Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
Gólfþvottavélar
Háþrýstidælur
fyrir heimilið
Ryksugur
Vatnsdælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Sópar
Háþrýstidælur
Gufudælur
Af hverju er það
„tabú“ þegar karl-
maður bendir á að í
kvenréttindabaráttunni
kunni að felast alvarleg
mismunun og brot á
réttindum karla? Ég er
mikill jafnréttissinni og
tel ólíðandi að mis-
munun sé viðhöfð á
hvaða sviði sem er og
gegn hverjum sem er!
En það breytir ekki því að ég vil tjá
mig um femínísk viðhorf eins og þau
birtast mér.
Mér finnst „aðfinnsluvert“ hvað
fjölmiðlar taka ítrekað málstað
kvenna, oft að illa grunduðu máli.
Þá er það með ólíkindum að sjá og
heyra hvernig kvenlögreglustjórinn í
Reykjavík setur hlutina fram. Er
barátta kvenna fyrir jöfnum rétti
orðin að einhverri allsherjarbaráttu
kvenna gegn öllu sem snertir karla!?
Svo virðist sem konur vinni leynt og
ljóst að sérhagsmunum kvenna hvar
sem þær starfa, og komist upp með
það óáreittar. Og það þó í þeirri hátt-
semi kunni að felast lögbrot.
Hæstiréttur hefur nýlega fellt úr
gildi þrjú nálgunarbönn lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Samt telur aðstoðarlögreglustjórinn
að Alþingi þurfi að aðlaga lög nr. 85/
2011 betur að „huglægu“ mati
lögreglustjóra svo hann geti betur
fjarlægt feður af heimilum þeirra, ef
honum/henni sýnist svo. Úthýst
manneskju sem er „grunuð“ um of-
beldi á heimili sínu. Á að sniðganga
réttarstöðu sakborn-
inga og neita þeim um
að geta borið ágreining
sinn undir dómstóla?
Er það ekki varasamt
fordæmi?
Hinn 25. febrúar sl.
vógu Femínistafélag Ís-
lands, Kvenna-
athvarfið, Kvennaráð-
gjöfin,
Kvenfélagasamband Ís-
lands, Kvenréttinda-
félag Íslands, Stígamót
og W.O.M.E.N. öll sem
eitt að niðurstöðum Hæstaréttar Ís-
lands í framangreindum málum.
Samtökin ganga svo langt að segja
„loksins þegar lögreglan sýnir vilja
til þess að beita lögum um nálg-
unarbann og láta á þau reyna“, þe.
eins og lögreglan hafi viðhaft óeðlileg
vinnubrögð undir stjórn karlmanns-
ins Stefáns Eiríkssonar? Hvað með
sönnunina? Hvar er meginreglan um
að allir séu saklausir uns sekt er
sönnuð? Hvað með hagsmuni
barnanna á heimilinu? Og hvað með
það ef konan segir ósatt og veitir sér
til dæmis áverkana sjálf? Konur hafa
veitt sér áverka oftar en fólk grunar
og kennt karlinum um. Karlar hafa
misst umgengnisrétt fyrir bragðið
þar sem á Íslandi er ríkjandi „kerf-
islæg mæðrahyggja“ þar sem konan
nýtur langoftast „vafans“, hvar er
réttlætið í því fyrir börnin? Þessi
þrýstingur á að „körlum“ verði einum
refsað með nálgunarbanni, þegar og
ef „grunur“ leikur á einhvers konar
heimilisofbeldi er sérstaklega áber-
andi nú eftir að kvenmaður varð lög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæð-
inu.Við skulum hafa í huga að konur
eiga ekki börnin einar, heldur feð-
urnir líka. Og í „jafnréttisþjóðfélagi“
á harðvítug deila milli konu og karls
ekki að þýða að kona hafi á grundvelli
kyns síns „kerfislægan rétt“ umfram
karlinn til að halda börnunum eða
heimilinu! Hvar er jafnréttið í því?
Karlkyns lögreglumaður tjáði sig í
fjölmiðlum 1. febrúar um gildi nálg-
unarbanns og sagði það ekki íþyngj-
andi! Það er ekki hlutverk lögreglu
að skera úr um „upphaf“ ósættis og
hvort það stafi af háttsemi konunnar
eða karlsins, slíkt er dómstóla að
fjalla um enda beinlínis gert ráð fyrir
því í lögunum. Manni sem er beittur
nálgunarbanni er verulega íþyngt
þar sem oftar en ekki er um leið tek-
ist á um rétt mannsins til umgengni
við börnin. Bannið getur staðið í vegi
fyrir því að maðurinn fái forræði eða
umgengni við börn sín. Þá eru það
börnin sem bera skarðan hlut frá
borði. En það vill enginn benda á það
í umræðunni! Því er nálgunarbann
augljóslega íþyngjandi úrræði! Bæði
maðurinn og börnin geta liðið fyrir
nálgunarbannið! Ófá dæmi hef ég séð
um rangan framburð kvenna í um-
gengnismálum. Ég hef séð konur fá
skriflegar staðfestingar frá kvenkyns
starfsmönnum Kvennaathvarfs,
Landspítala og annarra um að við-
komandi kona hafi leitað til þeirra
með áverka af hendi karlmannsins þó
alla sönnun á því skorti! Og svo hafa
slík skjöl verið lögð fram hjá sýslu-
mönnum af konum til að þær nái bet-
ur fram sínum sjónarmiðum. Þetta er
ekki eðlilegt. Þetta er „kerfislægt“
vandamál. Og við verðum að standa
vörð um að fólk komist ekki upp með
slíkt. Það er gríðarlega mikilvægt að
femínísk aðferðafræði verði ekki ofan
á við úrlausn ágreiningsmála, og alls
ekki hjá opinberum aðilum eins og
brögð virðast að. Sagan sýnir að
öfgahópar hafa oft náð gríðarlegum
tökum í samfélögum manna. Við
skulum hafa í huga að „femínismi,
rasismi, fasismi og nasismi“ eru allt
„isma“-stefnur sem eru öfgastefnur,
oftast minnihlutahópa sem gera sitt
ýtrasta til að berja niður með „ákefð“
allt sem fellur ekki að málstað þeirra.
Það er nú oftast svo að þessar „ómál-
efnalegu“ raddir kveða niður hóg-
værari raddir sem vekja með „mál-
efnalegum rökum“ máls á
„raunverulegri mismunun“, og þá
með offorsi og ákefð sem einkennir
öfgarnar sem að baki stefnum þess-
um búa. Ég vil meina að „mannrétt-
indabrot verði ekki bætt með mann-
réttindabrotum“. Ég vil ekki búa í
landi öfga og vitleysu heldur í landi
jafnræðis og samlyndis þar sem karl-
ar og konur eru ekki í keppni við
hvort annað, heldur vinna saman
hönd í hönd í sátt, ekki sundrung.
Hvað vilt þú?
Geta nálgunarbönn, kvenréttindi og mæðra-
hyggja leitt til mismununar eða lögbrota?
Eftir Jakob Inga
Jakobsson » Þá er það með ólík-
indum að sjá og
heyra hvernig kven-
lögreglustjórinn í
Reykjavík setur hlutina
fram.
Jakob Ingi Jakobsson
Höfundur er lögfræðingur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Garðsapótek með forystu
í aðalsveitakeppni BR
Garðsapótek er forystu eftir fjórar
umferðir af tólf í aðalsveitakeppni
Bridsfélags Reykjavíkur.
Staða efstu sveita:
Garðsapótek 67,01
Lögfræðistofa íslands 60,09
Butlerkóngar kvöldsins eru Rún-
ar Einarsson og Skúli Skúlason með
2,07.
Gullsmárinn
Spilað var á 13 borðum í Gull-
smára mánudaginn 2. mars.
Úrslit í N/S:
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 322
Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnas. 287
A/V
Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 322
Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 314
Spilað var á 12 borðum fimmtu-
daginn 5. mars.
Úrslit í N/S:
Viðar Valdimarsson - Óskar Ólason 216
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 198
A/V
Jón Ingi Ragnarss. - Sæmundur Árnas. 191
Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 183
Bjarki og Garðar byrjuðu best
Bjarki Dagsson og Garðar Garð-
arsson eru efstir í fjögurra kvölda
sveitarokki sem hófst sl. miðviku-
dag. Þeir skoruðu 53 impa.
Nýkrýndur Íslandsmeistari í tví-
menningi, Gunnlaugur Sævarsson,
er í öðru sæti ásamt Arnóri Ragn-
arssyni með 28. Með sömu skor eru
Hafsteinn Ögmundsson og Guðjón
Óskarsson en aðrir með minna eins
og sagt er stundum.
Önnur umferð verður nk. miðviku-
dagskvöld á Mánagrund en þar er
spilað um Reykjanesmeistaratitilinn
um helgina.