Morgunblaðið - 14.03.2015, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 14. MARS 73. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Með verstu spám sem sést hafa
2. Hundfúl með kjól sem hún …
3. Sá mesti í 61 ár
4. „Engir kjánar Íslendingarnir“
Mottusafnari dagsins er Róbert
Birgir Agnarsson en stjúpi hans lést
úr krabbameini fyrir rétt rúmu ári.
Róbert er mottusafnari nr. 1.128.
Fylgstu með honum og öðrum söfn-
urum á mottumars.is
Motta í minningu
elskulegs stjúpa
Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ
opnar á morgun kl. 15 fyrstu sérsýn-
ingu sína sem stóð til að opna í dag en
var frestað um einn dag vegna slæmr-
ar veðurspár. Á sýningunni er tónlist-
armaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson
tekinn fyrir og ber hún yfirskriftina
„Páll Óskar – Einkasafn poppstjörnu“.
Páll Óskar verður 45 ára á mánudag-
inn og segir í tilkynningu frá safninu
að því sé tilvalið að opna yfirlitssýn-
ingu um líf hans og störf þessa
ákveðnu helgi. „Páll Óskar er mikill
safnari og mun sýningin verða sterkur
vitnisburður um það,“ segir um sýn-
inguna. Á henni verða m.a. sérhann-
aðir búningar og fatnaður af tón-
leikum hans – allt frá Rocky
Horror-sýningu Leikfélags MH frá
árinu 1991 til dagsins í dag, handskrif-
aðar dagbækur, teikningar frá barn-
æsku og hinn margumræddi Nokia
6110 sími sem hann átti í ein 14 ár.
Sýningin verður gagn-
virk og geta gestir
m.a. sungið „Palla-
lög“ í hljóðveri og
tekið upptökuna
með sér heim. Frek-
ari umfjöllun um
sýninguna má finna í
sunnudagsblaði
Morgunblaðsins.
Fyrsta sérsýningin
fjallar um Pál Óskar
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan og sunnan 20-30 m/s og talsverð rigning um sunn-
anvert landið en úrkomuminna fyrir norðan. Dregur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hlýnar.
Á sunnudag Suðlæg átt, lengst af 5-13 m/s, en hvessir er líður á daginn og hvassviðri
eða stormur um kvöldið með talsverðri rigningu suðaustantil. Víða slydda og síðar rign-
ing og hlýnandi veður, en hiti um frostmark norðvestantil og dálítil snjókoma. Á mánu-
dag Stíf suðlæg átt með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið um landið norðanvert.
„Miðað við leiki okkar á móti þessum
liðum undanfarið hafa SR-ingarnir ver-
ið mun sprækari en reynslan fyrir
norðan er gífurleg. Þeir kunna þetta
og þeir vinna alltaf. Einhvern veginn
ná þeir alltaf að koma sér í gegnum úr-
slitarimmurnar á einhverri seiglu,“
segir Gunnar Guðmundsson, fyrirliði
íshokkíliðs Esjunnar, um úrslitaeinvígi
SR og SA sem hefst annað kvöld. »3
Þeir kunna þetta og
þeir vinna alltaf
„Þetta er mikið áfall. Ég var
loksins farin að taka þátt í
sóknarleik á æfingum þegar
þetta gerðist. Mér hafði geng-
ið afar vel. Þar af leiðandi var
ég bæði glöð og spennt fyrir
framhaldinu og að sjá fram á
að geta beitt mér af fullum
krafti í handboltanum. Ég get
bara engan veginn skilið
þetta,“ sagði Þorgerður Anna
Atladóttir sem sleit kross-
band í hné í fyrrakvöld. »4
Get bara engan
veginn skilið þetta
Körfuboltamaðurinn efnilegi Krist-
ófer Acox hefur staðið sig vel í
bandarísku háskóladeildinni og nú
ætlar hann að gera atlögu að því að
komast í íslenska landsliðið. „Það
væri draumur að spila með þessum
stjörnum sem hafa spilað með
íslenska landsliðinu síðustu
ár. Allir vilja auðvitað reyna
að komast í EM-hópinn og ég
verð heima í sumar til að
æfa og reyna að vinna
mér sæti í
hópnum,“
segir
Kristófer.
»1
Draumur að spila með
þessum stjörnum
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Okkur langaði að vera með
stelpulið en það gekk ekki, því
miður. Við tókum þess vegna Stef-
án með okkur í liðið því það mega
vera þrír saman í liði,“ segir Sóley
Benediktsdóttir
en hún er í lið-
inu Disabled
Cookies, ásamt
Aðalbjörgu Guð-
mundsdóttur og
Stefáni Jóns-
syni, sem tekur
þátt í forritunar-
keppni fram-
haldsskólanna.
Keppnin hófst
í gær með kynn-
ingarfundi og í morgunsárið var
blásið til leiks. Er búist við að
keppni standi fram á kvöld. Met-
þátttaka er í keppninni en 50 lið
eru skráð til leiks, yfirleitt tveir
til þrír saman í liði.
Sóley segir að fjölskylda sín
vinni við forritun og áhuginn komi
þaðan. Hún geti alveg hugsað sér
að starfa við forritun þegar hún
verði eldri en framtíðin er töluvert
langt í burtu og því nægur tími til
að ákveða sig.
„Ég er ekki búin að forrita lengi
en ég er góð í stærðfræði og þetta
tengist því. Það er gott að vera
góð í stærðfræði þegar kemur að
forritun,“ segir Sóley.
Lítið kennt af forritun í skólum
Keppnin er fyrir nemendur í
framhaldsskólum sem hafa áhuga
á hönnun, forritun og tölvum.
Verðlaunin eru vegleg en sig-
urliðin fá meðal annars skólagjöld
í eina önn við HR felld niður auk
annarra vinninga.
Hjalti Magnússon, kennari í
tölvunarfræði við Háskólann í
Reykjavík og einn af skipuleggj-
endum keppninnar, segir að
kennsla í forritun í framhalds-
skólum landsins sé ekki ýkja mik-
il. Flestir keppendur hafi fiktað
eitthvað í forritun af áhuga og
séu því að nokkru leyti sjálf-
lærðir.
Læra forritun sjálfir
„Það eru fimm stelpur að keppa
í ár sem er ekki mjög mikið því
það er metþátttaka í ár.
Tækniskólinn og Framhalds-
skólinn á Suðurnesjum eru einu
skólarnir með sérstaka tölvudeild
en flestir framhaldsskólar kenna
einhverja tölvuáfanga. Flestir
keppendur eru að læra forritun
sjálfir og standa nokkuð vel að
vígi,“ segir Hjalti.
Framhaldsskólanemar forrita
Metþátttaka í
forritunarkeppni
framhaldsskólanna
Morgunblaðið/Kristinn
Keppni Metþátttaka er í keppninni í ár en 50 lið eru skráð til leiks, oftast tveir til þrír í liði. Fimm stelpur taka þátt í ár.
Hjalti
Magnússon
Það er keppt í þremur deildum,
kósínus-, sínus- og pí-deildum.
Kósínus og sínus eru það sem
kalla mætti erfiðu deildirnar en
pí-deildin er fyrir nemendur sem
eru byrjendur.
Í kósínus-deildinni er lögð
áhersla á þróun hugbúnaðar, að
þróa kerfi eins og að gera heima-
síðu eða vefsíðu. Þeir fá eitt
stórt verkefni og dómarar meta
hvaða verkefni skara framúr þar.
Sínus er þrautalausn sem er
líkari stærðfræði og eðlisfræði.
Keppendur leysa mörg smá verk-
efni og einnig heldur stærri verk-
efni sem reyna á rökhugsun og
útfærslu á lausnaraðferðum.
Pí er einfaldari og hugsuð fyir
þá sem eru að byrja að fikra sig
áfram í forritun. Flestir nem-
endur sem taka þátt í þessari
deild hófu nám í forritun nú í
haust.
Rökhugsun og stærðfræði
KEPPNISFYRIRKOMULAGIÐ