Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Lægðafarganið undanfarna mánuði hefur valdið verulegum truflunum á siglingum Eimskips og Samskipa og miklu álagi á áhafnir skipanna. Eim- skip lenti í því í vetur að eitt skip- anna missti gáma útbyrðis í óveðri en Samskip hafa sloppið við það. Ólafur William Hand, upplýsinga- fulltrúi Eimskips, segir að menn þurfi vissulega að vinna upp tafir með ýmsum hætti en alvarlegar truflanir hafi þó ekki orðið. Barningur og óveður „Þetta er fyrst og fremst erfitt fyrir áhafnirnar, reynir mjög á mennina um borð,“ segir Ólafur. „Þeir eru alltaf í einhverjum barningi og óveðri. En með góðum mönnum og skipulagi hefur tekist að halda þessu í horfi, sem betur fer hefur þetta allt blessast. Skipin eru kannski nokkrum klukkustundum of sein, jafnvel sólarhring. Áttirnar hafa yfirleitt verið þannig að þær hafa verið tiltölulega hagstæðar á útsiglingu, viðkvæmasti varningur- inn er þá ferskur fiskur. En á heim- leiðinni er þetta suðvestan bál sem hefur verið að ganga svo mikið yfir suðvesturhornið og suðurströndina, þá er vindurinn á móti. Þá verður töf, menn reyna að krækja fyrir þetta en menn ná töfinni oftast upp á útleiðinni, þá er meðvindur.“ Hann segir skipverja að sjálf- sögðu oft þreytta og séu jafnvel hættir að nenna að taka myndir þegar þeir lenda í miklum sjó. „Enda væri það bara eins og þið væruð alltaf að taka myndir þegar þið keyrið í vinnuna, segja þeir. Þetta er orðið daglegt brauð,“ segir Ólafur. Hann segir að menn hafi gripið til róttækra aðgerða eftir að eitt skipið missti út gáma í vetur. Nú sé verið að sjóbúa miklu meira og bet- ur en áður, fara aftur og aftur yfir hlutina. Festingar á sjálfum gám- unum, þar sem megnið af varningn- um er, séu reyndar alltaf eins en gert sé meira af því á veturna að verja ýmsa fleti og lausavöru á dekki. Einnig segir hann að það geti verið erfitt að lenda í miklu roki, taka á sig veður. „Ótrúlega erfiður vetur“ „Þetta er búinn að vera ótrúlega erfiður vetur fyrir sjómennina okkar vegna veðursins en sem bet- ur fer höfum við ekki orðið fyrir neinu tjóni, hvorki á mannskap né varningi,“ segir Anna Guðný Ara- dóttir, upplýsingafulltrúi hjá Sam- skipum. „En við höfum lent í seink- unum og þurft að sleppa höfnum hér á landi, einu sinni urðum við að sleppa Vestmannaeyjum,“ segir Anna. Einnig hafi veðrið haft slæm áhrif á landflutninga á vegum fyr- irtækisins, bílstjórarnir hafi oft unnið þrekvirki. „Veðrið hefur oft sett strik í reikninginn. Við höfum þurft að fresta ferðum um hálfan sólarhring eða meira og menn hafa orðið veðurtepptir. En allir hafa lagst á eitt við að koma vörum heil- um á áfangastað sem fyrst.“ Hún segir að veðurhamurinn og þá auðvitað fyrst og fremst mót- vindur hafi áhrif á rekstrarkostnað Samskipa, skipin og bílarnir noti meiri olíu en ella. En Anna er bjartsýn og segir að bráðum komi betri tíð með blóm í haga. Og stutt sé í lóuna. Veðrahamur erfiður fyrir skipafélögin  Áhafnir Eimskips og Samskipa orðn- ar langþreyttar á barningnum í vetur Morgunblaðið/RAX Þungi Brimskaflar eru ógnvekjandi þegar veður er sem verst. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Innan ferðaþjónustunnar ríkir al- menn bjartsýni um að vel takist að manna stöður í greininni sem hefur farið ört vaxandi á síðustu árum samfara mikilli fjölgun erlendra ferðamanna. Þó eru uppi áhyggjur yfir því hversu erfitt er orðið að fá til starfa fólk með sérstaka fagþekk- ingu, hvort sem það eru þjónar, kokkar, rútubílstjórar, leiðsögu- menn eða hótelstjórnendur. Helga Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF), segir aukna áherslu hafa verið lagða á að ráða fag- menntað fólk en það sé orðið æ erf- iðara. Ekki hafi tekist að halda í við fjölgun ferðamanna með samsvar- andi fjölgun fagfólks eins og þjóna og kokka. Fagmenntuninni ekki fylgt eftir „Með auknum umsvifum í ferða- þjónustu skapast fleiri atvinnutæki- færi, en þetta er alltaf spurning um hvenær þarf að bæta við starfsfólki utan landsteinanna. Við höfum fund- ið það vel að aukin gæði og þjónusta skipta sköpum í greininni. Að því leyti er það áhyggjuefni að fjölgun fagmenntaðra skuli ekki hafa náð að fylgja eftir fjölguninni í ferðaþjón- ustunni,“ segir Helga hjá SAF. Fjöldi umsókna á nýju hóteli Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa verið að stækka við sig í ferðaþjón- ustunni er Íslandshótel, sem rekur 14 Fosshótel víðs vegar um landið. Í sumar bætist hið 15. við í Reykjavík, nánar tiltekið við Höfðatorg. Nýver- ið voru störf í nýja hótelinu auglýst og skiptu umsóknir hundruðum. Hjá Íslandshótelum starfa mest um 800 manns yfir sumartímann og þar af er erlent vinnuafl á bilinu 40-50%. Davíð Torfi Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Íslandshótela, segir umsóknirnar vegna nýja hótelsins flestar hafa verið um sumarstörf en verið sé að leita að fólki til starfa árið um kring. Davíð segir það annars fara eftir landsvæðum hvernig gangi að ráða fólk til hótelstarfa. Á höfuðborgar- svæðinu hafi þetta gengið ágætlega en erfiðast gangi að ráða faglærða þjóna og kokka. Til ræstingastarfa fáist nær eingöngu erlent vinnuafl þar sem lítil eftirspurn sé meðal Ís- lendinga eftir þeim störfum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðaþjónusta Meðal nýrra hótelbygginga sem nú rísa í Reykjavík er Fosshótel við Höfðatorg. Bjartsýn á að vel takist að ráða í allar stöður  Fjöldi faglærðra ekki fylgt eftir fjölgun ferðamanna Greining Íslandsbanka spáir því að heimsóknum erlendra ferðamanna til landsins fjölgi um 23% á þessu ári. Heild- arfjöldinn verði 1.350 þúsund og af þeim muni um 1.200 koma í gegnum Keflavík- urflugvöll. Telur greining- ardeildin að lækkun olíuverðs og mikil samkeppni flugfélag- anna muni án efa leiða til þess að flug til Íslands verði hag- stæðara en oft áður. Út frá þessari spá Íslands- banka og upplýsingum um meðaldvalartíma ferðamanna er talið að um 26 þúsund ferðamenn séu hér á landi á degi hverjum. Sem hlutfall af heildaríbúafjölda er þetta rúm 7%, sem setur Ísland í 7. sæti á heimsvísu hvað þetta varðar. 1.350 þús. ferðamenn AUKNINGU SPÁÐ Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Í skýrslu Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa er því beint til Ferða- málastofu og Vegagerðarinnar að staðir sem sérstaklega eru auglýstir fyrir erlenda ferðamenn séu vel merktir á vegum landsins, þar sem ein algengasta orsök alvarlegra um- ferðarslysa hjá erlendum ferða- mönnum sé athyglisskortur. Nýútkomin skýrsla nefndarinnar fjallar um banaslys sem varð á Vesturlandsvegi í ágúst árið 2013. Erlendur ferðamaður var að skoða vegakort í leit afleggjaranum að fossinum Glanna og beygði óvart í veg fyrir bifreið sem kom úr gagn- stæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaður hinnar bifreiðarinnar lést. Í rannsókn sem Rannsóknar- nefnd umferðarslysa gerði á um- ferðarslysum erlendra ferðamanna á árunum 2006 til 2010 kom í ljós, að önnur algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa þessa hóps var að at- hygli ökumanns var ekki við akst- urinn. Algengasta orsökin var of hraður akstur miðað við aðstæður. Telur nefndin að bættar vega- merkingar geti komið í veg fyrir slys sem þessi, enda sé þá hægt að einbeita sér meira að akstrinum og minna að því að leita að merkingum. Endurskoði öryggismál hreyfihamlaðra í bifreiðum Ökumaðurinn, sem lést í fyrr- nefndu slysi í Borgarfirði, var fatl- aður og lágvaxinn, samkvæmt því sem fram kemur í skýrslunni, og var ekki með öryggisbelti sökum þess að hefðbundinn búnaður í bif- reiðinni passaði ekki fyrir hann. Þá segir í skýrslunni að líkur séu á að hann hefði lifað slysið af hefði hann verið spenntur í öryggisbelti sem hefði verið lagað að líkamsbyggingu hans. Nefndin leggur til í skýrslunni að Samgöngustofa og Landlæknir yf- irfari þær reglur sem í gildi eru um undanþágu um notkun öryggisbelta og reglur um breytingar á bifreið- um fyrir hreyfihamlaða. Heimilt er að aðlaga bifreiðir þörfum hreyfi- hamlaðra, en þegar bifreið hefur verið breytt er skylt að fara með hana í breytingarskoðun hjá fag- giltri skoðunarstofu þar sem breyt- ingin er yfirfarin og tilkynnt til Samgöngustofu. Þó er ekki gerð krafa um að notendur fari í þjálfun í notkun á búnaðinum. Undanþágur veittar Þá er einnig bent á að veittar eru undanþágur við notkun öryggisbelta til þeirra sem geta illa nýtt þann búnað af heilsufars- og læknis- fræðilegum ástæðum og þarf þá læknisvottorð því til staðfestingar. Rannsóknarnefndin bendir á að í sumum þessara tilfella er hægt að laga búnaðinn að þörfum ein- staklingsins. Það sé mikilvægt að áður en ákvörðun er tekin um að sleppa því að spenna beltið sé þessi möguleiki skoðaður. Skortur á athygli algeng orsök slysa  Rannsóknarnefnd umferðarslysa leggur til betri merkingar á vegum Morgunblaðið/Ómar Merkingar Ökumaður lést fyrir tveimur árum þegar erlendur ferðamaður með kort við hönd beygði í veg fyrir hann og olli hörðum árekstri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.