Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
✝ Knútur Jóns-son fæddist í
Kálfholtshjáleigu í
Ásahreppi í Rang-
árvallasýslu 20. júlí
1929. Hann lést á
dvalarheimilinu
Hjallatúni í Vík í
Mýrdal 4. mars
2015.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Jónsson frá Hár-
laugsstöðum, f. 12. janúar 1897,
d. 3. október 1970, og Rósa Run-
ólfsdóttir frá Snjallsteinshöfða,
f. 8. febrúar 1908, d. 12. júlí
1987. Systkini Knúts eru: Guð-
rún, f. 22. maí 1928, d. 16. mars
2014, Sigurður, f. 23. júlí 1931,
Sigrún, f. 18. janúar 1933, Jón
Vídalín, f. 27. júní 1934, Her-
borg, f. 4. maí 1936, d. 7. desem-
ber 2005, Helgi, f. 31. ágúst
1937, d. 12. janúar 1997, Inga, f.
3. ágúst 1939, Lóa, f. 29. maí
1941, Kristín, f. 26. júní 1943,
Ásta, f. 24. mars 1945, María, f.
20. október 1947, d. 5. júlí 1949,
Maja, f. 21. júní 1950, Ólafur
Arnar, f. 12. desember 1951, og
Kristín Herríður, f. 21. október
1953, d. 11. desember 1957.
Knútur ólst upp í stórum
systkinahópi hjá foreldrum sín-
um á Herríðarhóli. Hann naut
hefðbundinnar barnafræðslu í
farskóla, m.a. á Hárlaugsstöð-
um og í Kálfholti eins og tíðk-
aðist á hans uppvaxtarárum.
Hann fór snemma að vinna fyrir
sér, til að byrja með einkum hjá
frændum sínum á Hárlaugs-
stöðum. Hann hélt áfram
menntagöngu sinni, fór eitt ár í
íþróttakennaraskólann á Reykj-
um í Hrútafirði og síðan í Hér-
aðsskólann á Laugarvatni, þar
sem hann útskrif-
aðist sem stúdent
1955. Þremur árum
síðar hélt Knútur
utan til náms í Aac-
hen í Þýskalandi.
Las hann fyrst
verkfræði en síðar
bygging-
artæknifræði og
lauk námi sem
byggingartækni-
fræðingur. Á náms-
árunum kom hann ávallt til Ís-
lands á sumrin og vann fyrir
náminu, einkum á þungavinnu-
vélum við vegagerð. Þótti hann
harðduglegur og ósérhlífinn við
þau störf. Að námi loknu starf-
aði Knútur árum saman við
byggingar- og framkvæmdaeft-
irlit m.a. hjá Vegagerðinni og
Rafmagnsveitum ríkisins. Þá
fékkst hann við gerð bygging-
arteikninga, útreikninga á
burðarþoli og önnur verkefni á
sínu fagsviði. Síðar fékkst hann
einnig við kennslustörf, þar sem
nýttist vel færni hans í raunvís-
indum, einkum stærðfræði og
eðlisfræði. Knútur var grúskari
og var stöðugt í þekkingarleit á
öllum sviðum, allt frá lækn-
isfræði til stjörnufræði og
mannkynssögunnar. Hann var
tungumálamaður, áhugamaður
um framandi menningu og hafði
yfirgripsmikla þekkingu á
sögulegum atburðum. Hann
ferðaðist talsvert síðustu ára-
tugina og hafði mikla ánægju af
því að sjá ólíka menningar-
heima.
Útför Knúts fer fram frá
Kálfholtskirkju í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu á morgun, 15.
mars 2015, og hefst athöfnin
klukkan 11.
Er nú kvaddur frændi minn,
Jón Knútur Jónsson, ávallt kall-
aður Knútur. Orðin að dauðinn sé
líkn frá kvölum eiga hér vel við.
Síðustu vikurnar hafði krabba-
mein sem Knútur greindist með
fyrir rúmlega þremur árum
ágerst mjög og þótt fáir vilji
leggja í hið óljósa ferðalag var það
eigi umflúið. Á áttugasta og sjötta
aldursári kvaddi Knútur á dval-
arheimilinu Hjallatúni í Vík í
Mýrdal þar sem hann hafði notið
einstakrar umhyggju starfsfólks
síðustu vikurnar. Knútur var al-
inn upp í stórum systkinahópi á
Herríðarhóli, og var snemma ljóst
að hugur hans lægi ekki við bú-
skapinn. Hann lauk stúdentsprófi
frá Héraðsskólanum á Laugar-
vatni og hélt síðan til náms í
Þýskalandi árum saman. Ávallt
kom hann til Íslands á sumrin og
vann fyrir dvöl sinni ytra. Knútur
var bráðgreindur og víðlesinn,
hafsjór fróðleiks um stjórnmál og
sögu, mikill áhugamaður um
ferðalög og framandi menningu.
Hann fylgdist ávallt vel með
stjórnmálum, dægurþrasi og
mannlífinu á Íslandi. Hann undi
hag sínum nokkuð vel í Kópavogi
þar sem hann bjó einn allt þar til
hann lagðist inn á Landspítalann í
desember síðastliðnum. Í veikind-
um sínum á krabbameinsdeild
Landspítalans ræddum við um af-
sögn innanríkisráðherra, sá Knút-
ur á því grátbroslega hlið eins og
öðru. Áttatíu og fimm ár eru lang-
ur tími, það var af auðmýkt sem
Knútur nálgaðist endalokin og
leitaði hugur hans undir það síð-
asta aftur á heimaslóðirnar í Holt-
unum. Taldi hann þó mesta óþarfa
að standa í því að flytja sig þangað
til greftrunar eftir sína daga, en
jú, honum þætti vænt um að hvíla
hjá skyldmennum sínum. Það er
gott að geta orðið við hinstu ósk
aldraðs frænda sem þrátt fyrir
allt var hvíldinni feginn. Að hætti
sannra ferðalanga segi ég: „Góða
ferð, frændi!“
Oddur Þórir Þórarinsson.
Eftir stutt en erfið veikindi hef-
ur Knútur frændi minn kvatt
þennan heim. Það er vissulega
margs að minnast. Knútur kom
reglulega í heimsókn til foreldra
minna á æskuárum mínum. Oft
var hann á ferð um áramót og
man ég vel eftir að hann hafði
meðferðis nokkrar stórar rakett-
ur sem bæði vöktu forvitni og
ánægju hjá okkur krökkunum.
Síðar varð að venju að Knútur
kom alltaf og dvaldi hjá okkur yfir
jólin. Fyrsta ferð hans austur í
sveitir gekk þó ekki þrautalaust
fyrir sig. Var hann á ferð í myrkri,
á Volkswagen-bifreið og fann með
engu móti réttan afleggjara.
Þetta var fyrir tíma farsímanna.
Knútur dó þá ekki ráðalaus, tók
fram svefnpokann og stóran
plastpoka sem hann hafði með-
ferðis og lagðist til svefns undir
berum himni. Hann lét vel af nótt-
inni og taldi aðstæður allar hinar
bestu.
Með árunum varð maður þess
betur og betur áskynja hversu
Knútur var vel lesinn. Hann var
einnig víðförull og minnugur og
hafði gaman af því að segja sögur
af samferðafólki sínu. Þær féllu
jafnan í góðan jarðveg enda hafði
hann lag á að sjá grátbroslegar
hliðar tilverunnar. Hann fylgdist
vel með fréttum allt fram á síðasta
dag. Knútur hringdi stundum í
mig seinni árin, aðallega til að
ræða málefni líðandi stundar. Þau
símtöl verða ekki fleiri að sinni.
Ég hafði gaman af þessum símtöl-
um. Hann hafði sterkar skoðanir
á hlutunum, var vel inni í málum
og þótt við værum ekki alltaf sam-
mála skildum við alltaf sáttir.
Fyrr eða síðar hringdi Knútur
aftur. Umræðuefnið var þá annað
en í síðasta símtali en alltaf var
nóg um að tala. Knútur hafði
seinni árin afar gaman af því að
fara til útlanda, fór ófáar ferðir
með Bændaferðum og drauma-
ferðina fór hann fyrir nokkrum
árum til Madeira. Á þessum ferð-
um lifði hann lengi eftir að heim
var komið. Nú hefur Knútur lagt
upp í sína síðustu ferð í þessu lífi.
Hvíl í friði frændi með þökk fyrir
samfylgdina.
Eggert Þröstur Þórarinsson.
Knútur Jónsson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með
virðingu og umhyggju
að leiðarljósi
Þegar
andlát ber
að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Rósa Kristjánsdóttir
útfararstjóri
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðiþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Við þökkum öllum þeim sem hafa sýnt
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
MÁS ELÍSSONAR
hagfræðings.
Sérstakar kveðjur sendum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sóltúns með þakklæti fyrir einstaka alúð
og nærgætni við umönnun Más.
.
Guðríður Pétursdóttir,
Pétur Másson, Edwina Aquino Masson,
Elís Másson,
Marteinn Másson, Margrét Ásgeirsdóttir,
Þóra Másdóttir, Magnús Ólason,
Gróa Másdóttir, Ægir Jóhannsson,
Patrick Sigurður, Arnór Pétur, Jarrett Már,
Ásgerður, Þórhildur, Már, Anna Guðný, Marta,
Örn og Jóhann.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
MARINÓ VIBORG GUÐMUNDSSON,
Sóltúni 2,
áður til heimilis að Seljabraut 12,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 3. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sóltúns fyrir góða umönnun.
.
Marinó Viborg Marinósson, Vala Úlfljótsdóttir,
Sigurður Rúnar Marinósson, Helena Sveinbjörnsdóttir,
Jónas P. Marinósson, Helga Rós Einarsdóttir,
María H. Marinósdóttir, Halldór Halldórsson,
Arndís Björk Marinósdóttir,
Helgi Rafn Marinósson, Katrín Óladóttir
og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
hlýjar kveðjur við andlát og útför elskulegrar
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ERLU DALRÓSAR GÍSLADÓTTUR
sjúkraliða,
Hólabergi 84,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá starfsfólk taugalækningadeildar 2B fyrir
hlýlega umönnun og einstaka velvild.
.
Lovísa Birgisdóttir,
Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, Guðmundur Jónasson,
Pétur Birgisson, María Aðalbjarnardóttir,
Gísli Kristján Birgisson, Elín Eva Lúðvíksdóttir,
Ágústa Hera Birgisdóttir,
Hlynur Freyr Birgisson, Stefanía Arnardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
MARGRÉTAR VIKTORÍU
MAGNÚSDÓTTUR,
Ytri-Reistará.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á
dvalarheimilinu Hlíð.
.
Lovísa Kristjánsdóttir, Björn Einarsson,
Magnús Kristjánsson,
Hans Kristjánsson,
Ástríður Kristjánsdóttir,
Hólmfríður B. Kristjánsdóttir, Eggert Rúnar Birgisson,
Margrét Ósk Buhl Björnsdóttir,
Einar Bergur Björnsson,
Kristján Breki Björnsson,
Sunneva Dögg Ragnarsdóttir,
Kristján Birgir Eggertsson.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns,
föður og tengdaföður,
ÓLAFS B. ÓLAFSSONAR,
fyrrv. framkvæmdastjóra,
Akranesi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
A-deildar Sjúkrahúss Akraness og starfsfólki Höfða, Akranesi,
fyrir elskuríka umönnun.
.
Alda Jóhannesdóttir,
Guðmunda Ólafsdóttir, Þröstur Stefánsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
EYRÚNAR LILJU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Seljahlíð,
áður til heimilis að Stigahlíð 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar fyrir hlýju og góða
umönnun.
.
Bragi Helgason, Kristín Þorsteins,
Sigurveig Helgadóttir, Ari Stefánsson,
Guðrún Helgadóttir, Hilmar Jóhannsson,
Steinunn Helgadóttir, Kristinn Jörundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kveðjur og hlýhug við andlát ástkærs
sambýlismanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
PÁLS HREINS PÁLSSONAR
frá Þingeyri.
.
Soffía Stefánsdóttir,
Margrét Pálsdóttir, Ársæll Másson,
Páll Jóhann Pálsson, Guðmunda Kristjánsdóttir,
Pétur Hafsteinn Pálsson, Ágústa Óskarsdóttir,
Kristín Elísabet Pálsdóttir, Ágúst Þór Ingólfsson,
Svanhvít Daðey Pálsdóttir, Albert Sigurjónsson,
Sólný Ingibjörg Pálsdóttir, Sveinn Ari Guðjónsson,
afabörn og langafabörn.
Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR SIGRÍÐAR
KOLBEINSDÓTTUR,
Hólabraut,
Reykjadal,
sem lést 18. febrúar.
.
Björn J. Guðmundsson,
Ragnheiður Björnsdóttir, Jóhann Karlsson,
Ásta Björnsdóttir, Sigurjón Valdimarsson,
Arna Jakobína Björnsdóttir, Skúli Rúnar Árnason,
G. Kolbeinn Björnsson, Guðlaug J. Ágústsdóttir,
Birna Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800