Morgunblaðið - 18.03.2015, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.03.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm • Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Ósk Svisslendinga um að hætta ESB-viðræðum árið 1992 verður ekki borin saman við bréf utanríkisráðherra Íslands til ESB. Þetta má ráða af svörum þriggja Svisslendinga sem þekkja til aðildarumsóknar Sviss árið 1992. Svisslendingar lögðu fram um- sókn um aðild að Evrópubandalag- inu, forvera ESB, 20. maí 1992. Framkvæmdastjórn bandalags- ins tók við umsókninni og voru eiginlegar samningaviðræður ekki hafnar þegar aðild að EES- samningnum var felld í þjóðar- atkvæðagreiðslu 6. desember 1992. Þegar niðurstaðan lá fyrir var umsókninni sjálfhætt, að sögn Tomas Miglierina, blaðamanns hjá svissneska ríkisútvarpinu. Raphaël Saborit, yfirmaður samskipta hjá fastanefnd Sviss í Brussel, staðfesti þessa lýsingu. Sagði hann að stuðningur við ESB- aðild hefði orðið mestur á árunum 1991-1992, eða 30-35%, en sé nú til samanburðar aðeins 10-15%. Enginn stjórnmálaflokkur í Sviss berjist nú fyrir ESB-aðild. Fyrirspurn var send til sviss- neska utanríkisráðuneytisins. Fram kom í svari þess að árið 1992 hefði þurft að leggja fram þrjár umsóknir til þriggja lykil- stofnana Evrópubandalagsins. „Strax í kjölfar þess að Sviss- lendingar höfnuðu EES-samn- ingnum óskaði ríkisstjórn Sviss þess að framkvæmdastjórn ESB frysti aðildarferlið. Með samþykkt Maastricht-sáttmálans [í febrúar 1992, sáttmálinn tók gildi 1. janúar 1993] breyttist umsóknarferlið. Við það varð nauðsynlegt að leggja fram umsókn um aðild að ESB, það var ekki lengur mögulegt að sækja um hjá einstaka stofnunum bandalagsins,“ segir í svarinu. Var þar vísað til Kola- og stál- bandalagsins, Kjarnorkubanda- lagsins og Efnahagsbandalags Evrópu. „Með þessari grundvallar- breytingu á reglunum höfðu þrjár umsóknir Svisslendinga [að þess- um stofnunum] ekki lengur gildi og því þjónaði það engum tilgangi að draga til baka þessar þrjár úr- eltu umsóknir,“ sagði í svarinu. Ekki fordæmi fyrir Ísland VIÐRÆÐUSLIT SVISS VIÐ ESB ÁRIÐ 1992 AFP Alparnir Stuðningur við ESB-aðild í Sviss mælist nú á bilinu 10-15%. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra segir samskipti sín og utanríkisráðuneytisins við fulltrúa Evrópusambandsins hafa hafist fyr- ir tveimur til þremur vikum. Það sé aðdragandinn að þeirri ákvörðun hans að senda bréf til ESB þar sem þess er óskað að Ísland hafi ekki lengur stöðu umsóknarríkis. Hann hafi rætt málin við Edgars Rinke- vics, utanríkisráðherra Lettlands, sem nú gegnir formennsku í ESB. Þær upplýsingar fengust frá Janis Berzins, talsmanni fastanefndar Lettlands hjá ESB, að Gunnar Bragi og Rinkevics hefðu ekki rætt efnis- lega um bréfið áður en það var af- hent. Samskiptin hefðu aðeins varð- að fyrirætlun ríkisstjórnarinnar. Þá fengust þær upplýsingar hjá stækkunardeild ESB að íslenska utanríkisþjónustan hefði ekki rætt málið við framkvæmdastjórn ESB. Íslensk stjórnvöld hefðu hins vegar rætt málið við aðrar stofnanir ESB og voru þær ekki tilgreindar. Þá ítrekaði stækkunardeildin að ESB-umsókn Íslands hefði ekki ver- ið dregin til baka. Málið væri innan- landsmál á Íslandi og yrði ekki frek- ar rætt af hálfu sambandsins. Rinkevic tók eins til orða á blaða- mannafundi í Brussel í gær. Sagði að ESB myndi hvorki ræða bréf ríkis- stjórnarinnar né bréf stjórnarand- stöðunnar á Íslandi um málið. Ræddu möguleg viðbrögð ESB Gunnar Bragi leggur áherslu á að samskipti hans og ráðuneytisins við ESB hafi verið á óformlegum nótum. „Samskiptin hafa verið þannig að ég hef átt samtöl við lettneskan koll- ega minn sem er nú í forsvari fyrir Evrópusambandið og embættis- menn í ráðuneytinu hafa átt samtöl við embættismenn hjá Evrópusam- bandinu. Þetta er allt á óformlegum nótum. Það er einfaldlega verið að ræða hlutina, hvernig væri hægt að gera þetta og hvernig menn myndu mögulega bregðast við og annað slíkt. En að sjálfsögðu hefði Evrópu- sambandið aldrei getað sagt okkur eitthvað eitt ákveðið í því. Það sem við vorum fyrst og fremst að gera var að upplýsa um fyrirætlanir okk- ar og halda þeim upplýstum.“ Þú hefur nefnt í viðtali að það væri mat ykkar að ekki bæri að fara fram með „offorsi“ í málinu. Hvenær komist þið að þeirri niðurstöðu að þetta sé besti far- vegurinn? „Í raun má segja að við höf- um gert það strax 2013 þegar við ákváðum að fara ekki hreinlega fram með tillögu þá. Við vildum nálgast málið í rólegheitunum. Við hins vegar ákváðum það fyrir tveimur, þremur vikum – það var mín tillaga – að heyra í kollega mín- um með þetta allt saman. Síðan hafa verið smávægileg óformleg sam- skipti um þetta allt saman sem leiddi til þess að ríkisstjórnin ákvað að senda þetta bréf.“ Var eitthvað í viðbrögðum lettn- esks kollega þíns eða embættis- manna í Brussel sem styrkti þessa skoðun í sessi, að betra væri að gera þetta svona en ganga lengra? „Nei, ekki beint þannig. Það er fyrst og fremst að hlutirnir skýrast oft betur þegar menn tala saman og það var nú fyrst og fremst það sem við vorum að gera. Við vorum vissir um það allan tímann að við gætum sent þetta bréf og höfðum fulla heimild til þess. Þannig að við vild- um fyrst og fremst tryggja að þetta kæmi Evrópusambandinu ekki á óvart. Við vildum líka hlusta eftir því, að sjálfsögðu, hvernig þeir myndu mögulega bregðast við slíku bréfi. Þeir gátu vitanlega ekkert sagt okkur eða lofað okkur neinu.“ Ísland átti frumkvæðið Kom fram í þeirra svörum að þeir óskuðu eftir því að það yrði ekki gengið lengra en þarna er gert? „Nei, nei. Við áttum frumkvæðið að þessu öllu saman.“ Er sérstök ástæða fyrir því að ýta þessu úr vör í síðustu viku? „Nei. Ef ég ætlaði að koma með mál inn í þingið þurfti það að gerast fyrir ákveðinn tíma. Ég taldi hins vegar að á þessum tímapunkti væri rétt að gera þetta með þessum hætti, eiga þessi samtöl. Það er eng- in sérstök ástæða fyrir tímasetning- unni önnur en sú að auðvitað var komið að því að leggja fram þingmál eða fara þessa leið og það var best að draga það ekki of lengi,“ segir Gunnar Bragi en frestur til þess að leggja fram þingmál rennur út 31. mars. Myndu beita málþófi Hvaða afleiðingar hefði það haft fyrir Ísland að fara fram með „of- forsi“ eins og þú orðar það? „Ég reikna ekki með að stjórnar- andstaðan myndi vilja greiða at- kvæði um þetta mál, ekki frekar en sl. vor, þar sem hún beitti málþófi og kom í veg fyrir að málið næði fram að ganga. Við myndum þá væntan- lega þurfa að taka vorið og sumarið í málið. Ég held að það myndi hvorki þjóna hagsmunum Íslands, Evrópu- sambandsins né þjóðarinnar að vera í slíku rifrildi um hlut sem hægt er að klára á þennan hátt. Ég hugsa að Evrópusambandið skilji að það er engum greiði gerður með slíku, hvorki þeim né okkur. En þetta er leið sem er mjög skynsamleg af því að málið er löngu dautt.“ Kom einhvern tímann fram í sam- skiptum þínum við ESB að það áliti þetta ígildi afturköllunar? „Fullltrúar ESB hafa aldrei tjáð sig um slíkt. Þeir segja, sem er mjög eðlilegt, að þetta sé innanríkismál, að þetta sé málefni Íslands, hvernig ríkisstjórnin orðar bréfið og tekur á þessu máli. Þeir munu hins vegar virða það sem kemur til þeirra. Ég held að það sé alveg skýrt hvað við erum að fara með þessu bréfi. Ég býst við að viðbrögð þeirra verði al- veg skýr í því efni.“ Fékkstu þau viðbrögð að þetta skref hefði í för með sér að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki? „Þeir lofuðu okkur ekki neinum sérstökum viðbrögðum.“ Vildu kanna viðbrögð ESB  Utanríkisráðherra rekur aðdraganda bréfs til ESB til afdrifa þingsályktunartillögu fyrir um ári  Deilur hefðu ekki þjónað hagsmunum ESB  Bréfið ekki rætt efnislega við formennskuríki ESB Janis Berzins Gunnar Bragi Sveinsson Edgars Rinkevics Reuters Fánaborg við höfuðstöðvar ESB Utanríkisráðherra hóf viðræður við fulltrúa ESB fyrir nokkrum vikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.