Reykjalundur - 01.06.1964, Side 20
F jallalœkir
— Þú ert nýkominn frá Bretlandi, Eiríkur.
Ilvað geturðu sagt mér markvert úr þeirri gerð?
— Erindi mitt var fyrst og fremst að skoða
inikla málverka- og höggmyndasýningu, sem stóð
þá yfir í London. Þar mátti virða fyrir sér helztu
listastefnur, þróunarferil þeirra og breytingar frá
síðastliðnum tiu árum.
— Það er viðurkennt, Eiríkur, að þú ert einn
af helztu abstraktmálurum íslendinga uin þessar
mundir.
En það er einnig kunnugt, að hér á landi og
raunar víðar um veröldina, hefur þessi listastefna,
ef ég má komast svo að orði, verið mjög um
deild. Mikill fjöldi fólks telur sig ekki fá skilið ab-
straktmálaralist og fellir þá oft um leið þann dóm,
að hún sé einskis nýt og hafi ekkert listrænt gildi.
Aðalerindi mitt til þín í dag er einmitt það, að
fá þig til þess að segja álit þitt um þessa listgrein,
eftir því sem þú telur þér fært í fáum orðum. Ef
til vill mætti það verða til þess að leiða í ljós
sannindi, sem mörgum hafa verið hulin. Sjálfur
hef ég enga trú á því, að vel gefnum, unguin
mönnum, með langa menntun að baki, sé minni
alvara með sinni abstrakt listtúlkun, en hinum,
sein tjá, það sem þeir sjá, á naturalistiskan hátt.
Og nú gef ég þér orðið, Eiríkur.
— Ég vil þá fyrst taka það fram, að ótal stefn-
ur hafa skotið upp kollinum innan abstraktmál-
verksins. Geomatriska flatarmálverkið var lengi
mjög rikjandi og skírskotaði að mestu til skyn-
seminnar í járnharðri byggingu. En nú á síðari
tímum hefur það talsvert orðið að víkja fyrir svo
kallaðri lyriskri abstraktion. Ég tel, að myndirn-
ar mínar séu að einhverju leyti undir áhrifum
Jieirrar stefnu.
Það er nú einu siuni svo, að list verður ekki út-
skýrð nema að takmörkuðu leyti.
í fleslum inyndum mínum hef ég orðið meira
og minna fyrir áhrifum af landslagi og veðráttu.
Þessir þættir í náttúrunni hafa verkað ákaflega
sterkt á mig, alll frá því, að ég var smádrengur.
f abstrakt málverki er ekki lengur hægt að
18
Reykjalundur