Reykjalundur - 01.06.1964, Side 6

Reykjalundur - 01.06.1964, Side 6
/ Róm. Oddur Ólajsson yjirlœknir lengst til hœgri. ODDUR ÓLAFSSON : Rómarför AlþjóSasamband berklavarnafélaga, I.U.A.T., hélt 17. þing sitt í Róm, dagana 24—28. septem- ber 1963. Fundinn sátu um 4000 manns, læknar og leikmenn frá 78 löndum er mynda sambandið. Frá íslandi vorum við fjögur, dr. Óli Hjaltested, ég og konur okkar. Þing Alþjóðasambandsins eru haldin fjórða hvert ár. Venjulega er skipt um fundarstað, t. d. var síðasta þingið (1959) í Tyrklandi og verður næst í Þýzkalandi. Róm er eini staðurinn, er nýt- ur þess heiöurs að hafa tvisvar verið aðsetur þessa merka þinghalds. Þingið var sett í stærsta fundarsal borgarinnar með mikilli viðhöfn. For- seti Ítalíu var þar viÖstaddur og margt stórmenni annaÖ. I setningarræðu ræddi forseti Alþjóöasam- bandsins, próf. Athilio Zorini frá Róm, nokkuö þá byltingu, er oröið hefði í berklavörnum og berklalækningum síðustu áratugina. Hann gat þess, að hægt er nú að hafa stór áhrif á útbreiðslu veikinnar, ýmist með bólusetningu eða lyfjagjöf- um til varnar. Að hægt er með þeim lyfjum, sem nú eru þekkt, að lækna nærri alla er sýkjast, en þótt svo væri, þá væri berklaveikin mesti ógnvald- ur ungs fólks, helmingur alls mannkyns hefði sýk- ilinn í sér og gæti því hvenær sem væri sýkzt af berklaveiki. Enn væri hún dánarorsök nr. 1 á aldrinum 20—40 ára. Meginumræðuefni þingsins skiptist í 3 aðal- flokka: 4 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.