Ægir - 01.04.2014, Side 38
38
Traust geymsla
– og öruggur flutningur alla leið!
Frystigámar
til sölu eða leigu
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
AT
H
YG
LI
Eigum á lager 20 og 40 ft. frystigáma.
Bjóðum einnig gámahús, geymslugáma og
salernishús í ýmsum stærðum og gerðum.
Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum
hvers og eins.
www.stolpigamar.is Hafðu
samband!
Það er því deginum ljósara
að Samband stéttarfélaga sjó-
manna á höfuðborgarsvæðinu
er án efa eitt af mikilvægustu
stéttarfélagasamtökum sem við
Íslendingar höfum átt. Enn
fremur annast Sjómannadags-
ráð sjálft hátíðarhöldin á sjó-
mannadaginn í Reykjavík sem
aðili að Hátíð hafsins og gefur
út Sjómannadagsblaðið. Sjó-
mannadagsráð hefur byggt 82
raðhús sem eru sjálfseignar-
íbúðir fyrir 60 ára og eldri á lóð-
um Hrafnistuheimilanna. Þeir
sem búa í þessum húsum geta
fengið ýmiss konar þjónustu frá
Hrafnistuheimilunum. Auk þess
á Sjómannadagsráð tæpar 200
íbúðir sem leigðar eru út til 60
ára og eldri. Samtals eru íbúar á
hjúkrunarheimilum, eignar-
íbúðum og leiguíbúðum og
starfsfólk orðið um 2000
manns.
Fleira mætti nefna af fram-
kvæmdum sem Sjómannadags-
ráð hefur staðið fyrir. Af þessu
sést að þeir sem starfað hafa í
Sjómannadagsráði hafa lyft
grettistaki til að gera ævikvöld
sjómanna bærilegt. Líta má á
það sem þakklætisvott lands-
manna fyrir óeigingjarnt og
erfitt sjómannsstarf.
Af hverju elli- og dvalarheimili
fyrir sjómenn?
Að sögn Guðmundar höfðu
starfsmenn stéttarfélaga sjó-
manna meðal annars það hlut-
verk að fara heim til manna og
rukka félagsgjöldin. „Þeir sáu
þar með eigin augum við hvaða
kost menn bjuggu,“ segir Guð-
mundur. „Mjög algengt var að
menn væru komnir í land, langt
um aldur fram, búnir á sál og
líkama. Það varð til þess að
nokkrir þeirra fóru á fund Ólafs
Thors, sem þá var forsætisráð-
herra. Ólafur sendi þá bréf til
nefndar sem stýrði innflutningi
til landsins og tók fram að hann
vildi ekki skipta sér af störfum
nefnda á vegum ríkisins en
fram hjá því yrði ekki litið að
hópurinn sem verið væri að
berjast fyrir samanstæði af
þeim sem öfluðu gjaldeyris-
tekna fyrir þjóðina. Þar með var
Sjómannadagsráði boðin lóðin
í Laugarásnum þar sem Hrafn-
ista er nú staðsett. Á sama tíma
sendi Hafnarfjarðarbær Sjó-
mannadagsráði bréf og bað um
lán upp á 500.000 til að klára
byggingu Sólvangs. Og það var
veitt.
Hornsteinninn að Hrafnistu
lagður
Árið 1954 var lagður hornsteinn
að Hrafnistu í Laugarásnum í
Reykjavík. Þá sagði Ólafur Thors
í ræðu að það væri með ólíkind-
um að kostnaðaráætlun hafi
hljóðað upp á fjórar milljónir
sem hafi staðist upp á eyri. Sjó-
menn hljóti að hafa komið að
útreikningi sjálfir og notað sext-
ant og mælt hæð vísitölu og
vinnuhraða nákvæmlega því
hér hafi allar tölur staðist. Ólaf-
ur bætti svo við að hann hafi
sjálfur byggt einbýlishús í
Garðastræti sem hafi átt að
kosta 60.000 kr. en þegar upp
hafi verið staðið hafi hann þurft
að borga 121.000 kr. Hrafnista í
Laugarásnum var síðan tekin í
notkun árið 1957.
Happdrætti DAS
Áður en hornsteinn Hrafnistu
var lagður var ákveðið að leita
enn og aftur til Ólafs Thors og
nú með þá bón að fá að efna til
happdrættis í fjáröflunarskyni.
„Hvernig gat ég neitað fulltrú-
um Sjómannadagsráðs sem
voru mættir með 20 aflahæstu
fiskiskipstjórana með sér,“ sagði
Ólafur og greiddi götu þeirra.
Guðmundur segir að í vinning í
fyrsta drætti hafi verið sex am-
erískir bílar sem var mjög
merkilegt því það árið voru
fluttir inn 9 bílar. Enda hafi sala
miðanna gengið mjög vel.
Árið 1962 var svo Laugarás-
bíó tekið í notkun og af því var
líka töluverður hagnaður sem
er enn eitt dæmið um framsýni
fólksins sem hefur staðið í eld-
línunni við að byggja upp starf
og aðstöðu fyrir sjómenn.
Hátíð hafsins
„Flestum ber saman um að sjó-
mannadagurinn hafi enn mikið
gildi í augum landsmanna,“
segir Guðmundur. „Mann-
fjöldinn í bænum til að taka
þátt í sjómannadeginum í fyrra
var 20.000. Af því má sjá að
dagurinn nær til almennings og
er mikilvægur í augum lands-
manna. Samvinna náðist meðal
þeirra sem héldu hafnardaginn
hátíðlegan ann ars vegar og svo
sjómannadaginn hins vegar. Nú
eru þessir tveir daga haldnir
saman undir nafninu Hátíð
hafsins og er tveggja daga há-
tíð þar sem laugardagurinn er
hafnardagurinn og sunnudag-
ur inn sjómannadagurinn.
Árið 1941 fórust 139 sjó-
menn sem var geysileg blóð-
taka hjá þessari litlu þjóð. Þar
urðu stórir hópar barna föður-
lausir og konur misstu fyrir-
vinnu. Nú koma ár eins og 2008
og 2011 sem enginn sjómaður
fórst sem ber vitni um gíf-
urlegar framfarir í aðbúnaði sjó-
manna um borð. Þar má þakka
fólki sem hefur unnið af hug-
sjón að vellíðan sjómanna á sjó
og landi.
Á Hátíð hafsins í Reykjavík. Haldið til hafs.
Gleðilega sjómannadagshátíð!
Gleðilega sjómannadagshátíð!