Morgunblaðið - 14.03.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.03.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórn Bláskógabyggðar vinnur að afgreiðslu deiliskipulags fyrir Geysissvæðið. Það er grund- vallað á vinningstillögu í hug- myndasamkeppni sem kynnt var fyrir ári. Oddviti sveitarfélagsins segir að málið sé komið vel á veg. Framkvæmdasjóður ferða- mannastaða veitti Bláskógabyggð styrk til að efna til hugmynda- samkeppni um skipulag og hönnun á Geysissvæðinu. Hluti fjármagns- ins er notaður í þá deiliskipulags- vinnu sem staðið hefur yfir í vetur. Málið hefur verið til umfjöllunar í skipulagsnefnd uppsveita Árnes- sýslu sem Bláskógabyggð á aðild að og nú síðast hjá sveitarstjórn. Vegurinn ekki færður að sinni Í vinningstillögunni var gert ráð fyrir færslu þjóðvegarins suður fyrir þjónustukjarnann í þeim til- gangi að bæta tengingu á milli hverasvæðis og þjónustu. Ekki er fjallað um þá hugmynd í deili- skipulagsvinnunni, aðeins hvera- svæðið sjálft, norðan vegarins. Helgi Kjartansson, oddviti Blá- skógabyggðar, segir að tekið verði á hugmyndinni um færslu þjóðveg- arins við endurskoðun aðal- skipulags sveitarfélagsins sem væntanlega lýkur á næsta ári. Umræða varð um fyrirliggjandi drög að deiliskipulagi í sveit- arstjórn og tekið undir athuga- semdir skipulagsfulltrúa sem fram komu í minnisblaði. Helgi segir að þetta séu minniháttar lagfæringar. Niðurstaðan var að hvetja skipulagsráðgjafa til að halda áfram vinnu við deiliskipulagið og láta ekki skipulagsmál aðliggjandi svæða hægja á framvindu verks- ins. Skipulag er fyrsta skrefið Helgi segir að sveitarfélagið ein- beiti sér að því að ljúka vinnu við deiliskipulagið. Þegar tillögurnar verða tilbúnar þurfa þær að fara í lögbundið umsagnarferli. Vonast hann til að skipulagið verði stað- fest síðar á þessu ári. Hann segir of snemmt að ræða um framkvæmdir á hverasvæðinu. Ekkert sé fast í hendi í því efni. Reiknar hann þó með því að sveit- arfélagið muni fylgja málinu eftir. „Það hefur lengi verið rætt hvað gera þurfi. Nú er farið að sjá fyrir endann á skipulaginu og það er fyrsta skrefið.“ Teikning/Landmótun Hverasvæði Pöllum og stígum var sérstaklega hælt í umsögn dómnefndar um vinningstillögu Landmótunar. Þeir munu opna aðgang að fleiri hverum. Skipulag Geysis- svæðis að fæðast  Ekkert fast í hendi um framkvæmdir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ragnheiður Elín Árnadóttir við- skiptaráðherra segir að frumvarpið um breytingar á lögum um endur- skoðendur, sem fjallað var um í Morgunblaðinu í gær og var flutt á síðasta þingi, verði ekki endurflutt. Sofnaði í nefnd „Þetta mál var lagt fram á sein- asta þingi og það má segja að það hafi sofnað í efnahags- og viðskipta- nefnd, m.a. vegna neikvæðra um- sagna um frumvarpið. Ég hef ákveð- ið að endurflytja málið ekki, enda er að koma ný Evróputilskipun um endurskoðendur, þannig að við sáum fram á að við þyrftum að fara í heild- arendurskoðun á lögunum,“ sagði Ragnheiður Elín í samtali við Morg- unblaðið í gær. Ragnheiður El- ín sagði að þetta mál kæmi af þess- um sökum ekki aftur fram á þessu þingi. „Við höfum áform um að end- urskoða lögin í heild, vonandi strax í haust, og fara yfir þessa nýju tilskipun um endurskoðendur frá Evrópusambandinu og aðlaga endurskoðuð lög um endurskoðend- ur að henni,“ sagði viðskiptaráð- herra. Ýmis álitamál Varðandi hina nýju tilskipun hafi verið ýmis atriði og álitamál, sem upp hafi komið, sem jafnframt komu fram í ákveðnum umsögnum um frumvarpið frá í fyrra, sem Alþingi þyrfti að taka afstöðu til, við heildar- endurskoðun laganna. „Það verður því ekkert að frétta af þessu máli á þessu þingi,“ sagði Ragnheiður Elín. Ákvörðun eftir helgi Ráðherra var spurð hvenær hún tæki ákvörðun um það hvort hún færi að tillögu endurskoðendaráðs um að svipta Guðmund Jóelsson, lög- giltan endurskoðanda til 40 ára, starfsleyfi, eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu undanfarna daga. Guðmundur neitar því að al- þjóðlegir endurskoðunarstuðlar hafi lagagildi hér á landi þar sem þeir hafa hvorki verið þýddir á íslensku, né birtir. „Þetta mál er í vinnslu hér í ráðu- neytinu,“ sagði Ragnheiður Elín, „og ég á von á því að erindið komi inn á mitt borð strax eftir helgi.“ Lögin endurskoðuð  Viðskiptaráðherra segir að frumvarpið um breytingu á lög- um um endurskoðendur verði ekki endurflutt á þessu þingi Ragnheiður Elín Árnadóttir KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 25 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 Nintendo New 3DS • Spilar 3DS og DS tölvuleiki. • Ný og betri stjórnun. • Öflugri örgjörvi og nýr netvafri. • NFC stuðningur við Amiibo karaktera. • Ný og betri 3D tækni sem eltir augun. • Betri myndavél og þráðlaus yfirfærsla á gögnum. Nintendo New 3DS XL Nýkomin, ný og öflugri Lágmúla 8 • Sími 530 2800 kr. 39.900,- kr. 46.900,- 3.88” 3.33” 4.88” 4.18” Gott úrval leikja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.