Morgunblaðið - 18.03.2015, Page 11

Morgunblaðið - 18.03.2015, Page 11
ekki endilega en batt þær inn að nýju og skilaði þeim svo nýuppgerðum. Hann lumar á nokkrum dýrgipum heima sem hann hefur nostrað við, m.a. undurfagurri nítjándu aldar bók með gotnesku letri. „Mér fannst óskaplega gaman að gera við hana, hún hékk ekki sam- an. Ég reyndi að láta sem mest af því gamla halda sér en ég þurfti að laga hverja einustu síðu,“ segir hann og dregur fram aðra bók sem hann hef- ur gert fallega upp, en hún er frá 1916, Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka. „Þetta var fyrsta kennslubók fyrir almenning í matreiðslu og hún seldist upp á sínum tíma. Allt sem í henni stendur gildir enn í dag, grund- vallar-næringarfræði og fleira.“ Varð næstum því Ameríkani Vigfús hefur líka bundið inn fréttabréfið Framfarir sem er í nokkuð stóru broti, en það var það fyrsta sem Íslendingar prent- uðu þegar þeir fluttu til Am- eríku. „Ég hef mikinn áhuga á öllu sem tengist Vesturförunum enda varð ég sjálfur næstum einn af þeim. Flestir mínir forfeður fluttust vestur um haf, en afi minn í móðurætt var skilinn eft- ir hér heima á Íslandi.“ Hann segir misjafnt hve langan tíma taki að binda inn bók, það fari eftir ástandi hennar, en mestur tím- inn fari í að ganga frá, gylla og skreyta. „Ég er búinn að læra að „marmorera“ eða munstra pappír sem fer á bókaspjöld,“ segir Vigfús sem notar bókabandskunnáttuna líka til að búa til öskjur og gestabækur. „Þetta býður upp á ýmislegt og mér finnst gott að vera með margt undir í einu. Ég nýti til dæmis af- gangana í bókbandinu til að búa til gjafakort sem líta út eins og litlar inn- bundnar bækur. Þannig voru jóla- kortin frá mér um síðustu jól og þau vöktu heilmikla lukku.“ Smíðaði skrifborð og svefnsófa fyrir syni sína Vigfús lærði á sínum tíma bifvélavirkjun en hann starfaði í 27 ár í Landsbankanum á Reyðarfirði og á Egilsstöðum. „Ég starfaði líka sem ökukenn- ari og smíðaði sjálfur kennslutækin í bílana sem ég kenndi á, petalana hægra megin, fyrir kúplingu og bremsu,“ segir þessi handlagni mað- ur sem hefur í gegnum tíðina smíðað mikið, bæði úr tré og járni. „Á mínum yngri árum smíðaði ég skrifborð fyrir strákana mína og svefnsófa. Ég smíðaði líka handa þeim leikföng, stóra trukka og fleira skemmtilegt. Ég yfirdekkti sófasettið okkar hjónanna tvisvar, maður þurfti bara að redda sér,“ segir hann og hlær. „Ég er líka með endurvinnslu, bý til bíla og báta úr mjólkurfernum, grillpinnum og flöskutöppum. Þetta hef ég gert í tuttugu ár og það vekur alltaf mikla lukku hjá barnabörn- unum. Dýru leikföngunum er hent til hliðar þegar þessi koma í hús. Mjólkufernubílar og bátar virðast ævinlega vera vinsælasta dótið.“ Vigfús er með aðstöðu fyrir bók- bandið inni í íbúðinni sinni en hann lagði hluta geymslunnar í kjallar- anum undir smíðaaðstöðu, og þar smíðar hann leikfangabíla, kolla og fleira. Forn áhöld Falsbein úr nautslegg t.v. og 150 ára leðurhnífur er langst t.h. Fernubátur Barnabörnin henda frá sér dýrum leikföngum þegar afi færir þeim leikföng sem hann býr til úr mjólkurfernum. Þau eru langvinsælust. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bókbindari Vigfús með jólakortin sem hann bjó til sem líta út eins og litlar bækur. Aðstöðuna hefur hann heima. Gestabók í öskju Ein af mörgum gestabókum sem Vigfús hefur búið til. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Tækifæri í mars SIEMENS - Þurrkari WT 46B267DN Gufuþétting, enginn barki. Hraðkerfi 40 mín. Krumpuvörn í lok kerfis. Tækifærisverð: 92.900 kr. stgr. (Fullt verð: 109.900 kr.) SIEMENS - Þvottavél WM 14K267DN Tekur mest 7 kg. Vindur upp í 1400 sn./mín. Tækifærisverð: 99.900 kr. stgr. (Fullt verð: 118.400 kr.) Orkuflokkur Tekur mestOrkuflokkur Söngstarf hefur jafnan verið blóm- legt í Skagafirði og þar starfa fleiri kórar en Karlakórinn Heimir. Kvenna- kórinn Sóldís er einn þeirra en kórinn var stofnaður fyrir fimm árum af nokkrum vöskum konum. Þar hefur starfið verið öflugt yfir veturinn og nú ætla Sóldísirnar að syngja sunnan heiða um næstu helgi. Vel yfir 40 konur eru í kórnum, jafnt frá Sauðár- króki sem sveitum Skagafjarðar, og þar á meðal nokkrar eiginkonur Heimismanna. Einnig syngja nokkrar húnvetnskar konur í kórnum Tvennir tónleikar verða laugardag- inn 21. mars nk., fyrst kl. 14 í Guðríð- arkirkju í Grafarholti og síðan kl. 17 í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Stjórn- andi kórsins er Sólveig Sigríður Ein- arsdóttir og undirleikarar þeir Rögn- valdur Valbergsson, séra Jón Helgi Þórarinsson og Gunnar Sigfús Björnsson. Formaður Sóldísar er Drífa Árnadóttir frá Uppsölum. Sönglagaval á tónleikunum verður afar fjölbreytt, frá sígildum ættjarð- arlögum til íslenskra og erlendra dægurperla. Nánari upplýsingar um kórinn er að finna á vefsíðunni https://soldisir.wordpress.com. Norðankonur með tvenna tónleika á höfuðborgarsvæðinu Sóldísir úr Skagafirði koma syngjandi suður yfir heiðar Kvennakór Sóldísir úr Skagafirði með stjórnanda sínum og aðalundirleikara. Endurvinnsla Flöskutappar nýtast fjarska vel á mjólk- urfernubílinn frá afa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.