Morgunblaðið - 14.03.2015, Side 24

Morgunblaðið - 14.03.2015, Side 24
AFP Stærsta tunglið Teikning af segul- ljósum á tunglinu Ganýmedesi. Vísindamenn hafa fundið merki um að allt að hundrað kílómetra djúpt haf sé að finna undir ísskorpu Ga- nýmedesar, stærsta tunglsins í sól- kerfinu. Ganýmedes er eina tunglið í sólkerfinu sem er með segulsvið en það eru meðal annars mælingar á því sem hafa gert mönnum kleift að rannsaka hafið. Hópur vísindamanna undir for- ystu Joachim Saur við Kölnarhá- skóla í Þýskalandi beindi Hubble- geimsjónaukanum að Ganýmedesi, sem er eitt tungla Júpíters, til að fylgjast með segulsviðinu. Segulsvið Ganýmedesar myndar segulljós á báðum pólum tunglsins (norður- og suðurljós) sem hægt er að mæla og ljósmynda með geimsjónaukum eins og Hubble. Þar sem Ganýmedes er innan segulsviðs Júpíters geta segulljósin á Ganýmedesi breyst samhliða breytingum á segulsviði Júpíters og riðað eða vaggað fram og aftur, að því er segir í frétt á Stjörnufræðivefnum. Ef salt haf væri að finna innan í Ganýmedesi myndi segulsvið Júpí- ters mynda aukasegulsvið í hafinu sem vægi á móti segulsviði Júpíters. Þessi „segulsviðsnúningur“ drægi úr riði segulljósanna á Ganýmedesi. Mælingar vísindamannanna leiddu það einmitt í ljós. Fyrir vikið drógu þeir þá ályktun að innan í Ga- nýmedesi væri að finna haf sem verkar svo sterkt á móti segulsviði Júpíters að segulljósin á tunglinu riða eða vagga um aðeins 2 gráður í stað 6 gráða ef ekkert segulsvið væri til staðar. Útreikningar vísindamannanna benda til þess að hafið sé um 100 km djúpt – 10 sinnum dýpra en dýpstu höf jarðar – undir 150 km þykkri hnattrænni íshellu, að því er fram kemur á stjörnufræðivefnum, stjornufraedi.is. Saltur sjór á Ganýmedesi  Haf á stærsta tungli í sólkerfinu 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Heildarlosun koltvísýrings hélst óbreytt í heiminum á síðasta ári frá árinu áður, samkvæmt nýjum gögnum frá Alþjóðaorku- málastofnuninni (IEA). Þetta er í fyrsta skipti í 40 ár sem árleg losun koltvísýrings eykst ekki þótt hagvöxtur aukist. Losunin nam 32 gígatonnum árið 2014 og var sú sama og ár- ið áður. „Þetta eru bæði gleðileg tíðindi og mikilvæg,“ hefur fréttavefur breska ríkisútvarpsins eftir aðalhagfræðingi Al- þjóðaorkumálastofnunarinnar, Fatih Birot. Hann kvaðst vona að þetta yrði til þess að skriður kæmist á samningaviðræður um aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum í heiminum. „Það ætti alls ekki að nota þessar góðu fréttir sem afsökun til að hindra frekari aðgerðir,“ sagði Maria van der Hoeven, framkvæmdastjóri IEA. Rakið til breytinga í Kína Að sögn BBC rekja sérfræðingar þetta einkum til breytinga á orkunotkun í Kína og aðildarríkjum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar, OECD. Þeir benda meðal annars á að dregið hefur úr notkun kola í Kína, auk þess sem Kínverjar hafa gert ráðstafanir til að minnka loftmengun, bæta orkunýtinguna og nýta endurnýjanlega orkugjafa. Heildarlosun koltvísýrings hélst óbreytt á síðasta ári EPA Losunin jókst ekki Mengun frá verksmiðju í kín- versku borginni Qian’an í norðurhluta Kína. Palestínsk börn í bænum Beit Hanun á Gaza-svæðinu leika sér í rústum húsa sem eyðilögðust í lofthernaði Ísraela í 50 daga stríði Ísraelshers og Hamas- samtakanna í sumar sem leið. Um það bil 2.200 Gaza- búar, þeirra á meðal 513 börn, biðu bana í loftárásum Ísraelshers. 66 hermenn og sex óbreyttir borgarar, þeirra á meðal barn, létu lífið í flugskeytaárásum Hamas-manna. AFP Börn að leik í húsarústunum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Sænskur saksóknari í máli Julians Assange, stofnanda WikiLeaks, bauðst í gær til að yfirheyra hann í Lundúnum um ásakanir tveggja kvenna sem saka hann um nauðgun og kynferðisofbeldi. Einn lögmanna Assange, Per Samuelsson, fagnaði tilboðinu. „Hann samþykkir þetta,“ sagði lögmaðurinn og bætti við að Assange væri ánægð- ur með þessi tíðindi. Saksóknarinn, Marianne Ly, hafði áður hafnað þeim möguleika að yfir- heyra sakborninginn í Lundúnum. Assange neitar sakargiftunum. Hann leitaði hælis í sendiráði Ekva- dors í Lundúnum í júní 2012, þegar hann hafði leitað allra lagalegra leiða til að koma í veg fyrir framsal til Sví- þjóðar, og hefur dvalið í sendiráðinu síðan. Hann telur að handtökuskipun- in sé yfirskin, að Svíar ætli að fram- selja hann til Bandaríkjanna þar sem WikiLeaks hefur valdið usla með birt- ingu fjölda leyniskjala bandarískra yfirvalda. Fyrrverandi hermaður, Chelsea Manning, afplánar nú 35 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir að hafa lekið leyniskjölum til Wiki- Leaks. Vill taka DNA-sýni Marianne Ny kvaðst í gær vilja yfirheyra Assange í sendiráði Ekva- dors í Lundúnum vegna þess að sam- kvæmt sænskum lögum rennur fyrn- ingarfresturinn í öðru kynferðis- brotamálanna út í ágúst næst- komandi. Hún kvaðst einnig vilja taka DNA-sýni af Assange í sendiráðinu. Önnur kvennanna sakar Assange um kynferðisofbeldi og samkvæmt lögunum hafa sænsk yfirvöld frest til ágúst til að hefja saksókn í því máli. Hin konan sakar Assange um nauðg- un og í því máli rennur fresturinn út árið 2020. Marianne Ny sagði að hún hefði alltaf verið þeirrar skoðunar að það drægi úr gildi yfirheyrslunnar ef rætt yrði við Assange í sendiráðinu. Ef hann yrði ákærður þyrfti hann að vera viðstaddur réttarhöldin í Sví- þjóð. „Ég er enn þessarar skoðunar,“ sagði Ny en bætti við að hún teldi nauðsynlegt að fallast á yfirheyrslu í Lundúnum vegna fyrningarfrestsins. Lögmaður annarrar kvennanna hvatti sænska saksóknara til að yfir- heyra Assange eins fljótt og mögulegt væri til að tryggja að hægt yrði að hefja saksóknina áður en fyrningar- fresturinn rennur út. Vill yfirheyra Assange í Lundúnum  Fyrningarfrestur í öðru kynferðis- brotamálanna rennur út í ágústmánuði „Það er svívirðilegt að það skuli hafa tekið sænsk yfirvöld fjögur og hálft ár að komast að þessari niðurstöðu,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Kristni Hrafnssyni, talsmanni WikiLeaks. „Öll þessi saga er svartur blettur á orð- spori Svíþjóðar í mannréttinda- málum. Það er kominn tími til að yfirvöldin horfist í augu við þetta og falli algerlega frá mál- inu.“ „Svívirðilegt“ Sakborningur Assange neitar sök. YFIRVÖLDIN GAGNRÝND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.