Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 4

Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Ísland er það Evrópuland sem færð- ist mest upp lista ráðagjafarfyr- irtækisins Bloom Consulting sem sýnir „túristavísitölu“ einstakra landa. Ísland er þó enn neðarlega á lista, í 33. sæti af 41 Evrópu- landi. Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri hjá Ferðamála- stofu, segir að Ís- land sé eitt fárra Evrópuríkja þar sem enn er svig- rúm til vaxtar í ferðaþjónustu. Bloom gefur Íslandi einkunnina BBB sem er sú 4. hæsta af tíu ein- kunnum sem hægt er að fá og stendur fyrir Very good. Nokkrir þættir eru lagðir til grundvallar einkunninni: tekjur af ferðamönn- um, hversu mikið er leitað á netinu að upplýsingum sem tengjast ferða- lögum í viðkomandi landi, starfsemi ferðamálayfirvalda í hverju landi og hvernig landið er kynnt á netinu og samfélagsmiðlum Sex Evrópulönd fá hærri einkunn í ár en í fyrra og er Ísland eitt þeirra. Í skýrslunni segir að hækk- andi gengi Íslands megi m.a. skýra með betri markaðssetningu á net- inu. „Ísland er ekkert stórveldi í ferðabransanum en miðað við fjölda ferðamanna og fjölda lands- manna, þá held ég að það séu fá lönd sem eru með sama hlutfall,“ segir Halldór Arinbjarnarson, upp- lýsingastjóri hjá Ferðamálstofu. „En þó að umfang ferðaþjónustu sé mikið í augum okkar Íslendinga er það lítið á alþjóðavísu.“ Svigrúm til vaxtar Halldór segir fá lönd í Evrópu hafa vaxið jafn mikið að þessu leyti og Ísland, hér sé svigrúm til vaxtar, öfugt við mörg gamalgrónari ferða- mannalönd. „Það eru helst Austur- Evrópuríki sem hafa verið að sýna svipaðan vöxt,“ segir Halldór og vitnar í skýrslu Ferðamálaráðs Evrópu, ETC fyrir síðasta ár þar sem fram kemur að mesta fjölgun erlendra ferðamanna í aðild- arríkjum ETC hafi verið á Íslandi. „Næst komu Lettland og Serbía, en voru þó ekki nema hálfdrættingar.“ annalilja@mbl.is Ísland fær ein- kunnina BBB eða Very Good  Ísland er hástökkvari ársins á al- þjóðlegum lista yfir ferðaþjónustu Morgunblaðið/RAX Ferðamenn á Íslandi Þeim hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Halldór Arinbjarnarson „Á meðan það er engin byggða- festa á aflaheimildum, þá er ekki hægt að tryggja fullkomið atvinnuöryggi,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga. „Þarna er ekki verið að tryggja eitt né neitt í raun og veru. Kvótinn, sem allt snýst um, hann er ennþá bundinn fyr- irtækjunum og hann getur farið hvenær sem fyrirtækin fara á brott. Maður verður þó bara að reyna að vera bjartsýnn á það að þessir aðilar sem eru að koma þarna inn ætli sér að vera þarna eitthvað áfram,“ segir hann. Segir ekkert tryggt án byggðafestu á aflaheimildum Útgerðarfyrirtækið Vísir hf. hefur selt fasteignir sínar á Þingeyri, ásamt tækjum og búnað til fisk- vinnslu. Kaupandinn er Íslenskt sjávarfang sem stefnir að því að fjölga störfum við fiskvinnslu á Þing- eyri frá því sem nú er og vinna og frysta þar allt að 4.000 tonn af fiski á ári. Ákvæði tryggir störf Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum tveimur þar sem jafnframt segir að markmiðið með kaupsamningnum sé að viðhalda og efla atvinnulíf á Þingeyri og að kaup- verðið taki mið af því. Kaupverðið hækkar um 50 milljónir króna standi Íslenskt sjávarfang ekki við þau ákvæði samningsins að halda uppi fullri atvinnustarfsemi á staðnum í fimm ár og vera með að minnsta kosti 20 stöðugildi. Haft er eftir Pétri Hafsteini Páls- syni, framkvæmdastjóra Vísis, að þessi ákvæði samningsins séu afar mikilvæg því þau tryggi að starfsfólk Vísis á Þingeyri geti haldið áfram störfum við fiskvinnslu á staðnum eftir að Vísir flytur starfsemi sína til Grindavíkur um næstu mánaðamót. Samið við smábátaeigendur Þá er haft eftir Rúnari Björgvins- syni, framkvæmdastjóra Íslensks sjávarfangs, að fyrirtækið stefni að því að fjölga starfsfólki við fisk- vinnsluna á Þingeyri úr 20 í 30. Búið sé að tryggja fyrirtækinu nægilegan afla með samningum við eigendur smábáta á svæðinu, dragnótabátsins Egils frá Þingeyri og þriggja togara. Stefnt að fjölgun starfa  Fyrirtækið Íslenskt sjávarfang hefur keypt fasteignir og tæki Vísis á Þingeyri  Segja markmiðið með viðskiptunum að viðhalda og efla atvinnulíf á staðnum Ákvæði um fimm ár » Stefnt er að því að vinna og frysta allt að 4.000 tonn af fiski á ári. » Kaupverðið hækkar um 50 milljónir króna verði ekki stað- ið við ákvæði samningsins að halda uppi fullri atvinnu- starfsemi á staðnum í fimm ár. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sameiginlegar kjarakröfur iðnaðar- manna voru lagðar fram í gær á fundi með Samtökum atvinnulífsins. Þar er gerð krafa um endurskoðun núverandi launakerfa. Byrjunarlaun iðnaðar- manns með sveinspróf hækki um nærri 100 þúsund krónur og verði kr. 381.326 á mánuði og almenn hækkun verði 20%. Samkvæmt útreikningum iðnaðarmanna verða heildarkostnað- aráhrifin 23,2%. Lægstu kauptaxtar muni hækka meira eða um allt að 37%, en kostnaðaráhrifin af þeirri breytingu séu rúm 3% þar sem kauptaxtar færist nær raunlaunum á markaði, en tiltölu- lega fáir fái laun samkvæmt samnings- bundnum töxtum. Verði samið til lengri tíma en eins árs er gerð krafa um að laun verði verðtryggð. Í kröfugerðinni segir að verðbólga hafi verið lág, en afnám gjaldeyrishafta valdi óvissu. „Ef og þegar þær hugmyndir koma til fram- kvæmda mun íslenska krónan veikj- ast verulega til skamms tíma og jafn- vel til lengri tíma litið. Verði samið til lengri tíma en eins árs við þessar að- stæður er óhjákvæmilegt annað en að verðtryggja laun til að tryggja þann kaupmáttarauka sem samið verður um,“ segir í kröfum iðnaðarmanna. Hafa dregist aftur úr Hilmar Harðarson, formaður Sam- iðnar, segir að hópar iðnaðarmanna hafi dregist aftur úr á síðustu árum. Þannig hafi launavísitala taxta iðnað- armanna hækkað um 64,1% frá árinu 2006, en launavístalan hafi á sama tíma hækkað um 74,9%. Í lægstu töxtum innan raða iðnaðarmanna sé gert ráð fyrir 1601 króna greiðslu fyrir hverja klukkustund, en meðallaunin séu í raun 2400 krónur á tímann. Flestir hópar iðnaðarmanna njóti svokallaðra markaðslauna, þó svo að dæmi séu um annað sums staðar á landsbyggðinni. Hilmar segir að þessi gjá gæti skapað jarðveg fyrir undirboð og mis- notkun verði ekki gerðar lagfæringar með því að færa taxta að greiddum launum. Með þetta í huga hafi verið sett fram krafa um leiðréttingu á taxtalaunum upp á 17,5% og síðan al- menna taxtahækkun upp á 20%. Um 18 þúsund manns Félög iðnaðarmanna sem standa sameiginlega að kröfugerðinni eru Rafiðnaðarsamband Íslands, MAT- VÍS, Félag hársnyrtisveina, Félag bókagerðarmanna, Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna og Samiðn, sam- band iðnfélaga, en í Samiðn eru 12 að- ildarfélög. Hilmar segir að þessi sam- bönd og félög hafi ekki áður sett fram sameiginlega kröfugerð, en innan vé- banda samflotsins eru um 18 þúsund manns. Áður hafa félög og sambönd lagt fram sérkröfur sínar. Næsti fundur um kröfurnar verður á föstu- dag eftir viku. Morgunblaðið/Ómar Kjaraviðræður Margir hópar iðnaðarmanna standa að baki kröfunum sem kynntar voru í gær. Myndin er tekin við Garðatorg í Garðabæ. Vilja verðtryggja laun  Hópar iðnaðarmanna kynntu sameiginlegar kjarakröfur  Byrjunarlaun iðnsveins verði 381 þúsund á mánuði „Því miður er ekki mikil skynsemi í þessari kröfugerð og það verður afskaplega erfitt að vinna út frá henni,“ sagði Þorsteinn Víglunds- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um kröfur iðn- aðarmanna. „Fyrir það fyrsta sýnist okkur að þarna sé verið að fara fram á 30- 40% launahækkun á tólf mánaða tímabili. Það gefur augaleið að slíkt getur aldrei gengið upp innan einhvers verðlagsstöðugleika og setur stöðuna í heildarviðræðum á vinnumarkaði í mjög einkennilega stöðu. Annars vegar er verið að biðja um sérstaka hækkun á lægstu launin, en síðan kemur tekjuhópur eins og iðnaðarmenn, sem er með meðallaun nokkuð yfir með- allaunum í þjóðfélaginu, og út frá einhverju viðmiði sem þeir hafa fundið sér telja þeir sig þurfa sér- staka launahækkun umfram aðra. Það er erfitt að móta heildstæða línu í kjaraviðræðum út frá slíku.“ Spurður um kröfu um verð- tryggingu verði samið lengur en til eins árs segir Þorsteinn: „Það kæmi aldrei til greina af hálfu SA að semja um verðtryggingu í kjara- samningum. Svo ekki sé talað um að ef þessar kröfur yrðu ofan á þá færi hér af stað mikil verðbólga og að ætla sér að verðtryggja slíkan samning væri sama og að búa til vítisvél víxlhækkana launa og verðlags sem kemur ekki til greina.“ Þarf samstöðu meðal ólíkra tekjuhópa Almennt um stöðuna segir Þor- steinn að Samtök atvinnulífsins séu reiðubúin að horfa til þess hvernig hækka megi grunnlaun á móti lækkun álagsgreiðslna, eins og vegna yfirvinnu og vaktavinnu sem séu mjög háar, í norrænu samhengi, hér á landi. „Í því sambandi mætti horfa sér- staklega til lægstu launa líkt og háværar kröfur eru uppi um, en forsenda þess er að um það náist samstaða meðal ólíkra tekjuhópa því ef einhverjir eiga að hækka meira en aðrir, verður líka að vera sátt um það hverjir eiga að hækka minna,“ segir Þorsteinn. Ekki mikil skynsemi í kröfunum ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI SA Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur | Sími 514 1400 | sumarferdir.is MALLORCA 23.–30. júní VIVA Can Picafort FRÁ95.150 kr. Verð á mann m.v. þrjá fullorðna og eitt barn í íbúð með einu svefnherbergi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.