Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Hvernig hefur
bíllinn það?
Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Við hjá BJB erum sérfræðingar í dekkjum, pústi og smurningu
og fleiru sem viðkemur reglubundnu viðhaldi bíla.
Komdu með bílinn í BJB Hafnarfirði
og þú færð góða þjónustu
og vandað vinnu.
2012
Tímapantanir í síma
565 1090
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Gestir og íbúar miðbæjar Reykja-
víkur hafa orðið varir við töluverða
aukningu veggjakrots. Yfirleitt er
þetta frekar ljótt krot eða krass og
engin prýði, hvorki fyrir húseiganda
né þann sem framkvæmdi gjörning-
inn.
Íbúar og eigendur húsnæðis í
Reykjavík hafa lengi barist við þá
sem krota á eignir þeirra einhverja
stafi eða önnur merki.
„Til að fá þetta staðfest þurfum
við að skrá veggjakrot. Það hefur
ekki verið gert síðan 2012. Almennt
er staðan hins vegar sú að það lítur
út fyrir að það sé aukning – allavega
í miðborginni,“ segir Guðmundur
Vignir Óskarsson, verkefnastjóri á
umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar.
„Hluti af ástæðunni er að þegar
veðurfar er búið að vera eins og það
hefur verið þá er minna um hreins-
un vegna þess að það er erfitt að at-
hafna sig.“
Veðrið setur strik í reikninginn
Veðrið hefur verið vont lengi og í
raun þannig að starfsmenn borgar-
innar hafa ekki geta athafnað sig við
hreinsun. „Við höfum ekki náð að
halda úti hreinsun borgarinnar af
sama krafti vegna veðurs, því mið-
ur.“
Guðmundur segir að vegna sér-
stöðu miðborgarinnar sé henni sinnt
sérstaklega og passað að hún sé
ekki uppfull af kroti og táknum.
„Við hjá borginni erum alltaf að
reyna að halda miðborginni í góðum
gír út af sérstöðu hennar. Það er
góð stefna að reyna að halda mið-
borginni í lagi hvað þetta varðar og
það er eins þar og víða um land að
veðurfarið hefur verið þannig að það
hefur ekki verið hægt að halda uppi
því góða starfi sem hefur verið unn-
ið alla jafna.
Þá blasir þetta krot við fólki.“
Hann bendir á að Ísland sé ekki
eyland hvað varðar krot og krass á
veggi. „Þetta er alþjóðlegt vanda-
mál. Þessi skaðvaldur, þegar verið
er að krota á eignir annarra.“
Munur á kroti og list
Reykjavíkurborg gerir skýran
greinarmun á veggjakroti (e. tag) og
vegglist (e. graffiti). Veggjakrot er
alfarið bannað í Reykjavík. Borgin
hefur staðið fyrir málun veggmynda
í tengslum við listviðburði og í ein-
stökum tilfellum veitt heimild fyrir
slíkum myndum og má sjá víða vel
heppnaðar veggmyndir.
Hluti af átaksverkefninu „Hrein
borg“ árið 2008 var að varpa ljósi á
umfang veggjakrots í Reykjavík og
var það skráð og myndað með
skipulögðum hætti. Var það í fyrsta
skipti sem veggjakrot hefur verið
kortlagt með heildstæðum hætti.
Niðurstaðan var sláandi, en alls
voru taldir 42 þúsund fermetrar af
veggjakroti enda eyddi borgin 159
milljónum í þrif á krotinu það árið
til að snúa við öfugþróuninni. Í
skráningu veggjakots árið 2012 var
krotið komið niður í 16.000 fer-
metra. Árið 2013 var kostnaðurinn
kominn niður í 15 milljónir en alls
hefur borgin kostað til 431 milljón í
þrif á krotuðum veggjum síðan árið
2007.
Veðrið kemur í veg fyrir hreinsun
Krot og krass á veggjum miðborgarinnar eykst Erfiðlega gengur að hreinsa vegna veðurs
Hefur kostað borgina 431 milljón króna frá árinu 2007 að þrífa veggi og sérstök svæði
Krot Stofnanir hafa lagt sitt af mörkum við þrif eins og Orkuveitan og
Strætó. Heildarkostnaður við hreinsun veggjakrots í borginni er því hærri.
Dýrt Krotuðum fermetrum hafði fækkað niður í 16 þúsund árið 2012 frá 42 þúsund fermetrum sem taldir voru 2008.
Kostnaðurinn er mikill en borgin eyddi 15 milljónum í þrif árið 2013. Kostnaður fyrir árið 2014 liggur ekki fyrir.
Morgunblaðið/Kristinn
Verður þrifið Peningar eru til í borginni til að sinna þrifum á krotuðum fer-
metrum og verður farið af stað um leið og veður leyfir.
Fjögur skemmtiferðaskip með á
fjórða þúsund farþega munu koma
til Íslands sérstaklega vegna sól-
myrkvans og norðurljósanna.
Fyrsta skipið kemur til Reykjavík-
ur árdegis í dag en það er skipið
Azores með 550 farþega. Skipin
Magellan, Marco Polo og Voyager
verða einnig hér við land þegar sól-
myrkvinn verður á föstudag en þau
munu koma til Reykjavíkur á
sunnudag og mánudag.
Magellan er stærst skipanna, alls
46 þúsund tonn að stærð og tekur
1.250 farþega. TVG-Zimsen sér um
að þjónusta skipin þegar þau koma
til hafnar í Reykjavík.
Fjögur skemmtiferðaskip til Reykjavíkur
Skemmtiferðaskip Azores er
væntanlegt til Reykjavíkur í dag.
Skemmdir urðu á skógum vestan-
lands í óveðrinu sem geisaði á land-
inu á laugardaginn. Í stormskýrslu
frá Valdimar Reynissyni, skóg-
arverði á Vesturlandi, á vefsvæði
Skógræktar ríkisins, segir að
skemmdir á skógi hafi aðallega orð-
ið á tveimur stöðum, Stálpastöðum í
Skorradal og Norðtunguskógi í
Þverárhlíð í Borgarfirði.
Á Stálpastöðum brotnuðu tré illa
í bergfurureit sem hafði verið grisj-
aður nýlega og lagðist eða brotnaði
um helmingur af þeim trjám sem
eftir stóðu. Í Norðtunguskógi var
mikið fall í furunni sem var grisjuð
mjög hressilega sl. haust.
Fram kemur á skogur.is að ný-
grisjaðir skógar eru gjarnan við-
kvæmir fyrir stórviðrum meðan
trén sem eftir standa eru að styrkja
rótarkerfi sitt. Stormfall er því
óhjákvæmilegur fylgifiskur grisj-
unar í þroskuðum skógum þótt það
sé enn nokkurt nýnæmi í huga Ís-
lendinga.
Tré lágu í valnum eftir óveður helgarinnar
Mynd/Skógrækt ríkisins
Að vestan Skógar eru oft viðkvæmir fyrst
eftir grisjun. Mörg tré féllu um helgina.