Ægir - 01.04.2014, Side 11
11
taug og að undirbúa frekari að-
gerðir var ákveðið að Snorri
Sturluson myndi reyna að
koma taug í Örfirisey. Á þess-
um tíma setti skipstjóri Örfiris-
eyjar út trollið og lét það ná vel
í botn og dró það verulega úr
rekhraða.
Í annarri tilraun um kl. 07:16
tókst að koma línu á milli
Snorra Sturlusonar og Örfiris-
eyjar og var lokið við að koma
dráttartaug á milli þeirra kl.
08:35. Byrjaði Snorri Sturluson
þá að draga Örfirisey frá landi,
en þá var skipið statt um eina
sjómílu frá Grænuhlíð. Um kl.
12:00 hafði tekist að fram-
kvæma bráðabirgðarviðgerð
og var skipinu siglt fyrir eigin
vélarafli til hafnar á Ísafirði og
kom að bryggju kl. 19:00 um
kvöldið.
Einn skipverji um borð í
Örfirisey RE slasaðist lítillega á
fæti þegar taug slitnaði.“
Af þessari lýsingu má ráða
að varðskipsmenn áttu í mikl-
um erfiðleikum með að koma
taug yfir Örfirisey. Sá sem á
endanum skaut taug yfir skipið
var einmitt Ægir Franzson, sem
þá var stýrimaður á Snorra
Sturlusyni. Var þetta lokatil-
raunin og áður höfðu einar átta
tilraunir til að koma taug yfir í
skipið mistekist.
„Það var algjört foráttuveð-
ur þegar þetta átti sér stað og
það mátti engu muna að illa
færi. Það voru 27 manns um
borð í Örfirisey og það var mikil
hætta á ferðum. Skipið stefndi
upp í klettana í miklu brimróti.
Það er góð tilfinning að hafa
tekið þátt í þessari björgun,“
segir Ægir.
Gæði og fullnýting aðalatriðin
Ægir réði sig sem skipstjóra á
Þerney árið 2006 ásamt Kristni
Gestssyni, sem var einmitt skip-
stjóri á Snorra Sturlusyni þegar
þeir unnið björgunarafrekið.
Þeir hafa verið á veiðum á
heimamiðum en einnig við
Rússland. Hann segir lítinn
mun á því að vera að veiðum í
Barentshafi og hér heima. Sigl-
ingin frá Rússlandi á miðin geti
að vísu tekið allt að einni viku
en 3-4 daga þegar siglt er frá
Noregi. Það sem ræður því
hvort haldið er á veiðar í
Barentshafi eða hér heima er
kvótastaðan.
Hann segir að Þerney sé
með tvær 27 manna áhafnir.
Skipið er fljótandi verksmiðja
og allur aflinn er fullnýttur. Vör-
unni er pakkað í neytendaum-
búðir um borð og það sem nýt-
ist ekki til manneldis er brætt í
úrvals fiskimjöl um borð í skip-
inu. „Eins erum við að byrja að
frysta roð til frekari vinnslu í
landi.“
Hann segir að stóra
breytingin sé kvótasetningin
1984. „Ég er svo heppinn að
hafa fengið að taka þátt í þessu
þegar frjálsar veiðar voru við
lýði. En kvótasetningin hefur
líka orðið til góðs. Núna er
meira litið til nýtingar, gæða og
verðs. Hér áður fyrr var það
fyrst og fremst magnið sem
skipti máli. Allt snýst núna um
að framleiða gæðavöru, fá fyrir
hana sem hæst verð og fullnýta
aflann.“
Þerney var einn fyrsti togar-
inn sem hélt á makrílveiðar hér
við land. Ægir segir að veiðarn-
ar séu ekki ósvipaðar öðrum
veiðum. Munurinn felist í
vinnslunni og því að flottrollinu
er haldið alveg upp við yfirborð
sjávar. Makríllinn er á stöðug-
um spretti enda ekki með
sundmaga og heldur sig við yf-
irborðið.
„Makríllinn er rosalega fín
viðbót fyrir útgerðina hér á
landi og hefur sennilega algjör-
lega bjargað okkur síðustu ár-
in.“
Geysilegar breytingar í hafinu
Ægir segir að sem skipstjórnar-
maður hafi hann upplifað
geysilega hraðar breytingar í
hafinu. Hann óttast að sú að-
ferðafræði sem vísindamenn
styðjist við sé ekki í takt við
þessar hröðu breytingar. „Við
sem erum í brúnni og horfum
út á hafið á hverjum einasta
degi sjáum þessar breytingar
sem eru afleiðingar hlýnunar
sjávar. Fyrir nokkrum árum
þurfti að sigla suður fyrir land
til að veiða ýsu. Nú er öll ýsan
komin norður fyrir land. Svo er
því haldið fram ýsustofninn sé
svona lélegur annars staðar. Þá
er gífurlega mikið af hval allt í
kringum landið. Hvalagengd er
miklu meiri en fyrir nokkrum
áratugum,“ segir Ægir.
Ægir segir að koma þurfi á
meiri frið og sátt á milli þjóðar-
innar, útgerðarmanna og sjó-
manna. „Það er synd hvernig
stjórnmálamenn og fjölmiðlar
hafa alið á ósátt innan þessarar
einu atvinnugreinar.“
MÆLAR
– fyrir báta og önnur tæki,
flestar gerðir til á lager.
Borgartún 36 | 105 Reykjavík | 588 9747 | www.vdo.is
SÉRPÖNTUM
OG SENDUM