Húnavaka - 01.05.1990, Qupperneq 102
100
HÚNAVAKA
eða Kári, en eftir snarpa viðureign lá 6 punda, grálúsugur, nýrunn-
inn og silfúrgljáandi hængur á bakkanum. Þetta var upphafið að
skemmtilegum degi hjá okkur Pétri, að deginum loknum vorum við
með sjö fallega laxa og alla á flugu.
Við sitjum undir Skrapatungurétt og bíðum þess að verða sóttir.
Það er margt að sjá í náttúrunni ef maður gefur sér tíma til að
horfa með opnum augum.
Við sjáum t.d. heiðlóu sem er að segja ungunum sínum til niðri
á eyrinni, þar er einnig sandlóa og spói, að ógleymdu gæsapari með
sjö unga.
Félaginn haíði töfrað fram viskípela, Jameson hinn írska, og það
glitraði á innihaldið í kvöldsólinni.
Haf þökk fyrir samfylgdina.
Ít ☆ ☆
SÆRING
„Ég stefni þér, vættur, vofa, draugur, dís, andi, ár með svofelldu stefnuv'ætti,
sem fylgir, frá mér og mínum, úti og inni, mönnum sem fénaði, kviku sem dauðu,
á sjó og landi, hvort þú ert af austri eða vestri, norðri eða suðri, eða þar í millum,
af dimmu eða dagsljósi, af sól eður mána, af skýjum eður skini, af dögg eður dreyra,
af grasi eða greinum, af tré eður timbri, af moldu eða mauri, af hjarna eða holdi,
af baðmi eða beinum, af sjón eða sýnum, af húð eða hári, af tám eða tönnum,
af lokk eða lendum, afjöxlum eða jarka, nefndum hlutum eða ónefndum, stefnist
þér frá mér og mínum börnum sem mínum hjúum, foreldrum sem ættfólki, allt
í níunda lið til karls og konu. Far nú svo hátt sem ljós leggur, leiftur líður, skrugga
skriðnar, ský skjálfa, vatn rennur, skip skríður, valur flýgur vorlangan dag með
beinan vind undir báðum vængjum, hugur hvarflar, mögur til móður, maður til
meyjar, vötn til sjávar, blóð til benja, far til foldar og feigur til helju; hver sem
þú vera kannt af helju eða helvíti, eður þar í millum, hlutum nefndum og ónefndum,
eða hverju móti þú ert á stað kominn, með náttúruhætti eða særingum eður svívirði-
legri brúkun hlutanna, stefni ég þér að dómstóli drottins og þaðan í helvíti, að
vitni þeirra heilögu stefnuvotta, Ragúels, Rafaels, Selatyels, Misaels, Mikaels og
Anasyels“. —
Dulheimar íslands.