Reykjalundur - 01.06.1964, Síða 8

Reykjalundur - 01.06.1964, Síða 8
Bólusetning og lyíjagiöf til varnar 8 lönd lýstu árangri af BCG, bólusetningu eða isoniazid-gj öf til varnar sýkingu. Um bólusetningu gegn berklaveiki hefur svo inikið verið rætt og ritaS, aS ég sleppi því. Síðustu 10 árin hafa í ýmsum löndum verið gerðar tilraunir með að gefa isoniazid til þess að koma í veg fyrir berklasýkingu. Slík lyfjagjöf kemur til greina hjá eftirtöldum aðilum: a) Fólk sem hefur náin samskipti við berkla- sj úklinga. b) Börn 2—3ja ára, sem eru Tuberculos-pósi- tív. c) Unglinga og fullorðna, sem taka bakterí- una. Auk þess töldu Rússarnir að gefa ætti þeim, sem læknaðir hafa verið af berklaveiki með lyfj- um, isoniazid 3 mánuði á ári um langt skeið til þess að forðast endursýkingu. Japanarnir töldu sig hafa 5 til 6 sinnum færri sjúkdómstilfelli meðal þeirra, sem fengið höfðu lyf til varnar. Danirnir gerðu þarna grein fyrir árangri af isoniazid-gjöf í Grænlandi. Þar var sama sagan, sjúkdómstilfelli voru færri í isoniazid-hópnum, þegar litið var á heildarárangur rannsóknanna. Þess er vert að geta að Danir hafa unnið gífur- legt starf í berklamálum Grænlendinga síðustu árin og náð mjög góðum árangri. Areynsla og vinna meðan ó meðferð við berkla- veiki stendur Skýrslur frá 6 löndum voru fluttar um þetta efni. Ollum kom saman um, að ekki væri þörf langrar rúmlegu eins og áður var. Eftir stutta legu oft 20—30 daga, ætti sjúklingurinn að fara að reyna á sig, fyrst göngur, síðar íþróttir og loks vinna í vaxandi mæli. Rússi flutti aðalfyrirlesturinn um þetta efni og þar sem þetta er áhugamál allra S.I.B.S.-félaga, set ég hér glefsur úr skýrslu hans: Síðan lyfjanotkunin kom til sögunnar þurfum við sjaldan meira en 20—30 daga rúmlegu. Löng rúmlega, sem meðferð, t. d. upp í 6 mánuði, þol- ist illa af sjúklingum. Hún er ekki nauðsynleg, og við notum hana ekki. Þegar einkenni eiturverkana (intoxication) eru horfin, eða hafa minnkað stórlega, fær sjúkling- urinn æfingar, öndunaræfingar og stuttar göngur. Eftir því sem ástand sjúklingsins batnar er á- reynsla aukin, leikjum og íþróttum bætt við. — Vakað er yfir áhrifum áreynsluaukningarinnar með því að mæla hita, sökk, öndunartíðni, púls o. s. frv. Vinna Á meðan á Iækningu berklanna stendur má líta á vinnuna í fyrsta lagi sem lið í lækningunni. í öðru lagi sem undirbúning undir ævistarfið. Lækningagildi vinnunnar er bæði líkamlegt og andlegt. Hún er bæði endurhæfing og hjá vissum hópum sjúklinga verður að kenna þeim ný störf á meðan á sjúkrahúsvistinni stendur. Áframhald- andi kennsla fer svo fram eftir að hælisvistinni lýkur, ýmist í sérstökum stofnunum eða venjuleg- um atvinnufyrirtækjum. Kennsla nýrra starfa er nauðsynleg þeim, er áður unnu við ýmis óheppi- leg störf, er hann nánar greindi. Við val slíkra sjúklinga þarf að taka tillit til eftirfarandi: 1. Batahorfur. 2. Líkamsþol. 3. Ahnenn menntun sjúklingsins. 4. Fyrri störf og námstími nýja starfsins. Til að gera þessa þjálfun mögulega, hafa hæli og sjúkrahús sérstakar vinnustofur. Helztu grein- ar: trésmíði, bókband, málmsmíði, sauma- og prjónastofur, bókhald, myndasmíði og áhalda- gerð. í landbúnaði: vinna í skrúðgörðum, mat- jurtagörðum og gróðurhúsum. Vinnustofurnar eru rúmgóðar, vel birgar af efni, vélum og áhöld- um. Vinnan er 3—5 slundir daglega, hvíld 10 mín. eftir 50 mín. vinnu. Fjárhald vinnustofanna er sér, en sala afurðanna stendur ekki alltaf undir kostnaðinum. Sjúklingunum eru ekki greidd laun fyrir vinnu sína. Vinnan skiptist þannig: trésmíði 10—12%, saumaskapur 5—6%, málmsmíði 3—4%, land- 6 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.