Reykjalundur - 01.06.1964, Síða 41

Reykjalundur - 01.06.1964, Síða 41
þau saman við kanzlarastarf hans í Þýzkalandi hjá örbjarga og sigraöri þjóÖ, sem rambaöi á barmi byltingar. Og frýjaði honum þó enginn vits á hermálasviðinu. Það var ekki hans sök, þó aÖ syndaflóðið kæmi eftir hans dag og ólánsmað- urinn Hitler settist að völdum. En hvernig var þá ástandið á voru landi á með- an á þessum ófriði stóð? Við vorum svo lánsam- ir að hafa eignazt ofurlítinn skipakost sjálfir, fyrstu Fossana okkar. Þessi litlu skip færðu nú björg í bú, nauma að vísu, en næga þó. Við, sem þá liföum, munum skömmtun á kaffi, sykri og hveiti. Var þetta treint handa gestum. Einungis fluttist strásykur og var bræddur úr honum hellu- sykur á pönnu. Þá var nú sykurmolinn dýrmætt sælgæti. Blessuð mjólkin hætti kaffileysið í sveit- inni. Man ég, að haustið áður en saga mín gerðist, fluttist ekkert haframjöl til Blönduóss, sem var kaupstaður okkar. Gestkvæmt var og leizt móður minni ekki á blikuna. Víða var reynt að elda graut úr rúgmjöli. En þó að rúgmjölsgrautur geti verið góðmeti, gafst það ekki vel að þessu sinni af ástæðum, er síðar verða skýrðar. Dag einn koin faðir minn utan úr skemmu með maíspoka á haki. Skákaði hann pokanum inn í búr til mömmu og sagÖi, að úr þessu skyldi hún reyna að gera graut. En maís keypti faðir minn nægan á hverju hausti handa hestum sín- um. Móður minni féllust fyrst orð, en svo mælti hún: „Heldur þú að fólkið vilji borða þetta, góði minn?“ „Ef við og hörnin borðum jiað, vona ég að vinnufólkið geri sér það líka að góðu. Við gevm- um haframjölspokann, sem eftir er, handa gest- um,“ svaraði faðir minn stutt. Og þetta var reynt — og gafst ágætlega. Meira að segja við börnin, sem aldrei vildum hafragrautinn, — okkur þótti maísgrauturinn sannkallað lostæti. En ekki veit ég til að þetta væri reynt víðar. Hitt bárum við ekki skynbragö á, hvílík bætiefnablessun þessi fæða var með nýmjólk út á. En annað var lakara. Rúgmjölið, sem fluttist til Blönduóss þetta haust, var bersýnilega vart ætlað til manneldis. Það var drýgt með söxuöum hálmi — svo sem gert er til skepnufóöurs. Nærri má geta, að illt var að baka úr því og brauðin vond til átu. Og heldur ekki gott til grautargerð- ar. En annað var ekki að fá og urðu húsmæður að bjargast við það. En ekki þótti okkur börnun- um þetta brauð ljúffengt. Þetta gerðist að vorlagi. Við faðir minn höfð- um verið að einhverjum útiverkum og komum seinna til matar en hitt fólkið, borðuðum þvi tvö ein. Þá gáði ég ekki að mér, en fór að finna að matnum, — hvað þetta brauÖ væri vont, — það væri blátt áfram ómögulegt að leggja sér það til munns. FaÖir minn var aldrei margmáll, er hann vand- aði um við okkur börnin, en orð hans hittu jafn- an í mark. Nú leit hann upp og svaraði seint, en með þunga í röddinni, þessum orðum: „Heldur þú ekki, Helga mín, að börnin suður í Evrópu, sem hafa ekkert að borða — og mörg hver hvorki hæli né aÖhlynningu, — yrðu ekki fegin, ef þau hefðu brauÖiÖ þitt, Jió að þér þyki það ekki mannamatur?“ Það gildir einu, hve mörg orð og fögur faðir minn hefði talað fyrir þessu máli. Ekkert hefði hæft betur en þessi fáu, ákveðnu orð. Ég blygð- aðist mín svo fyrir hugsunarleysi mitt og gikks- hátt, að ég fór beinlínis að gráta af skömm. Nú rifjaöist upp fyrir mér það, sem ég hafði lesið í blöðunum um neyðina í Evrópu, ávarp Austur- ríkismannsins og fleira. Ég mundi, að þess var getiÖ, að sums staðar legðu börnin sér mold til munns í brauðs stað. Og ég maulaði vonda brauðið mitt skælandi af skömm og hafði tárin mín fyrir viðbit. Að lokinni máltíÖ rölti ég út á hólinn minn, - - en svo kallaði ég hól einn í Norðurtúninu á Hóla- baki. Þar settist ég og fór að ræða við guð al- máttugan. Utlistaði ég fyrir honum, að hann mætti ómögulega standa í þeirri meiningu að öll islenzka þjóðin væri svona vanþakklát og gikks- leg, þó að ég hefði gert mig seka í jiví, — rétt eins og hann gæti enga grein gert sér fyrir því ellegar. Og ég bað liann að láta þessa yfirsjón Reykjalundur 39

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.