Reykjalundur - 01.06.1964, Side 37

Reykjalundur - 01.06.1964, Side 37
Hvað er stjörnuhrap? Það er svartamyrkur. Skyndilega sérðu glóandi stjörnu hrapa til jarðar. Þetta gerist mjög fljótt og þú veizt ekki hvað af stjörnunni verður, þeg- * * * ^ * * ar hún snertir jörðina. Þú hefur séð stjörnuhrap, og um leið rifjast það upp fyrir þér, að gamla fólkið hefur frætt þig á því, að sá, sem sér stjörnuharap, á óskastund á því augnabliki. Þú flýtir þér að óska þér einhvers, þó það sé líklega of seint, því stjarnan er þegar hröpuð. Innst inni veiztu líka, að orðið stjörnuhrap er markleysa ein. Stjörnurnar, sem við sjáum á næturhimninum eru stórir hnettir, stærri en jörðin okkar margir hverjir. Það sem þú sást falla var glóandi steinhnull- ungur, ef til vill aðeins fáein grömm að þyngd, í hæsta lagi nokkur kíló. Þúsundir slíkra steina falla til jarðar í sífellu, eða nálægt jörðinni, án þess að við veitum því athygli. Flestir eyðast þeir og verða að engu á leiðinni gegnum geiminn. Samt sem áður er ekkert á móti því að reyna, hvort trú gamla fólksins er rétt, og óska sér ein- hvers. Það er aldrei að vita nema óskin rætist! Stingur strúturinn höfðinu í sandinn? Því er almennt trúað, að strúturinn stingi höfð- hiu í sandinn, ef hættu ber að höndum. En eins og margt annað, sem slegið er föstu að órannsökuðu máli, er þetta ekki á rökum hyggt. Það er staðreynd að strúturinn er mjög á verði gegn margs konar hættum, og hann flýr eins og fætur toga, verði hann var við einhvern háska, ímyndaðan eða raunverulegan. Menn hafa veitt því athygli, að strútur, sem er með ungana sína með sér og verður var við mannaferðir, kastar sér gjarnan á jörðina, eins og hann sé særður, til þess að blekkja veiðimenn- ina og leiða athygli þeirra frá ungunum. Þetta sýnir að jafnvel á hættustund stingur hann ekki höfðinu í sandinn, heldur reynir að bjarga sér og afkvæmum sínum á þann hátt, sem hann er helzt fær um. Reykjalundur 35

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.