Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það er Mottumarskeppni ámilli hæða hér í húsinu ogvið ætlum auðvitað að rúllaþessu upp hér á fimmtu
hæðinni með því að leggja karlkyns
samstarfsmönnum okkar lið og nú
tilheyrum við Skeggi atvinnulífsins,
en svo heitir lið vinnustaðarins okk-
ar,“ segir Kristín Þóra Harðardóttir,
lögfræðingur hjá Samtökum at-
vinnulífsins, en hún og samstarfs-
konur hennar mættu allar til vinnu í
gær með myndarlegar mottur á efri-
vör.
„Ég verð að játa að skeggið fer
okkur ekkert sérstaklega vel og
fyrst þegar þetta var rætt leist sum-
um kvennanna ekkert meira en svo á
hugmyndina. En auðvitað er bara
gaman að taka þátt í sprellinu og þar
sem strákarnir hér í húsinu eru
hvattir til að taka þátt í Mottumars
með því að safna skeggi og áheitum,
þá vildum við ekki vera neinir eftir-
bátar þeirra. Svo við ákváðum að
taka þetta alla leið og mættum allar
galvaskar með mottu í vinnuna í
gærmorgun.“
Þeir voru alveg gapandi af
hrifningu og aðdáun
„Við vorum aðeins búnar að
vera að pukrast með þetta til að
koma körlunum á óvart og við vorum
skeggjaðar fram að hádegi. Við lét-
um það duga, engin okkar fór með
mottu út úr húsi.“
Kristín segir að fullt af fólki hafi
séð þær skeggjuðu konurnar í gær,
meðal annars verkalýðsleiðtogar í
röðum.
„Þeir voru alveg gapandi af
hrifningu og aðdáun. Og það var að-
ili hér í húsinu sem lýsti því yfir að
nú fyrst værum við sexí. En við-
brögð fólks voru þó mjög mismun-
andi og blendin, til dæmis fengum
við skilaboð frá einum sem lét eitt
orð duga til lýsa því sem fyrir augu
hans bar og það var orðið hryll-
ingur,“ segir hún og hlær.
Allir þekkja einhvern
Kristín Þóra segir að þær hafi
ekki aðeins verið skeggjaðar í hálfan
Skegg atvinnulífsins
massar Mottumars
Marga rak í rogastans í gær þegar skeggjaðar konur tóku á móti þeim hjá Sam-
tökum atvinnulífsins. Allir kvenkyns starfsmenn þar á bæ mættu til vinnu í gær-
morgun með mottu á efrivör, til að gleðja en fyrst og fremst til að leggja góðu mál-
efni lið. Skegg atvinnulífsins heitir lið vinnustaðarins og allar konurnar í því eru
skráðar í Mottumarskeppnina og safna þar áheitum fyrir karla sem þurfa að tak-
ast á við krabbamein. Ár hvert greinast um 750 íslenskir karlar með krabbamein.
Þorgerður Katrín Með fagurlega upprúllað skegg. Hér með Hrafnhildi.
Álfheiður Virðist eitthvað efins en hún tók sig vel út með mottuna sína.
PEN á Íslandi stendur fyrir viðburða-
röð á vormisseri í Grófarhúsi Borgar-
bókasafns í Tryggvagötu þar sem
málfrelsi og bókmenntir verða skoð-
uð frá ýmsum hliðum. Yfirskrift
fyrsta fundar sem verður í dag kl. 15-
16 er þátttaka Íslendinga í alþjóða-
samtökum rithöfunda, PEN og fer
hann fram á Reykjavíkurtorgi.
Nokkrir valinkunnir og skemmti-
legir menn ætla að segja frá
skemmtilegum hlutum.
Halldór Guðmundsson fjallar um
tengsl íslenskra rithöfunda við PEN á
millistríðsárunum og segir frá Arg-
entínuferð Halldórs Laxness, en hann
sótti heimsþing samtakanna þar í
landi.
Tómas R. Einarsson segir söguna
af Pablo Neruda á þessu sama þingi í
Argentínu.
Einar Kárason segir frá ferð sinni á
heimsþing PEN árið 2014 til Kirg-
isistan.
Sjón segir frá PEN International,
alþjóðasamtökum rithöfunda, Ís-
landsdeildinni og starfsemi samtak-
anna.
Ókeypis og öllum opið.
Á morgun, sunnudag, kl. 15-17 eru
barnadagar í Grófinni eins og verið
hefur og verður áfram fram í maí, frá-
bært tækifæri til að eiga gæðastund-
ir fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Á morgun ætlar enginn annar en
töframaðurinn Jón Víðis að vera með
smiðju í origami, en origami er jap-
önsk pappírslist sem hefur notið
mikilla vinsælda á Vesturlöndum. Ori-
gami gengur út á miserfið pappírs-
brot sem eru svo endurtekin á ýmsan
hátt eftir því hversu viðamikið verk-
efnið er. Ekkert þarf til nema pappír
og skæri og hæfilegan skammt af
þolinmæði. Það er stórskemmtilegt
að reyna sig við að búa til þrívíðar fí-
gúrur úr pappír.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Origami Japönsk pappírslist sem gaman er að reyna sig við.
Málfrelsi og origami í bókasafni
Hinar sérlega hressu konur sem
skipa kvennakórinn Heklurnar hafa
komið sér í stríðsárastemningu fyrir
vortónleika sína í Laugarneskirkju í
dag kl. 16. Á efnisskránni er bæði inn-
lend og erlend tónlist og þemað er
stríðsáratónlist með blöndu af göml-
um og nýjum dægurflugum, tónlist úr
óperum og óperettum og nokkrum
þjóðlögum. Lilja Eggertsdóttir er
stjórnandi og píanóleikari, Guðbjörg
Hlín Guðmundsdóttir leikur á fiðlu og
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.
Forsala miða: heklurnar@gmail.com
Frítt fyrir börn yngri en 16 ára. Ekki
tekið við greiðslukortum.
Endilega …
… hlustið á
Heklurnar
Heklurnar Fjallhressar söngkonur.
tölvum og ýmiskonar
snjalltækjum. Í dag
notar fjöldi fólks
snjallsíma til að lesa
og skrifa og oftar en
ekki er höfuðið fyrir
framan bolinn í hangandi
stöðu við þá iðju.
Árið 2012 var gerð rannsókn
Í tilefni Hönnunarmars verða í boði 25
blá epli sem Bjargey Ingólfs, iðjuþjálfi
og hönnuður Bara, hefur hannað og er
hvert eintak númerað. Bjargey segir
að eplapúðarnir séu heilsu- og lífs-
stílsvara, sérstaklega hönnuð til að
styðja undir framhandleggina og
henti því mjög vel þegar unnið er á
APPLE-tölvur og snjalltæki ýmiskonar
sem Macland hefur að bjóða. Hægt er
að nota eplapúðann á mismunandi
vegu til að hækka undir framhand-
leggi og olnboga svo þægilegra sé að
halda á snjallsíma í axlarhæð og ekki
sé þörf á því að lúta höfði til að sjá
skjáinn.
Á undanförnum árum hafa birst
greinar í íslenskum og erlendum fjöl-
miðlum um alvarlegan stoðkerfis-
vanda hjá fólki sem situr tímunum
saman með bogið bak og háls yfir
í HÍ á áhrifum af notkun eplapúðans
frá Bara á vöðvavirkni í herðum við
tölvuvinnu. Niðurstöður rannsókn-
arinnar sýndi marktækt minni með-
altalsvöðvavirkni í miðhluta axl-
arvöðva þegar eplapúðinn var notaður
sem framhandleggsstuðningur en án
hans, fyrir bæði hægri og vinstri
hendi.
Góður stuðningur undir
framhandleggina fyrir
framan bolinn getur því
haft mikið að segja
þegar unnið er með
höndunum. Auðvelt er
að hagræða og laga ep-
lapúðann að sér eins og
hverjum og einum finnst
best, til að létta þunga
handleggjanna og minnka
þannig tog á axlarliðina.
Hönnunarmars kynnir 25 blá Bara-epli í APPLE-veröld Maclands á Laugavegi 23
Stuðningur undir framhandleggi getur haft
mikið að segja þegar unnið er með höndunum
Púði veitir stuðning.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Maturogmannlíf
Verð frá
á mann í tvíbýli – flug, hótel og mikill matur
*Verð án Vildarpunkta 173.900 kr.
Fararstjóri er Sigurlaug M. Jónasdóttir
Flogið með Icelandair
163.900 kr.*
Róm30.apríl –4.maí
og 12.500 Vildarpunktar