Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Á STIGUM, TRÖPPUM,
ÁSTÖNDUM OG
BÚKKUM Í YFIR
30 ÁR
Þarftu að
framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skipulag og samskipti gera þennan
dag fullkominn. Hugmyndir þínar um hvernig
betrumbæta megi í starfsumhverfinu eru fyr-
irtak. Þolinmæði er dyggð.
20. apríl - 20. maí
Naut Vinskapur krefst framlags, og und-
anfarið hefur það verið í formi peninga. Þú
munt detta í lukkupottinn innan skamms.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert tilbúin/n til þess að takast á
við sjálfa/n þig og gera þig að betri manni.
Talaðu sem minnst um þitt starf, en hlustaðu
þeim mun betur á aðra. Heilladísirnar vaka
yfir þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú ríður á að þú skipuleggir hlutina
af mikilli nákvæmni því ekkert má út af bera
ef viðunandi árangur á að nást. Gerðu ráð
fyrir samræðum um framtíðarvonir og
drauma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert staðráðin/n í að gera betur á
þessu ári en í fyrra. Framlag þitt hefur ekki
farið framhjá öðrum. Þér hættir til að fara of
seint í háttinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Varðandi ótilgreint atvik í sambandi,
fellur allt í ljúfa löð innan tíðar. Festu alla
lausa enda. Kannski ertu að eyða tíma í eitt-
hvað sem þér er sama um, getur það verið?
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur sömu þörf fyrir viðurkenningu
og allir aðrir, og því er óþarfi að skammast
sín fyrir hana. Einhver þér nákominn lendir í
minniháttar slysi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert að velta fyrir þér nýjum
fjáröflunarleiðum. Stjörnurnar eru sér-
staklega hagstæðar hvað félagslífið varðar.
Kapp er best með forsjá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Við sönkum oft að okkur ýmsum
hlutum sem við höfum enga raunverulega
þörf fyrir. Dragðu andann djúpt, heimurinn
ferst ekki þó að dagskráin riðlist aðeins hjá
þér:
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gefstu ekki upp á því að leggja
góðum málstað lið þótt baráttan sé hörð og
þér finnist lítið miða áfram. Finndu þér eitt-
hvað gagnlegt að gera í tómstundum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú þarft þú að taka á honum
stóra þínum og standa af þér stormviðri um
stundarsakir. Kvöldstund með góðum vinum
bætir og kætir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt hljóta umbun fyrir erfiði þitt
og þér mun koma á óvart hversu vel hug-
myndum þínum er tekið.
Það var vorlegt að koma út í dagog álftirnar komnar hér upp á
túnið,“ sagði Atli á Laxamýri við
mig í gærmorgun og hafði áhyggjur
af því að fuglarnir hefðu ekki nóg
æti. Og í fyrradag skrifaði Davíð
Hjálmar Haraldsson Vor í Leirinn:
Í sólskininu syngur lind og á,
á Súlumýrum fæðist krapablá,
lambakóngur líkir eftir hrút
og ljósfjólublár Crocus springur út.
Og fékk kveðju að sunnan frá
Ólafi Stefánssyni
Þegar bólgna blár og mýrar,
brestur ís og klakafjötur,
þá er von að fjörgist fýrar,
og fornar þræði koppagötur.
Svo að farið sé út í aðra sálma. Ár-
mann Þorgrímsson segist á Boðn-
armiði ekki skilja þetta enn:
„Að vera, eða vera ekki“
var einu sinni spurt
Þorskhausa í stjórn ég þekki
þeir segjast ætla … „hvurt?“
Ég hafði gaman af þessari vísu af
því að hún rifjaði upp fyrir mér
þingvísu eftir Gunnar Thoroddsen,
sem hann orti þegar ríkisstjórn
Ólafs Jóhannessonar 1971-74 var í
dauðateygjunum:
Að vera eða vera ekki
William Shakespeare mælti forðum;
að vera eða vera ekki
er vinstri stjórn í fáum orðum.
Eftir kosningarnar komst sam-
steypustjórn sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna til valda. Þá rétti
Friðjón Þórðarson Ólafi G. Ein-
arssyni blað yfir borðið á þing-
flokksfundi, þar sem á stóð þessi
vísa:
Léttist ok í óskabyr
eyðist þoka blekkinganna;
við höfum mokað flórinn fyr
að ferðalokum vinstri manna.
Við þessar vangaveltur rifjuðust
upp fyrir mér tvær limrur eftir
Kristján Karlsson sem mér finnst
falla vel að efninu:
Allt sem William Shakespeare sagði,
það sagði hann óðara að bragði.
Ef hann vantaði orð
sem lá aldrei við borð
gekk hann út og skaut sig og þagði.
Hallmundur Kristinsson orti á
Boðnarmiði:
Er lyganna vefur sem hangandi henglar
á herðunum situr og rökhyggju brenglar,
þá eru fengnir til frelsandi englar:
Færustu ráðgjafar – almannatenglar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Og álftirnar komnar
hér upp á túnið!
Í klípu
„ERUM VIÐ BARA MEÐ 60 STARFSMENN?
ÉG HEFÐI GETAÐ SVARIÐ AÐ ÞEIR VÆRU
TVÖFALT FLEIRI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BÍDDU AÐEINS.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að rétta honum
pening svo lítið beri á
þegar þú sérð
reikninginn.
JÓN FÓR TIL
TANNLÆKNIS
ÉG GET ALLTAF
SÉÐ ÞAÐ
ÞAÐ VERÐUR ÖRLÍTIL
BREYTING Á
MATARVENJUM HANS
ÉG FÆ
MÉR ENGA
VIRÐINGU
HEIMA...
MEÐ SVONA SLÆMA KUNNÁTTU
Í MÁLFRÆÐI, ÁTTU HVERGI
SKILIÐ NEINA VIRÐINGU!!
Víkverji hefur að mestu látiðskeggvöxt eiga sig í gegnum tíð-
ina. Nýverið ákvað hann þó að láta
slag standa og skeggið vaxa. Öðru
heimilisfólki fannst þetta vel til
fundið vegna þess að þá hafði það
meiri tíma á baðherberginu á mesta
annatíma á morgnana. Uppátækið
mæltist ekki jafn vel fyrir í höf-
uðstöðvum Gillette og reyndar
hljóta þar að vera krísufundir upp á
hvern dag vegna vinsælda skegg-
söfnunar um þessar mundir.
x x x
Svo kom mars og þá brast á mikiðumtal um mottur. Víkverji ætl-
aði í fyrstu að hinkra eftir alskeggs-
apríl, en lúffaði svo um helgina fyrir
fjöldanum auk þess sem honum
fannst skeggið orðið hvimleitt. Hann
brá rakhníf á kinn og skóf burt
skegghárin, utan þau, sem vaxið
höfðu á efri vörinni. Þau fengu að
vera. Síðan setti Víkverji rúllur í
skeggið þannig að það hringaði upp
á sig og skorðaði síðan rúllurnar
með stífelsi. Þannig spókaði hann sig
síðan á almannafæri og leið eins og
hann hefði fengið hlutverk í hinum
afbragðsgóðu sjónvarpsþáttum
Strandvörðum, svo var mænt á hann
hvar sem hann kom.
x x x
Nú er Víkverji kominn í mottu-mars og búinn að átta sig á að
það er hvorki dans, né skeggjaður
stríðsguð, heldur söfnun Krabba-
meinsfélagsins í baráttunni gegn
krabbameini. Þriðji hver karl getur
búist við að fá krabbamein einhvern
tímann á ævinni, að því er segir á
heimasíðunni mottumars.is. Lykil-
atriðið er að sjúkdómurinn greinist
snemma því þá eru meiri líkur á
lækningu. Því þarf að vera vakandi
fyrir vísbendingum um að ekki sé
allt með felldu og fara í eftirlit. Vík-
verji hefur einu sinni farið í ristil-
speglun. Hann getur ekki sagt að sú
reynsla hafi beinlínis verið skemmti-
leg, þótt vissulega hafi verið for-
vitnilegt að fylgjast með beinni út-
sendingu úr ristli sínum undir
áhrifum kæruleysislyfs. Hann hugs-
aði hins vegar með sér að fyrst hann
færi árlega með bílinn í skoðun væri
í lagi að tékka á ristlinum eftir hálfa
öld án skoðunar. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Annað er þetta: „Þú skalt
elska náunga þinn eins og sjálfan þig.
Ekkert boðorð annað er þessu meira.“
(Mark. 12, 31.)