
ustu tölum, sem eru frá 2013, sést
að Íslendingar
nota svefn-, ró-
andi og kvíðastill-
andi lyf mun
meira en frændur
vorir í Skandin-
avíu.
Salan er þó á
niðurleið, toppn-
um var náð árið
2010 og 2011.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Landlæknisembættinu er mest not-
aða svefnlyfið Imovan og árið 2012
fengu 25 þúsund Íslendingar lyfið
að minnsta kosti einu sinni. Töl-
urnar fyrir árið 2014 voru svipaðar
eða rúm 23 þúsund manns. Lyfið til-
heyrir flokki geðlyfja en notkun
geðlyfja er mest á Norðurlandi
vestra.
Ekki eru komnar tölur frá ná-
grannaþjóðunum fyrir árið 2014.
Erfiðara að svindla
Landlæknisembættið fylgist náið
með ávísun þessara lyfja og er það
eftirlit orðið auðveldara eftir að nýr
lyfjagagnagrunnur var tekinn í
notkun. Þá hafa læknar betri að-
gang að upplýsingum í gegnum raf-
ræna sjúkraskrá og með beinum að-
gangi að lyfjagagnagrunni. Með
honum geta læknar séð hvort sjúk-
lingar misnota lyfið.
Þetta þýðir að heimilislæknir í
Árbæ getur séð hvort heimilislækn-
irinn í Vesturbæ hefur verið að
skrifa upp á svipaðan skammt af
svefnlyfjum fyrir sama skjólstæð-
ing. Það er því með öðrum orðum
orðið erfiðara að svindla á kerfinu.
Landlæknisembættið bendir á að
það sé töluvert um það að fólk sé að
flakka á milli, láta heimilislækni
skrifa upp á svefn- og ávanabind-
andi lyf án þess að láta lækninn vita
af ávísunum annarra lækna. Slíkt er
orðið erfiðara.
Meðfylgjandi graf sýnir sölu á
ávanabindandi lyfjum en um 80% af
lyfjunum er ávísað, 20% eru ein-
staklingum gefin á stofnunum eins
og hjúkrunarheimilum og sjúkra-
húsum.
Nota frekar Tuborg
Gunnar Ingi Gunnarsson, yf-
irlæknir á Heilsugæslustöð Árbæj-
ar, segir niðurstöðurnar ekki koma
sér mjög á óvart enda sé þjóðfélagið
að rétta sig við eftir fjárhagshrunið.
„Það varð töluverð aukning á
svefnlyfjum í kjölfar hrunsins. Þá
kom inn fjöldi fólks til okkar sem
við höfðum ekki séð áður. En það er
hætt að koma.
Svo hefur mér dottið það í hug,
því við erum að miða okkur við
Skandinavíu, að fyrsta spurningin
sem kviknar hjá mér er vort Danir
noti kannski frekar Carlsberg og
Tuborg? Ég held að fleiri Danir eigi
bjór í ísskápnum hjá sér en Íslend-
ingar. Ég er ekkert svo viss um að
hér á landi séu svona miklar svefn-
raskanir en kannski frekar í að-
gengi. Það hefur verið auðvelt að-
gengi að svefntöflum hér á landi
undanfarin ár. Þetta er auðvitað
bara tilfinning en mér dettur það í
hug þegar þetta er til umfjöllunar,“
segir Gunnar Ingi að endingu.
Vaknað við vondan pilludraum
Svefnlyfjanotkun hefur minnkað Íslendingar bera þó enn höfuð og herðar yfir nágrannaþjóð-
irnar í notkun svefnlyfjanna 25 þúsund Íslendingar fengu lyfið Imovan ávísað á árinu 2012
Morgunblaðið/Ásdís
Svefn Notkun geðlyfja er mest á Norðurlandi vestra. Yfir 23 þúsund Íslend-
ingar fengu lyfið Imovan að minnsta kosti einu sinni ávísað árið 2014.
Sala á svefn- og kvíðastillandi lyfjum
dagskammtar á hverja þúsund íbúa
Danmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Svefnlyf
Róandi og kvíðastillandi
Heimild: nowbase.org
2005 2013 2005 2013 2005 2013 2005 2013 2005 2013
Gunnar Ingi
Gunnarsson
Í lyfjabókinni segir að Imovan
taki innan við 30 mínútur að
virka. Algengasta aukaverkunin
er biturt bragð í munni og sljó-
leiki. Afar sjaldan verður fólk
vart við skapgerðarbreytingar
eða ofskynjanir eða fær útbrot,
kláða, bjúg og öndunarerfiðleika
en þó hefur það gerst. Lyfið eyk-
ur áhrif hamlandi boðefnis,
GABA, á vissum stöðum í heila
og styttir því tímann sem það
tekur fólk að sofna, fækkar and-
vökum og lengir svefntíma. Í
venjulegum skömmtum raskar
lyfið ekki svefnmynstri og svefn
verður eðlilegur. Lyfið ætti að-
eins að nota í skamman tíma í
senn vegna ávanahættu. Ef lyfið
er notað lengi getur svefninn
skyndilega versnað við það eitt
að hætta töku lyfsins.
Biturt bragð og sljóleiki
AUKAVERKANIR AF SVEFNLYFINU IMOVAN
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
Stökktu tilboð
Frá kr.64.900
Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brottför látum við ykkur
vita á hvaða gististað dvalið er á.
Ekki missa af þessu einstaka tilboði.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Verð getur hækkað
án fyrirvara.
Netverð á mann m.v. 2 - 4 fullorðna í
íbúð/studio/herbergi í 5 nætur.
Kanarí
Stökktu til
26. febrúar í 5 nætur Kettlingurinn Mia, sem er fimm
mánaða gömul, réðst ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur, í
bókstaflegri merkingu, þegar hún
var að stíga sín fyrstu skref úti í
hinum stóra heimi.
Eftir stutta stund þar sem hún
kynntist norðlenskum snjó norður
á Akureyri tók hún upp á því að
klifra upp í tré. Það sem gerðist
næst kom eiganda hennar Ingu
Völu Birgisdóttir í opna skjöldu.
„Þetta voru nánast hennar
fyrstu skref úti í náttúrunni. Ég
kallaði á hana en hún svaraði mér
ekki þannig að mér varð litið upp í
tré og kom auga á hana. Fannst
hún fyndin þannig að ég stökk inn
og náði í myndavélina,“ segir Inga
Vala.
Þegar hún sneri aftur vopnuð
myndavélinni sá hún að krummi
einn hafði komið sér fyrir í trjá-
toppnum en Inga velti því lítið fyr-
ir sér enda kattarskinnið frekar
neðarlega í trénu.
„Allt í einu klifraði hún upp
þegar krumminn var búinn að
koma sér fyrir á toppnum og fældi
hann í burtu. Svo klifraði hún nið-
ur stolt og ánægð. Nema hvað
krumminn sótti sér liðsstyrk og
kom með annan krumma. Hún
klifraði þá bara aftur upp og fældi
þá tvo líka í burtu,“ segir Inga og
hlær. benedikt@mbl.is
Ljósmyndir/Inga Vala Birgisdóttir
Mjálm kettlings fældi krumma úr trénu
Líkamsárás varð í Hafnarfirði á
laugardagskvöldið þegar maður á
fimmtugsaldri réðst á son sinn á
unglingsaldri. Maðurinn var hand-
tekinn og gisti í fangageymslu um
nóttina.
Drengurinn sem fyrir árásinni
varð var fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild Landspítalans, skorinn á
höndum. Fleiri ungmenni voru á
heimilinu þegar líkamsárásin átti
sér stað.
Að sögn Margeirs Sveinssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu,
var manninum sleppt eftir skýrslu-
töku í gær. Sagði Margeir málið
enn í rannsókn, en það verður
unnið í samvinnu við félagsþjón-
ustu. Barnaverndaryfirvöld í Hafn-
arfirði voru kölluð til vegna máls-
ins eins og tíðkast þegar um
heimilisofbeldi er að ræða gagn-
vart barni.
Faðir handtekinn vegna líkamsárásar á son