Ægir - 01.04.2014, Side 35
35
námsafmælið 1974, en það
gekk hins vegar ekki eftir. Hann
gerði bátinn engu að síður upp í
þeirri aðstöðu sem hann hafði
heima á Hvallátrum og þar er
báturinn enn þann dag í dag.“
Hafliði segir að um tíma hafi
verið viðræður um að koma á
fót bátasafn í Stykkishólmi en
ekkert varð úr því þannig að
hann hætti að hugsa um þetta.
Hins vegar tók frændi hans, Að-
alsteinn Valdimarsson upp
þráðinn nokkru seinna er hann
flutti á Reykhóla. „Þar var okkur
strax vel tekið og þá fór ég aftur
að hafa afskipti af málinu. Á
Reykhólum hafði verið sett upp
hlunnindasýning á vegum æða-
bænda og varð niðurstaðan sú
að slá þessu saman þannig að
nú höfum við Báta- og hlunn-
indasýningu á Reykhólum.“
Geta ekki tekið við fleiri bátum
Á Reykhólum er húsnæði til að
sýna báta og verkfæri og geng-
ur rekstur sýningarinnar ágæt-
lega að sögn Hafliða þótt hús-
næði bátasafnsins sé allt of lítið,
enda bátarnir fyrirferðarmiklir.
Vegna skorts á geymslurými
hefur safnið því ekki getað tekið
við fleiri bátum. Áhugamanna-
félagið á í dag óuppsetta 540
fermetra skemmu sem menn
vonast til að hægt verði að reisa
við safnið ef tekst að safna fjár-
magni til þess. „Við erum í dag
með 22-23 báta sem eru í mis-
jöfnu ástandi. Einn þeirra hefur
verið gerður upp og er kominn
á flot í góðu ástandi en margir
bátanna, sem virðast heillegir,
eru í raun ónýtir því ef nota ætti
þá þyrfti að skipta um allan við í
þeim. Við höfum verið að flikka
upp á þá til að geta sýnt bátana
en það þarf að gera flestum
þeirra eitthvað til góða.“ Hann
segir flesta bátana á safninu
vera innan við 6 metra langa og
smíðaða á árunum 1930 til 1940
en dæmi eru þó um báta sem
eru allt að 100 ára gamlir. Ekki
eru allir bátarnir notaðir til sýn-
inga því sumir þeirra eru í
geymslu í útihúsum á svæðinu.
Hafliði segir að í dag sé mikil
vakning að varðveita þá báta
sem enn eru til. Hann segist
verða var við þetta vegna þess
að það hafi spurst út að hann
geti útvegað bátasaum sem
þarf til þessara viðgerða, saum
sem er nánast ófáanlegur í dag.
„Það er verið að hringja í mig
alls staðar af landinu til að fá
þennan saum og þess vegna
veit ég að það er mikill áhugi á
að halda í það sem eftir er af
þessum bátum.“
Hafliði segir starf sitt og
Bátasafnsins á Breiðafirði fyrst
og fremst snúast um smærri
súðbyrta báta en ekki um stóru
plankabátana enda séu þeir
miklu fyrirferðarmeiri. Hins
vegar hafi þeir sem geri út
hvalaskoðunarbátana á Húsavík
staðið sig frábærlega í að gera
upp þessa stærri báta. Nú sé svo
komið að af gömlu eikarbátun-
um sem eru í notkun í dag séu
álíka margir gerðir út til fisk-
veiða og hvalaskoðunar.
Vinsæl námskeið
Undanfarin ár hafa Hafliði og
Bátasafnið haldið námskeið í
bátasmíði í samstarfi við
fræðslusetrið Iðu í Reykjavík og
hefur verið góð aðsókn á þau.
Þar hefur verið farið í grund-
vallaratriði í smíði og frágangi
trébáta og læra menn meðal
annars að leggja kjöl og byrðing
auk annarra verklegra þátta.
Ásamt Hafliða hefur Eggert
Björnsson á Patreksfirði kennt á
námskeiðunum en hann hefur
einnig útbúið og teiknað mynd-
ir í þeim námsgögnum sem
stuðst er við á námskeiðunum.
„Ætli það séu ekki samtals um
50 kallar sem hafa sótt þessi
námskeið og ég veit að ein-
hverjir þeirra hafa í framhaldinu
ráðist í að gera upp gamla fjöl-
skyldubáta. Þannig tekst okkur
vonandi að halda í handverkið
og bátana.“
Aðspurður hvort hann óttist
að þekkingin til að smíða tré-
báta muni glatast, segir hann
svo ekki vera. „Þessi kunnátta
mun líklega varðveitast áfram
án þess að vera sérstök iðn-
grein. Það er ekki líklegt að ungt
fólk fari aftur að læra trébáta-
smíði til að hafa atvinnu af því.
Þó er á því skemmtileg undan-
tekning því þessa dagana er
einmitt einn sem hefur verið í
námi hjá mér að fara í
sveinspróf í smíði trébáta hjá
Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Þannig að ennþá er von,“ segir
Hafliði Aðalsteinsson að lokum.
Þennan bát smíðuðu Hafliði og nokkrir félagar úr áhugamannafélaginu
árið 2006 og var smíðin kvikmynduð af Ásdísi Thoroddsen kvik-
myndaleikstjóra og notuð í heimildarmynd og kennslumyndband sem
hún gaf út.
Hafliði við trébát sem hefur
verið í smíðum á námskeiðun-
um undanfarin misseri.