Morgunblaðið - 16.02.2015, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015
aðarleysingjahæli. Hún var því ekki
bara stórkostlegur listamaður held-
ur líka góð manneskja. Maður dáist
að alls konar listamönnum, en mér
finnst mjög aðlaðandi þegar stór-
kostlegir listamenn reynast vera
góðir í gegn. Það þarf kjark til að
standa með kærleikanum.“
Spurð um útsetningarnar sem
leiknar verða á tónleikunum segir
Kristjana þær hljóma nákvæmlega
eins og á plötunni. „Þetta eru útsetn-
ingar eftir Quincy Jones, en þær
hafa ekki fengist útgefnar á nótum,
en Daniel Nolgård sem stjórnar
okkur skrifar útsetningarnar eftir
eyranu með því einu að hlusta á upp-
tökurnar. Hann er alveg magnaður,
dásamlegur stjórnandi og yndisleg
manneskja,“ segir Kristjana og tek-
ur fram að Stórsveitin muni því
hljóma mjög líkt því sem heyrist á
plötunni.
„Ég held mínu frelsi og mun túlka
lögin á minn hátt. Hins vegar eru
sumir staðir í spuna Ellu sem eru
svo aðlaðandi að ég mun gera þeim
hátt undir höfði, þ.e. vitna í hana á
útvöldum stöðum,“ segir Kristjana.
Þess má að lokum geta að miðar
eru seldir á vefnum harpa.is og í
miðasölu Hörpu.
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnandinn Daniel Nolgård skráði útsetningar laganna eftir eyranu.
» Lagið Unbroken íflutningi Maríu
Ólafsdóttur verður
framlag Íslands í Euro-
vision í ár en sjö lög
kepptu í söngvakeppn-
inni á laugardagskvöld.
Líkt og í fyrra hafði
dómnefnd helmings-
atkvæðavægi á móti
símakosningu. Tvö lög,
Once Again í flutningi
Friðriks Dórs Jóns-
sonar og Unbroken,
kepptu síðan um hylli
hlustenda og réðust úr-
slitin í símakosningu.
Sigur María Ólafsdóttir flutti lagið Lítil skref og kaus þjóðin lagið í Eurovision. Höfundar lags og texta eru þeir Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson.
Fínar Salka Sól Eyfeld, Ragnhildur S. Jónsdóttir og Guðrún D. Emilsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Mynd Þessar stúlkur vildu fá mynd af sér með Friðriki Dór Jónssyni.
48
RAMMA
E.F.I -MBL
2 VIKUR Á TOPPNUM!
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus