Morgunblaðið - 16.02.2015, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015
REYKJAVÍK
BREIÐHOLT
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
Sundlaugarvörðurinn í Breiðholt-
inu, Sveinn Auðunsson, lætur fjúka í
kviðlingum. Þessi hláturmildi karl
hefur unnið við sundlaugina frá því
um aldamót. Er ýmist á vakt í bún-
ingsklefunum eða situr í varðturn-
inum við laugina og fylgist með að
enginn fari sér að voða. Úr turninum
sést vel yfir laugina og öryggis-
myndavélar ná í hvert horn og undir
yfirborðið.
Ferillinn er fjölskrúðugur. Sveinn
Auðunsson fæddist á Ólafsfirði, en
frá átta ára aldri og fram að tvítugu
bjó hann í Þykkvabæ. Auðunn Bragi
Sveinsson, faðir Sveins, var þar
skólastjóri sem átti sinn þátt í því að
Sveinn lagði á svipaða slóð. Fór í
Íþróttakennaraskóla Íslands á Laug-
arvatni og varð skólamaður; fyrst í
Gaulverjabæ í Flóa en lengst á Egils-
stöðum. „Og þar hófst sundlaug-
arferillinn, síðustu tvö árin eystra
með hinum þekkta Strandamanni og
víðfræga kúluvarpara Hreini Hall-
dórssyni, sem var forstöðumaður.
Hreinn hafði mjög gaman af kveð-
skap ýmiss konar svo sem vísunum
um konurnar sem unnu,“ segir
Sveinn sem með fjölskyldu sinni
flutti suður árið 1999. Hóf þá störf í
sundlauginni og hefur unnið þar síð-
an.
Kveðskapurinn er alltaf nærri. Í
pokahorni sínu lumar Sveinn á ljóða-
bókunum sínum þremur; Demónum
og fóbíum frá 2010, Nú er það geðs-
legt sem kom út 2011 og Allt er gott
sem endar sem hann gaf út í hitti-
fyrra. Annars eru gullmolarnir fljót-
ir að fljúga úr munni Sveins – og
þegar blaðamaður spurði Svein
hvernig honum líkaði starfið í laug-
inni og hvernig það væri stóð ekki á
svari:
Í laugarturni löngum sit,
lít það yfir svæði.
Oft þá verð ég alveg bit,
endar svona kvæði.
Skáldið í turninum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vakt Hinn hraðkvæði Sveinn lítur eftir laugargestum og er vel á verði.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Aðhald almennings, ábendingar
um hvað betur megi fara og óskir
um að gengið verði í hin og þessi
mál eru stjórnmálafólki mikil-
vægar,“ segir samfylkingarkonan
Björk Vilhelmsdóttir. Hún var
kjörin í borgarstjórn frá árinu
2002 og flutti ekki löngu síðar með
fjölskyldu sinni í Breiðholtið.
Hverfið var raunar fyrsti viðkomu-
staðurinn þegar hún flutti í bæinn
norðan úr landi á unglingsárum.
Fór þá í Fjölbrautaskólann í
Breiðholti. Óhætt er að segja að
rætur hennar liggi í þessu sam-
félagi.
Umferðar- og skipulagsmál,
velferðarþjónusta og húsnæðis-
vandi eru þau mál sem borgarbúar
bera gjarnan upp við kjörna full-
trúa sína og óska úrbóta. Bæta
þarf merkingar á götuhorni, laga
gangstéttar og svo framvegis.
„Þótt grunnskólarnir séu einn
veigamesti þátturinn í starfsemi
borgarinnar koma erindi þeim við-
víkjandi lítið inn á borð borgarfull-
trúa. Málin eru einfaldlega leyst í
skólunum og það er vel,“ segir
Björk.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Krakkar Brosmildur barnahópur í Austurbergi á heimleið eftir skemmtilegan dag í Hólabrekkuskóla.
Hverfið endurnýjast
Björk Vilhelmsdóttir er borgarfulltrúi úr Breiðholti Fólk vill
framkvæmdir og úrbætur Félagsauður og listaverk sett upp
Nýr frjálsíþróttavöllur verður tek-
inn í notkun á svæði ÍR í Suður-
Mjódd í Breiðholti ekki síðar en
sumarið 2017. Hann verður mikil
lyftistöng fyrir frjálsar íþróttir í
borginni að sögn
Hauks Þórs Har-
aldssonar, fram-
kvæmdastjóra
félagsins.
Haukur Þór
sagði í samtali
við Morgun-
blaðið að sam-
kvæmt samningi
við Reykjavíkur-
borg sem undir-
ritaður var í lok
janúar fari hönnunarvinnan fram í
sumar og jarðvegsathuganir. Meg-
inframkvæmdatíminn verði hins
vegar á næsta ári. Allt eigi að vera
tilbúið vorið 2017. Fimmtíu millj-
ónum króna verður varið í verk-
efnið á þessu ári samkvæmt samn-
ingnum.
Hér er um útivöll að ræða með
brautum, en jafnframt munu litlar
byggingar fyrir keppnisumsjón rísa
á svæðinu. Völlurinn leysir af hólmi
gömlu aðstöðuna á Laugardalsvelli,
en áfram verður keppt í frjálsum
íþróttum innandyra í Laugardals-
höllinni. Þá er keppnisaðstaða í
Kaplakrika í Hafnarfirði sem mikið
hefur verið notuð.
Hundrað ára félag
„Þetta verður okkar félags-
völlur,“ sagði Haukur Þór, „en að
sjálfsögðu stendur hann opinn öll-
um öðrum sem keppa í frjálsum
íþróttum.“
Nýi frjálsíþróttavöllurinn verður
lagður vestur af aðalknattspyrnu-
velli ÍR í Suður-Mjódd. Honum er
ætlað að uppfylla kröfur Alþjóða-
frjálsíþróttasambandsins fyrir fé-
lagsvöll.
ÍR - Íþróttafélag Reykjavíkur - er
rúmlega hundrað ára gamalt félag.
Það var stofnað að frumkvæði ungs
Norðmanns, Andreasar J. Bertel-
sen. Það var snemma árs 1907 sem
hann setti auglýsingu í bæjarblöðin
þar sem hann hvatti röska pilta til
að mæta á stofnfund félags um fim-
leika- og íþróttaiðkun. Þann 11.
mars sama ár var haldinn stofn-
fundur Íþróttafélags Reykjavíkur,
sem hóf þegar stífar leikfimisæf-
ingar. Fyrstu æfingarnar fóru fram
á Landakotstúni. Fyrsta frjáls-
íþróttamótið var haldið tveimur ár-
Fá 50 milljónir til að
undirbúa nýjan völl
Frjálsíþróttavöllur hjá ÍR í Suður-Mjódd
Haukur Þór
Haraldsson