Ægir - 01.04.2014, Síða 8
8
S e n d u m s j ó m ö n n u m
o k k a r b e s t u k v e ð j u r í t i l e f n i
a f s j ó m a n n a d e g i n u m
Pavel KudakhovYantarniy
Kai Shun
Admiral Shabalin
Kai Li
Ocean Explorer Northern Eagle
Kaiyo Maru nr 51
Kodiak Enterprice
- Nútíminn er rafdrifi nn
M i ð h e l l a 4 │ 2 2 1 H a f n a r f j ö r ð u r │ s . 4 1 4 8 0 8 0 │ w w w. n a u s t . i s │ n a u s t @ n a u s t . i s
Ægir Franzson, skipstjóri á
frystitogaranum Þerney sem
HB Grandi gerir út, hefur verið
til sjós frá því hann var sjö ára
gamall. Ævi og ferill hans er því
jafn nátengdur sjónum og
hugsast getur og hann hefur
séð tímana tvenna í sjó
mennskunni. Hann var stýri
maður um borð í Snorra Sturlu
syni þegar áhöfn skipsins vann
mikið björgunarafrek í nóvem
ber 2001 þegar Örifirisey rak
stjórnlaus að landi undir
Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi.
Ægir var á síðutogurunum á
sjötta og áttunda áratug síð
ustu aldar og upplifði togara
sjómennskuna eins og hún
gerðist á þeim árum. Við áttum
spjall við Ægi á Kaffivagninum
á Grandagarði í blíðskaparveðri
nýlega.
Kynntist togarasiglingunum
„Ég ólst upp í Flatey á Breiða-
firði til níu ára aldurs hjá ömmu
minni og fóstra, Sveini Jónssyni
sem var virtur formaður á sinni
tíð í Breiðafirði. Ég fór snemma
til sjós með honum sem krakki.
Ætli ég hafi ekki verið á áttunda
ári þegar við fórum á skak og
hrognkelsanet. Svo var þarna
náttúrulega mikil fuglaveiði.
Þetta var yndislegur tími í
fallegu umhverfi. Flatey er
breytt ur staður í dag og þang-
að sækja að mestu leyti ferða-
menn,“ segir Ægir.
Fjölskyldan flutti svo á möl-
ina þegar Ægir var níu ára gam-
all. Hann réði sig svo sem lið-
létting, eða háseta á ½ hlut, á
togara, fjórtán ára gamall. Hon-
um lá á að drífa sig út í atvinnu-
lífið. Árið 1967 fór hann sinn
fyrsta túr á Röðli frá Hafnarfirði.
„Ég hef verið á sjó síðan, að
undanskildum fjórum árum
þegar ég vann hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna við fiskeftirlit
þegar útgerð frystitogaranna
var að hefjast,“ segir Ægir.
Eftir Röðul réði hann sig á
Úraníus sem bátsmann og í
framhaldi af því á hina ýmsu
síðutogara. Þegar Ægir er
spurður um lífernið sem fylgdi
togarasjómennskunni á þess-
um árum horfir hann dreyminn
á svip út yfir höfnina og hlær.
„Það var aðeins öðruvísi en
þetta er í dag. Samt voru þetta
allt stórfínir kallar en það var
mikil drykkja. Ég var eiginlega
allan tímann í siglingum og
Röðull sigldi allt árið til Þýska-
S
jóm
en
n
sk
a
n
Ægir Franzson, skipsjóri á Þerney. „Hér áður fyrr var það fyrst og
fremst magnið sem skipti máli. Allt snýst núna um að framleiða
gæðavöru, fá fyrir hana sem hæsta verð og fullnýta aflann.“
Verið til sjós
frá sjö ára aldri