Morgunblaðið - 14.03.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Keppendur í Iceland Winter Games létu ekki
hvassviðri gærdagsins stöðva sig. Keppnin
stendur yfir á Akureyri þessa dagana og náði
hún hámarki í dag þegar fram fór snjóbrettamót
og keppni í skíðafimi (free ski) í Hlíðarfjalli.
Keppendur voru bæði innlendir og erlendir og
margir á heimsmælikvarða. Einn skipuleggj-
enda mótsins sagði kíminn, að keppendur hefðu
nánast fokið til Dalvíkur þegar verst viðraði.
Keppendur létu veðrið ekki hafa áhrif á sig
Ljósmynd/Linda Ólafsdóttir
Iceland Winter Games fara fram þessa dagana á Akureyri
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við stefnum að því að fara af stað
með þessa kosningu á mánudaginn,“
segir Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamanna, en
bandalagið vinnur nú hörðum hönd-
um að atkvæðagreiðslu um verk-
fallsaðgerðir.
„Við erum sem sagt að undirbúa
aðgerðir og verkföll sem verða á
völdum stöðum. Það getur þó allt
breyst á síðustu stundu þannig að
ég vil ekki vera að lýsa einhverju yf-
ir sem síðar myndi ekki standa,“
segir hann.
Allt saman stopp
Félög sem eiga aðild að Banda-
lagi háskólamanna eru 27 talsins og
má þar nefna Félag íslenskra hljóm-
listarmanna, Félag íslenskra leik-
ara, Félag íslenskra náttúrufræð-
inga og Sálfræðingafélag Íslands.
„Við erum að fara yfir sviðið og
hvar sé vænlegast að bera niður til
að hafa áhrif á þessar kjaraviðræð-
ur og ýta þeim eitthvað áfram, þar
er allt saman stopp. Okkur er það
alveg ljóst að ef við gerum ekki
neitt þá gerist ekki neitt,“ segir
Páll.
„Verkfallið yrði fljótlega upp úr
páskum og ég er ekkert viss um að
það yrði alltaf á sama stað á sama
tíma,“ segir hann að lokum.
Kjósa um verkföll á völdum stöðum
Bandalag háskólamanna efnir til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir næstkomandi mánudag
Möguleg verkföll fjölda aðildarfélaga BHM myndu skella á upp úr páskum á mismunandi stöðum
Morgunblaðið/Ómar
Aðgerðir Formaður BHM segir verkföllin ekki endilega verða á sama tíma.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Mikið hvassviðri og vatnsveður verð-
ur um allt land í dag. Vindhviður
geta farið yfir 50 metra á sekúndu en
spáð er sunnanátt með meðalvindi
frá 20-30 m/s fyrir hádegi. Óveðrið
byrjar sunnanlands og suðaustantil
og færist síðan fljótt yfir allt landið.
Stormurinn ætti að ganga yfir um kl.
tvö sunnanlands og síðdegis fyrir
norðan. Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu mun
flugumferð liggja
niðri innanlands
en óvíst er með
millilandaflug.
Elín Björk Jón-
asdóttir, veður-
fræðingur, segir
að ekki verði
stætt úti þegar
veðrið er verst og
að ekki sé mikið
vit í því að fara út. „Það hefur ekki
komið jafn slæmt veður í vetur úr
þessari átt. Nú fýkur allt hitt, sem
ekki hefur fokið í vetur. Allt lauslegt
getur farið af stað, tré gætu rifnað
upp með rótum og þakplötur fokið,“
segir hún. Þá segir Elín flóðahættu
mesta suðaustanlands, undir Vatna-
jökli, og á Suðurlandi við Mýrdals-
og Eyjafjallajökla.
Nokkuð var um útköll björgunar-
sveita í óveðri sem gekk yfir í gær.
Beðið var um aðstoð vegna foks víðs-
vegar á vestanverðu landinu. Í Gróf-
inni í Keflavík flæddi upp úr niður-
föllum og var slökkviliðið kallað út til
að dæla upp leysingavatni sem hafði
safnast fyrir á staðnum. Landsnet
verður í viðbragðsstöðu vegna óveð-
ursins sem gengur yfir landið í dag,
þar sem ástand flutningskerfisins er
talið veikt víðsvegar um land.
Ofsaveður og ekki stætt úti
Flóðahætta á Suð-
ur- og Suðausturlandi
Óveður Kári sækir
landann heim.
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins fagnar batnandi efna-
hagsaðstæðum á Íslandi og þeim ár-
angri sem hefur náðst í að takast á
við vandamál í kjölfar hrunsins.
Þetta kemur fram í umræðu fram-
kvæmdastjórnar Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins um skýrslu sjóðsins um
horfur og stöðu íslensks efnahags-
lífs.
Með traustum efnahagsaðgerðum
sé útlit fyrir hagvöxt til framtíðar,
verðstöðugleika og batnandi skulda-
stöðu. Að mati stjórnarinnar þarf
fyrst og fremst að vinna að áhættu-
þáttum er varða lítinn hagvöxt á al-
heimsvísu, verðbólguáhrif launa-
hækkana og óvissu í kringum afnám
gjaldeyrishafta. Þá telur hún að pen-
ingastefna Seðlabankans snúi rétti-
lega að verðstöðugleika og er Seðla-
bankinn hvattur til að vera á verði
gagnvart verðhjöðnun og miklum
launahækkunum. Einnig styður
stjórnin þá stefnu Seðlabankans að
byggja upp sterkan gjaldeyrisforða
og leggur hún áherslu á að byggt sé
upp stuðningsnet við íslenskt fjár-
málalíf vegna vandamála sem gætu
komið upp á við afnám gjaldeyr-
ishafta og lagalegra ágreiningsmála
sem tengjast því. Ennfremur er kall-
að eftir endanlegri lausn á vanda-
málum Íbúðalánasjóðs sem er rek-
inn með miklu tapi. isb@mbl.is
AGS fagn-
ar góðum
árangri
Efnahagshorfur
Íslands bjartar
„Í dag hófst atkvæðagreiðsla um
vinnustöðvun, þ.e.a.s. hvort okk-
ar starfsmenn hjá Ríkisútvarpinu
séu reiðubúnir í vinnustöðvun
seinna í mánuðinum. Það kemur
niðurstaða úr atkvæðagreiðsl-
unni á þriðjudaginn,“ segir
Kristján Þórður Snæbjörnsson,
formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands.
„Krafa okkar er sú að gerðir
verði alveg sjálfstæðir sér-
kjarasamningar fyrir okkar fé-
lagsmenn sem starfa hjá Rík-
isútvarpinu, við höfum verið
uppi með kröfu
um það ansi
oft síðan Rík-
isútvarpið var
gert að op-
inberu hluta-
félagi árið
2008. Við erum
búin að halda
marga fundi
með Rík-
isútvarpinu og vísuðum deilunni
til Ríkissáttasemjara 20. janúar.
Sá fundur var árangurslaus,“
segir Kristján Þórður.
Fara fram á sérkjarasamninga
STARFSMENN RÍ INNAN RÚV MÖGULEGA Í VERKFALL
Verkfall Kosn-
ingar hófust í gær.