Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015 ✝ Helgi EllertJónatansson var fæddur á Akra- nesi 24. febrúar 1951. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 27. jan- úar 2015. For- eldrar hans voru hjónin Jónatan Ingvar Guðmunds- son, f. 21.1. 1923 á Fossum í Skut- ulsfirði, d. 23.5. 1972, og Marta Rósa Guðmundsdóttir, f. 9.9. 1919 í Flatey á Skjálfanda, d. 7.11. 1984. Systkini Helga eru: 1) Anna Rannveig Jónatans- dóttir, f. 30.6. 1945 á Ísafirði, gift Vernharði Anton Að- alsteinssyni, f. 20.4. 1947. Þeirra börn eru Jónatan Vernharðsson, f. 31.3. 1966, Anna Sigríður Vernharðsdóttir, f. 30.6. 1969 og Aðalsteinn Vernharðsson, f. 27.4. 1977, d. 1.9. 1997. 2) Guð- mundur Karl Jónatansson, f. 24.9. 1947 á Ísafirði, giftist Mar- íu Guðmundsdóttur f. 16.12. 1950. Þau skildu. Þeirra börn eru V. Auður Karlsdóttir, f. 8.5. 1969, Rósa Guðmundsdóttir, f. 7.2. 1973, og Guðmundur Alfreð Guðmundsson, f. 15.7. 1976. Helgi giftist Þorgerði Einars- Hjá SBK starfaði hann sem rútubílstjóri til ársins 1989. Á þessum árum stofnuðu Helgi og Þorgerður bókaverslunina Rit- val í Keflavík og ráku hana í nokkur ár. Árið 1989 fluttu þau í Garðabæ og fór Helgi að keyra leigubíl. Í framhaldi af því starf- aði hann í þrjú ár sem bílstjóri fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Sarajevo. Eftir heimkomu hóf hann störf við virkjanafram- kvæmdir við Vatnsfell og hóf síðar störf hjá BM Vallá, fyrst sem bílstjóri en fljótlega fór hann í steypustöðina við rann- sóknir og gæðamælingar. Í nokkur ár var hann staðsettur á Reyðarfirði við steypurann- sóknir o.fl. við Kárahnjúka- virkjun og álverið á Reyðarfirði en síðustu árin vann hann á höf- uðborgarsvæðinu. Helgi var mikill skákáhuga- maður og tefldi við hvert tæki- færi. Hann tefldi lengst af með Skákfélagi Reykjanesbæjar og vann með þeim til margra verð- launa í gegnum tíðina en nú síð- ast urðu þeir Íslandsmeistarar árið 2014 í sveitakeppni 2. deildar. Einnig fór hann marg- sinnis með félaginu til útlanda til að tefla í hópi bifreiðastjóra frá öllum löndum á Norð- urlöndum og þar varð hann margsinnis Norðurlandameist- ari. Helgi verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, 16. febr- úar 2015, og hefst athöfnin kl. 15. dóttur, f. 4.10. 1954 í Almannadal, árið 1970 í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Þau skildu árið 1993. Börn þeirra eru Einar Helga- son, f. 14.12. 1970, og Linda Björg Helgadóttir, f. 16.8. 1974, gift Stefáni Jökli Jakobssyni, f. 21.7. 1971, þeirra börn eru Sara Ósk Stefáns- dóttir, f. 1.10. 2002 og Heba Sól Stefánsdóttir, f. 12.5. 2004. Helgi var fæddur á Akranesi en fjölskyldan flutti fljótlega eftir fæðingu hans í Kópavog þar sem faðir hans hafði veikst alvarlega. Hann ólst upp í vest- urbænum í Kópavogi, í Mel- gerði, og bjó hann þar einnig tímabundið með fjölskyldu sinni eftir búsetu í USA. Helgi kláraði landspróf árið 1967 og vann ým- is iðnaðarstörf á sínum fyrstu starfsárum. Fljótlega eftir heim- komuna frá Bandaríkjunum hóf hann störf sem bílstjóri hjá Steypustöðinni þar sem hann var til ársins 1976 er hann byrj- aði hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur, SBK, og flutti fjöl- skyldan á því ári til Keflavíkur. Elsku pabbi minn, tengdafaðir og afi. Lífið kemur sífellt á óvart. Ekki áttum við von á að þetta hefðu verið síðustu jólin okkar saman. Þú varst hjá okkur í mat aðra helgina í janúar og var það okkar síðasta samvera. Nutum við þess eins og ávallt að spjalla um heima og geima. Þrátt fyrir veikt hjarta varstu alltaf svo hress, stundaðir ávallt þína vinnu, tefldir í sífellu hér og þar svo ekki grunaði mig að þú værir á förum frá okkur. Þrátt fyrir að við höfum rætt margt í gegnum tíðina og mér finnist ég ekki eiga neitt ósagt við þig þá langar mig að minnast þín í nokkrum orðum. Lífið er eins og veðráttan, skin og skúrir, og þrátt fyrir fjöl- breytt veðurfar í gegnum lífið þá stendur upp úr öll þessi góða samvera okkar. Ég þvældist mikið með þér á rútunni og fór ófáar ferðir með þér milli Kefla- víkur og Reykjavíkur. Mesta sportið var að fá að borða með þér á BSÍ og fá að afgreiða í sjoppunni á meðan þú tíndir pakka og farangur úr rútunni. Þú varst svo fróður um margt, víðlesinn, sérstaklega um mann- kynssöguna og fylgdist vel með því sem var að gerast í þjóðfélag- inu hverju sinni. Því man ég eftir mörgum skemmtilegum frásögn- um þínum. Þú hafðir sterkar skoðanir og kaldhæðnislegan húmor sem krydduðu sögurnar. Þú varst líka alla tíð mikill stríðnispúki og uppátækjasamur, sérstaklega sem ungur maður. Afastelpurnar og hundurinn Lord eiga eftir að sakna þess að fá stríðnispúkann í heimsókn og höfðu stelpurnar orð á því um daginn hver ætti þá að stríða Lord og kalla hann kisu! Ég sagði þeim að þú myndir vaka yf- ir okkur og pikka í kisu af og til. Öll höfum við okkar kosti og galla og þú varst ekki þessi pabbi sem fór með mér á tón- leika eða skíði en við fórum að veiða og voru það okkar gæða- stundir. Svo vorum við tvö dug- leg að spila saman yatzy og grunar mig að eftir öll árin hafir þú staðið uppi sem sigurvegari. Þú varst mikill skákmaður og helgaðir skákinni þinn frítíma, gast setið klukkustundum saman í einni og sömu skákinni. Þessa þolinmæði skorti mig alveg og gafst ég alltaf upp á að læra af meistaranum. Þú getur huggað þig við það að yngri afastelpan þín virðist hafa erft genið, hefur gífurlegan áhuga og stundar skák af kappi. Hún ljómaði líka öll þegar þú sagðir henni frá skákvef þar sem þú gast teflt við fólk um allan heim. Okkar samvera sl. 20 ár hefur verið hittingur yfir kaffibolla eða mat og við skipst á fréttum og sögum. Stebbi hafði oft meiri skilning á því sem þú varst að brasa í vinnunni, þið áttuð góða samleið, báðir með skemmtilegar sögur að segja, báðir búnir að vinna mikið í iðnaðarbransanum. Afastelpurnar höfðu gaman af að fá þig í heimsókn og náðu að kynnast þinni góðu hlið. Nutu þær þess að spila við þig spilið sem þú gafst þeim, en þær voru líka mjög þakklátar fyrir bæk- urnar sem þú reyndir að velja vel og stóðst þig með besta móti. Við fjölskyldan erum mjög þakklát fyrir þessar stundir okk- ar saman og vonum að á nýjum stað finnir þú nógu erfiðan and- stæðing til að tefla við þig. Ástarkveðja, þín Linda Björg, Stefán Jökull, Sara Ósk & Heba Sól. Í dag kveðjum við samstarfs- mann okkar og vin Helga Jón- atansson. Dauða hans bar brátt að og okkur er óneitanlega brugðið og finnst að dagsverkinu hafi ekki verið nærri lokið. Margar sögur átti eftir að segja og margar skákir eftir að tefla í amstri lífsins. Kynni okkar hófust þegar Helgi fór að vinna hjá BM Vallá fyrir um 15 árum. Hann réði sig sem bílstjóra en fór fljótlega að stýra steypustöðvum og að vinna við gæðamælingar á steypu og steypuvörum. Hann var afar góður starfskraftur, eldklár, vandvirkur og samviskusamur. Það var alltaf hægt að treysta því að ef Helgi sá um hlutina voru þeir hafnir yfir gagnrýni. En Helgi var einnig góður fé- lagi og skemmtilegur persónu- leiki. Það var oft gaman að koma og hitta hann í upphafi dags til að fá stöðu mála því hann hafði frumlega og húmoríska sýn á menn og málefni og sögurnar margar ógleymanlegar. Flestar úr nútímanum en einnig frá ýmsu sem á daga hans hafði drif- ið í lífi og starfi, enda hafði hann mikla reynslu af störfum bæði innanlands og utan. Hann sagði okkur t.d. frá því þegar hann fékk ólærður trésmíðaréttindin í Kaliforníu þegar hann bjó þar. Það gerðist með hjálp vinnu- félaga hans, Íslendings, sem þó skildi ekki orð í íslensku en var góður smiður og mætti sem „túlkur“ með honum í prófið. Ekki þótti Helga mikið mál að vinna lítt reyndur sem smiður; þetta var allt einfalt í hans huga og hann fljótur að læra. Helgi var góður skákmaður. Tefldi á mótum á Íslandi og er- lendis og var m.a. margfaldur Norðurlandameistari bílstjóra (eða vagnstjóra eins og Helgi kallaði það). Hann tefldi mikið á netinu og eitt sinn tefldi hann á tölvu vinar síns sem var lágt skrifaður í skákinni við meistara úti í heimi og mátaði hann. Fékk vinurinn ekki frið í lengri tíma á eftir því meistarinn brotnaði nið- ur við útreiðina gegn skákmanni með svo fá stig og heimtaði að fá aðra skák. Helgi var á vinnustaðnum dul- ur um sitt persónulega líf. Þeim var þó ljóst sem þekktu hann best að hann bar hag barna sinna og barnabarna mjög fyrir brjósti og talaði um þau af mikilli hlýju. Samverustundirnar við þau skiptu hann greinilega miklu … Helga Jónatanssonar verður sárt saknað hjá BM Vallá og vinnustaðurinn er ekki sá sami eftir brotthvarf hans. Ég votta öllum ástvinum og vinum Helga mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Helga Jónatanssonar. Einar Einarsson. Kveðja frá Skákfélagi Reykjanesbæjar Í dag kveðjum við félagar í Skákfélagi Reykjanesbæjar liðs- félaga okkar og góðan vin, Helga E. Jónatansson, er varð bráð- kvaddur þann 27. janúar síðast- liðinn. Helgi gekk til liðs við Skákfélag Reykjanesbæjar fyrir nær 40 árum og hefur frá þeim tíma átt fast sæti í skákliði fé- lagsins. Meðan hann bjó í Reykjanesbæ var hann auk þess mjög virkur í starfi félagsins, m.a. formaður þess um skeið. Á þeim tíma var og algengt að teflt væri í hópi okkar skákfélaganna á heimili Helga á Vatnsnesveg- inum og síðar að Háseylu í Innri- Njarðvík á föstudags- eða laug- ardagskvöldum, enda var Helgi höfðingi heim að sækja. Helgi á að baki fjölda sigra á innan- félagsmótum hjá Skákfélagi Reykjanesbæjar, t.a.m. varð hann á árabilinu 1977-1982 fjór- um sinnum skákmeistari Kefla- víkur. Eftir að Helgi flutti á höf- uðborgarsvæðið um 1990 kom af sjálfu sér að dró úr þátttöku hans í starfi félagsins, en hann hélt þó engu að síður áfram að tefla fyrir þess hönd, s.s. í liða- keppnum. Í Deildakeppninni, Ís- landsmóti skákfélaga, hefur Helgi í gegnum tíðina reynst öfl- ugur liðsmaður og er skemmst að minnast árangurs hans í fyrri hlutanum af yfirstandandi keppni, sem tefldur var í október sl., þar sem Helgi náði bestum úrslitum liðsmanna, en liðið teflir nú í efstu deild. Þótt Helgi hefði fyrir fáum árum kennt sér ein- hvers hjarta- eða kransæða- meins var ekki annað að merkja en hann væri kominn í sitt gamla form, bæði líkamlega og skák- lega. Helgi var ávallt mann- blendinn, léttur og hress og sagði skemmtilega frá hlutum. Við félagar hans úr Skákfélagi Reykjanesbæjar þökkum honum nú á kveðjustund fyrir ánægju- legar samverustundir og stuðn- ing gegnum árin, við okkur og félagið. Við sendum börnum Helga, Lindu Björgu og Einari og barnabörnum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fh. félaga í Skákfélagi Reykjanesbæjar, Björgvin Jónsson og Sigurður H. Jónsson. Helgi Ellert Jónatansson Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR, Hringbraut 50, Reykjavík, andaðist á heimili sínu, Grund, fimmtudaginn 5. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 19. febrúar klukkan 13. . Örnólfur Thorlacius, Valgeir Hallvarðsson, Aðalbjörg Kristinsdóttir, Eva Hallvarðsdóttir, Ásgeir Valdimarsson, Herdís Hallvarðsdóttir, Gísli Helgason, Rannveig Hallvarðsdóttir, Jóhannes Karl Jia, Tryggvi Hallvarðsson, Þuríður Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞORVALDAR JÓNS MATTHÍASSONAR, Laugarnesvegi 87. . Svava S. Ásgeirsdóttir, Ásgerður Þórisdóttir, Kristinn Sigmundsson, Esther Þorvaldsdóttir, Guðjón Kristleifsson, Matthías G. Þorvaldsson, Ljósbrá Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, ANNA JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 23. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki og læknum fyrir umönnunina. . Sigurður Ólafsson. Samúðarskreytingar •Útfaraskreytingar Blómasmiðjan Grímsbæ | S. 588 1230 Ástkær eiginkona og móðir, MARGRET ERNA HALLGRÍMSSON, Greta, lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram föstudaginn 20. febrúar frá Neskirkju kl. 13. . Friðgeir Bjarni Skarphéðinsson og Ríkharður Friðgeirsson. Okkar ástkæra ÓLÖF ÞÓRHALLSDÓTTIR, Hulduhlíð, Eskifirði, áður til heimilis Skólastíg 3, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði, þriðjudaginn 3. febrúar. Útför hennar fer fram frá Höfðakapellunni, Akureyri, þriðjudaginn 17. febrúar kl. 13.30. . Aðstandendur. ✝ Jóhann JóelsHelgason fæddist í Hafn- arfirði 7. janúar 1937. Hann lést 24. janúar 2015. Hann var sonur hjónanna Arn- björns Helga Guð- mundssonar, f. 18.10. 1903, d. 1979, og Gíslínu Agnesar Pálsdóttur, f. 27.11. 1912, d. 1978. Eiginkona Jó- hanns er Nanna S. Ragn- arsdóttir, f. 27.12. 1938, þau eiga fimm börn, Randý, Sigurjón, Soffíu, Agnesi og Guðbjörgu. Jóhann var lengst af rútubíl- stjóri. Hann þekkti hálendið mjög vel enda fór hann margar ferðirnar þangað með ferða- menn. Þórsmörk og Landmannalaugar voru staðir sem hann þekkti eins og lófann á sér, enda fór hann ófáar ferðir þangað. Jarðarför hans fór fram í kyrrþey. Elsku pabbi minn, þú hvarfst á brott svo ósköp snöggt, við er- um ekki alveg búin að meðtaka þetta, en svona varstu nú, bara snöggur að öllu og dreifst allt af – ekkert hangs við hlutina. Það koma margar ljúfar minningar upp í hugann, allar ferðirnar með þér og mömmu og systk- inum þegar við vorum lítil hing- að og þangað um landið. Það voru skemmtilegar tímar og ljúft að eiga þær minningar núna. Ýmislegt fleira var nú gert enda vorum við stór fjölskylda, oft varstu langtímum saman í burtu í rútuferðum einhvers staðar uppi á hálendi og þá sáum við þig ekki í marga daga, en svona var þetta bara og við orðin vön að þú værir lengi í burtu, en við lifum ekki að eilífu eins og ég sagði stundum við þig þegar við spjölluðum saman í síma og sú varð raunin. Ég sendi þér þessa bæn í hinstu kveðju: Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (Vald. Briem) Kveðja, Soffía og fjölskylda. Jóhann Jóels Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.