Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 18

Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 H-Berg ehf | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is FRÁBÆR T VERÐ Nýjar vörur frá H-Berg Túrmerikdrykkur Möndlumjólk Íslensk framleiðsla Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 Sendum hvert á land sem er Fislétt fartölva Acer Aspire ES1 • Skjár: 11,6 tommu HD (1366x768) • Örgjörvi: Intel Dual Core 2,58 GHz Turbo • Vinnsluminni: 4 GB (hámark í 8 GB) • Harður diskur: 500 GB SATA3 • USB 3.0, HDMI, Bluetooth 4.0 • Myndavél, hljóðnemi • Windows 8.1 64ra bita • Aðeins 1280 grömm • Örþunn og öflug 55.900 kr. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Pappírslaus viðskipti hafa verið stunduð um hríð, en líkega hafa pappírslaus salerni ekki náð jafn- mikilli útbreiðslu. Nú býður hrein- lætistækjaverslunin Ísleifur Jóns- son slíkan grip til sölu og er salernið þeim kostum búið að sá sem það notar þarf ekki að nota salernis- pappír er hann hefur gengið örna sinna. Volgar vatnsbunur sem berast úr stútum sjá um að skola þá líkams- parta sem þurfa hreinsunar við. Með því sparast kaup á salernispappír og hreinlæti er talsvert meira, að sögn verslunarstjóra. Þá eru ótalin þau umhverfisvænu áhrif sem minni pappírsnotkun hefur í för með sér. Umrætt salerni heitir Senso Wash, það er hannað af franska hönnuðinum Philippe Starck og framleitt hjá þýska fyrirtækinu Duravit. Það hefur verið til sölu hjá Ísleifi Jónssyni um skeið og að sögn Lárusar Einars Huldarssonar, verslunarstjóra þar, á þessi tækni rætur að rekja til Japans, þar sem notkun slíkra salerna er nokkuð út- breidd. „Þetta virkar í stuttu máli þannig að þegar klósettferðinni er lokið er ýtt á fjarstýringu. Þá koma stútar fram undan setunni og sprauta vatni. Það er hægt að forstilla hitann og kraftinn á vatninu og einnig hvert bunan beinist, t.d. er hægt að velja dömu- og herrastillingar,“ seg- ir Lárus. „Í framhaldinu er svo hægt að stilla á blástur ef fólk vill.“ Þessu til viðbótar er seta salernisins upphituð. Spurður í hverju helstu kostir sal- ernisins felist segir Lárus þá marga, sá helsti sé að því fylgi talsvert meira hreinlæti en þeim hefð- bundnu. „Þetta þrífur betur en pappírinn. Svo minnkar pappírs- notkunin.“ Hann segir þó allan gang á því hvort þeir sem noti gripinn sleppi því að nota salernispappír, það sé ákvörðun hvers og eins. Margskonar aukabúnaður Salerni af þessari gerð er til af- nota fyrir viðskiptavini Ísleifs Jóns- sonar og að sögn Lárusar nýtur það töluverðrar hylli og fýsir marga að prófa það. „Það er til í dæminu að fólk geri sér ferð hingað til að gera stykkin sín. Margir vilja prófa þetta og það eru allir velkomnir.“ Grunnverð á Senso Wash-salerni er 320.000 krónur. Við það er hægt að bæta ýmsum aukabúnaði, allt eft- ir smekk og þörfum hvers og eins; t.d. nuddi, næturlýsingu og sjálf- virkri lokun. Fjarstýrt, pappírslaust og upphitað  Ylvolgar vatnsbunur taka við hlutverki salernispappírs  Margir vilja prófa gripinn í versluninni Morgunblaðið/Eggert Senso Wash Fljótt á litið lítur salernið út fyrir að vera hefðbundið, en er lokinu er lyft kemur í ljós vatnsstútur sem skolar þá líkamsparta sem þurfa þess við að salernisferð lokinni. Hægt er að stilla hitastig og kraft vatnsbununnar. Í nýrri skýrslu um starfsemi rík- issaksóknara kemur fram það mat Ríkisendurskoðunar að langur málsmeðferðartími hjá embættinu fari í bága við réttarfars- og stjórn- sýslureglur. Sú regla að hraða beri meðferð sakamála sé ein af grund- vallarreglum íslensks réttarfars. Álag á embætti ríkissaksóknara hafi aukist verulega á undanförnum ár- um. Skýrsla Ríkisendurskoðunar var birt á heimasíðu stofnunarinnar í gær. Í henni er innanríkisráðuneyt- ið hvatt til þess að beita sér fyrir því að embætti ríkissaksóknara fái nauðsynlegar fjárveitingar til að það geti sinnt hlutverki sínu með viðunandi hætti. Þar kemur fram að á undanförn- um árum hafi málum sem koma til ákærumeðferðar hjá ríkissaksókn- ara fjölgað verulega og þau orðið flóknari en áður. Ein afleiðing þessa sé að afgreiðslutími sakamála hjá embættinu hafi að meðaltali lengst verulega. Hér sé átt við tímann frá því að mál berst embættinu þar til ákvörðun um afgreiðslu þess liggur fyrir. Vegna fjölgunar slíkra mála og þess að þau njóta að jafnaði for- gangs í starfseminni hafi embættið ekki getað sinnt sem skyldi sam- ræmingar- og eftirlitshlutverki sínu gagnvart ákærendum á lægra stigi. Starfsmenn ríkissaksóknara voru í ársbyrjun þessa árs 16, að því er fram kemur í skýrslunni. Sjálfstæði gagnvart öðrum „Í réttarríki er grundvallaratriði að ákæruvaldið sé sjálfstætt gagn- vart öðrum stjórnvöldum. Í skýrsl- unni er bent á að samkvæmt saka- málalögum skulu ákærendur ekki taka við fyrirmælum frá öðrum stjórnvöldum um meðferð ákæru- valds nema lög kveði sérstaklega á um það. Annars staðar í lögunum er mælt fyrir um eftirlit ráðherra með framkvæmd ákæruvalds. Þá er í lögum um Stjórnarráð Íslands kveð- ið á um að ráðherra hafi almennt eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum þeirra sjálfstæðu stjórn- valda sem undir hann heyra. Rík- isendurskoðun hvetur innanríkis- ráðuneytið til að beita sér fyrir því að lög kveði með skýrum hætti á um sjálfstæði ríkissaksóknara og eftir- litshlutverk ráðuneytisins,“ segir orðrétt í frétt um skýrsluna. Ríkisendurskoðun leggur til að starfsmenn ríkissaksóknara færi verkbókhald til að bæta yfirsýn um starfsemina. agnes@mbl.is Fer í bága við réttarfarsreglur  Hraða ber meðferð sakamála

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.