Reykjalundur - 01.06.1964, Page 5

Reykjalundur - 01.06.1964, Page 5
SVERRIR ÞORBJARNARSON forstjóri Tryggingarstofnunarinnar: Samband íslenzkra berklasj úklinga hefur nú starfað í meira en aldarfj órðung og gert ómetan- legt gagn, ekki eingöngu félagsmönnum sínum, heldur og allri íslenzku þjóðinni og haft áhrif langt út fyrir landsteinana, því þessi samtök hafa borið hróður íslands út um víða veröld. Ég hef nokkuð kynnzt þessu starfi, enda ýms tengsl milli S.Í.B.S. og Tryggingastofnunarinnar. Eins og gefur að skilja hefur fátt veitt mér meiri ánægju en að fá tækifæri til þess að fylgj- ast með starfsemi og áhugamálum forráðamanna S.I.B.S. þó skoðanir hafi stundum verið skiptar um það, hversu hratt skyldi halda. Þórður Bene- diktsson, forinaður S.Í.B.S. hefur því stundum sagt við mig: Finnst þér að S.Í.B.S. hafi lokið hlutverki sínu? — og ég jafnoft svarað: Nei, það eru og verða alltaf verkefni fyrir S.Í.B.S. og þið hafið nú mesta möguleika til þess að leysa þau vel af hendi. Og þá er ég kominn að efninu. Það er álit mitt og ég vona að það sé rétt, að þó að S.Í.B.S. hafi komið miklu í verk hingað til, sé það þó meira sem eftir er. Uppbygging samtakanna og hin félagslegu tengsl einstaklinganna, sem og hin fjölþætta reynsla, sem forráðamenn S.Í.B.S. hafa öðlazt í áraluga starfi er svo mikilvæg, að starfsemi S.Í.- B.S. má ekki ljúka, meðan verkefni eru fyrir hendi á sviði öryrkjamála. Það væri að vísu glæsilegur árangur, ef sam- tökin hættu að vera til, vegna þess að berldaveik- in væri að fullu sigruð, en því miður á það óefað enn langt í land. Hins vegar held ég, að öryrkjasamtökin verði að vera við því búinn, að þeim berist ekki jafn- mikilhæfir forustumenn í jafn ríkum mæli úr röð- um berklasj úklinga og hingað til. Eitt af vandamálum vinnuheimila og vinnu- stofa öryrkja er að félagsmenn eldast og verða ekki starfhæfir á vinnuheimilum vegna ellihrörn- unar. Það er hin eðlilega þróun, sem enginn, er verður nægilega gamall fær umflúið. Þetta minn- ir á, að fleiri hafa skerta starfsgetu heldur en ör- yrkjar. Að vísu er tekið svo til orða að menn láti af störfum vegna aldurs, en að sjálfsögðu er það vegna þess, að með aldrinum verður starfsorkan venjulega minni. Samkvæmt skilgreiningu almannatrygginga, er enginn öryrki eftir 66 ára aldur, þá eru menn komnir á ellilífeyrisaldur. A þeim aldri eru um 12.000 menn í landinu og það er stærsti hópurinn með skerta starfsorku. Þessi hópur er ekki félagslega skipulagður, en hefur þó sameiginlegra hagsmuna að gæta á ótal sviðum, í tryggingarmálum, vistheimilamálum, heimilishjálp o. fl. og þetta er eini hópurinn með skerta starfsorku, sem allir vilja að verði sem f j ölmennastur. Ekki vantar heldur, að í þessum hópi séu hæfi- leikamenn með félagslega reynslu og margir þeirra eru ekki störfum hlaðnir og gætu því sinnt þessum málum, en líklega vantar þarna aðeins frumkvæðið. Þó berklaveikin hafi ekki skilið eftir marga forustumenn S.Í.B.S., sem hafa náð ellilífeyris- aldri, finnst mér S.Í.B.S. vel geta átt frumkvæðið að því að skipuleggja áhugamenn úr þessum hópi til félagslegs samstarfs, og ég fæ ekki betur séð en að þarna gæti verið virðulegur arftaki S.Í.B.S. ef svo kynni að fara að berkalveikinni yrði að fullu útrýmt. Sverrir Þorbjörnsson. En enginn, sem kveikt hefur Ijós, hylur það með keri, eða setur það undir bekk, heldur setja menn það á Ijósastiku, til þess að þeir, sem inn koma, sjái Ijósið. Því að ekkert er leynl, sem ekki muni verða opinbert, né nokkuð hulið, sem ekki verði kunnugt og komi í Ijós. Lúk. 8, 16—17. Reykjalundur 3

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.