Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
NÁNARÁWWW.GAP.IS
HEIMAPAKKINN!
SEM BIGGEST LOSER KEPP
ENDUR FENGU MEÐ SÉR HEIM!
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5200200 ·GAP.IS
TAKTUMÁLIN Í ÞÍNARHENDUR
OGÆFÐUHEIMA.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tvíeykið Halleluwah, skipað Sölva
Blöndal og Rakel Mjöll Leifs-
dóttur, sendi frá sér fyrstu breið-
skífuna, samnefnda dúettinum, í
byrjun mánaðar. Halleluwah er ný
hljómsveit sem kom fram á tón-
listarhátíðinni Iceland Airwaves í
nóvember 2013 en áður höfðu þau
Sölvi og Rakel gefið út lagið „Blue
Velvet“ sem vísaði í samnefnt lag í
flutningi Bobby Winton og kvik-
mynd Davids Lynch. Lagið var
mikið leikið í útvarpi og mynd-
band fylgdi í kjölfarið. Var þá ekki
aftur snúið og Halleluwah fór að
safna lögum og textum í sarpinn.
„Þetta varð eiginlega bara til
nýlega. Rakel er búin að búa úti í
Brighton og bróðurparturinn af
allri músíkinni var saminn í byrj-
un 2014. Þá ákváðum við að kýla á
þetta,“ segir Sölvi um stofnun
hljómsveitarinnar. Hún hafi því í
raun ekki hafið störf af neinni al-
vöru fyrr en í fyrra.
Einlægt „naiveté“
Í tilkynningu frá útgefanda
plötunnar, Senu, segir um tónlist-
ina á plötunni að hún samanstandi
af ýmsum einkennum rökkur-
myndahefðarinnar (film noir),
gamaldags raddbeitingu í bland
við R&B með myrkum rafhljóm-
um. Sölvi segist í raun ekki vita
hvað þessi lýsing þýði og er þá
beðinn um að lýsa tónlistinni sjálf-
ur. Hann segir bestu lýsinguna
ættaða úr útvarpsþættinum
Víðsjá, umsjónarmaður þáttarins
hafi lýst tónlistinni sem „silki-
poppi“. „Þetta er náttúrlega bara
hljómsveitin okkar Rakelar og
seinna í þessari lýsingu [frá Senu,
innsk.blm.] kemur David Lynch
leikstjóri fyrir og það er kannski
betri lýsing. Við vorum að reyna
að gera eitthvað svona einlægt
„naiveté“. Við vildum að músíkin
okkar virkaði við Twin Peaks
sjónvarpsþættina,“ segir Sölvi til
Skrítið popp og silkipopp
Samstarfsmenn „Ég hélt, satt best að segja, að enginn myndi nenna að hlusta á það sem ég var að sýsla en Rakel
kom í heimsókn og þetta fór úr því að verða mitt yfir í að verða okkar,“ segir Sölvi um tónlist tvíeykisins Hallelu-
wah. Hér sést hann með samstarfskonu sinni, myndlistar - og tónlistarkonunni Rakel Mjöll Leifsdóttur.
frekari skýringar. „Þetta er popp
en samt eitthvað skrítið popp.“
– Er það ekki nýtt fyrir þér?
„Jú, sjálfsagt, en ég hef verið að
vinna í þessum hljóðheimi í nokk-
ur ár, frá því ég var í námi í
Stokkhólmi. Þá fór ég að gæla við
þessar hugmyndir um einfaldleik-
ann, að setja einfaldar melódíur í
mjög skrítið samhengi. Ég hélt,
satt best að segja, að enginn
myndi nenna að hlusta á það sem
ég var að sýsla en Rakel kom í
heimsókn og þetta fór úr því að
verða mitt yfir í að verða okkar,“
svarar Sölvi.
Þótti myndlistin spennandi
Rakel Mjöll er menntuð mynd-
listarkona auk þess að starfa við
tónlist og þess má geta að hún
söng árið 2011 með tveimur systr-
um sínum í Song, gjörningi
frænda þeirra, Ragnars Kjart-
anssonar, á sýningu hans í Pitt-
sburgh Carnegie Museum of Art í
Bandaríkjunum. Systurnar sungu
sama stutta lagið í sífellu í tæpar
þrjár vikur.
Spurður að því hvernig leiðir
þeirra hafi legið saman segir Sölvi
að hann hafi ekki vitað að Rakel
gæti sungið en séð myndlist eftir
hana og þótt hún mjög spennandi.
„Þannig að ég hugsaði að ef hún
gæti gert flotta myndlist gætum
við kannski unnið saman og það
varð niðurstaðan,“ segir Sölvi.
– Á tónleikum komið þið fram
með aukatrommara, ekki satt?
„Jú, við höfum ekki náð að þróa
tónleikahlutann af þessu til fulln-
ustu en stundum erum við með
aukatrommara, höfum verið með
tvö trommusett og ég hugsa að við
munum alltaf vera með svolítið
mikið slagverk. Við höfum spilað á
10-15 tónleikum og það er góður
staður til að æfa sig á, prófa lög-
in,“ segir Sölvi og að útgáfu-
tónleikar Halleluwah verða haldn-
ir í byrjun maí.
Platan Umslag plötu Halleluwah
prýðir verk eftir Karenu Ösp Páls-
dóttur. Fyrirsætan er söngkona
sveitarinnar, Rakel Mjöll.
Halleluwah, hljómsveit Sölva Blöndal og Rakelar Mjallar Leifsdóttur, sendir frá sér fyrstu breið-
skífuna „Við vildum að músíkin okkar virkaði við Twin Peaks sjónvarpsþættina,“ segir Sölvi
Skáldsagan Fiskarnir hafa enga fæt-
ur eftir Jón Kalman Stefánsson kom
nýverið út á sænsku í þýðingu Johns
Swedenmark og hefur fengið glimr-
andi móttökur gagnrýnenda þar í
landi. „Fáum rithöfundum tekst að
skrifa um myrkur, sorg og óham-
ingju á jafngáskafullan hátt,“ skrifar
Ann Lingebrandt fyrir Hels-
ingborgs Dagblad og tekur fram að
prósi Jóns Kalmans „geri himininn
hærri, nóttina bjartari og hjartað
stærra“. Að mati Lingebrandt virka
íslenskar bókmenntir oft kaldrana-
legar og endurspegli með þeim hætti
hrjóstrugt landslagið. Segir hún
texta Jóns Kalmans hins vegar ein-
kennast af miklum hita og orða-
flaumur hans minna á „rennandi
hraun rétt áður en það storknar“,
skrifar Lingebrandt og tekur fram
að hún telji góðar líkur á því að Jón
Kalman hreppi bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu
sína.
Undir þetta tekur Lisbeth
Antonsson í Corren. Þar bendir hún
á að Jón Kalman hafi margoft verið
tilnefndur til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs fyrir bækur sínar.
„Og í ár ætti hann virkilega að fá
verðlaunin fyrir bók sína.“ Segir hún
höfundi takast að flétta saman erf-
iðum lífsskilyrðum og sterkum nátt-
úruöflum þannig að úr verði skín-
andi bókmenntaverk. Um Jón
Kalman segir hún að hann sé „meist-
ari orðsins sem skrifi um sorg, þrár
og ást á óviðjafnanlegan hátt“.
Jonas Thente segist í umsögn
sinni í Dagens Nyheter heillast af
„ákafri leit hans að heildstæðri
manneskju og sannindum“. Bendir
hann á að Jón Kalman snúi sér í nýj-
ustu bók sinni „aftur að þeim við-
fangsefnum sem gert hafa hann að
einu virtasta nútímaskáldi íslensks
bókmenntalífs“, skrifar Thente.
silja@mbl.is
Spá Jóni Kalmani
verðlaunum í haust
Hrós Jón Kalman Stefánsson rithöf-
undur fær góða dóma í Svíþjóð.