Húnavaka - 01.05.1994, Page 105
HÚNAVAKA
103
kominn, en var nú orðinn duglegur til vinnu, tók þessi frændi hans
hann til sín og lét hann vinna hjá sér nokkur ár eftir ferminguna,
kauplítið. Þegar Daníel óx fiskur um hrygg, dreif hann sig burtu
frá frændanum og gerðist vinnumaður.
Til okkar, að Bakka, kom hann þegar hann var 18 eða 19 ára.
Hann var fæddur 1878. Okkur þótti öllum vænt um Dana, fannst
hann vera einn af fjölskyldunni. Hann var bráðduglegur sláttumað-
ur, laginn við fé og fjárglöggur með afbrigðum, trúr og húsbónda-
hollur svo af bar. Okkur börnunum var hann sem eldri bróðir og
lék oft við okkur. Hann var dagfarsprúður og nokkuð barnalegur í
sér, en gat verið mjög stífur og þver, ef hann tók eitthvað í sig og þá
var til lítils að tala um fyrir honum.
Veturinn 1902 var tíðin frernur stirð fram að jólum. Daníel ætlaði
í heimsókn vestur að Söndurn til föður síns, ntilli jóla og nýárs. Var
svo ákveðið að hann færi af stað annan dag jóla, yrði um kyrrt á
Söndum tvo til þrjá daga en kæmi heim daginn fyrir gamlársdag,
þann 30. desember. Á Bakka voru húshjón, Sigurður Sigurðsson og
Una Bjarnadóttir. Hjá þeim var dóttir þeirra Steinunn að nafni.
Hún átti son á fóstri í Ásbjarnarnesi í Vesturhópi. Steinunni lang-
aði að sjá son sinn og stakk upp á því við Dana að hún slægist í för
með honum vestur eftir. Dani tók þessu vel, enda virtist svo sem
nokkuð væri farið að draga saman með þeim, þó hún væri talsvert
eldri en hann, kornin yfir þrítugt.
Veðurútlit var ekki gott dagana fyrir jólin. Snjór var talsverður og
öðru hverju hríðarjagandi. Á jóladag var nokkurt frost en sæmilega
gott veður en útlitið ljótt, kólgubakki í norðri, sem hækkaði er á
daginn leið. Faðir minn hafði minnst á það við Dana að fresta för-
inni vestur fram yfir hátíðar eða þar til tíð yrði stöðugri og útlit
betra. Dani féllst á þetta í fyrstu og héldum við öll á jóladaginn að
Dani væri algerlega horfmn frá því að fara að sinni. Á jóladags-
kvöldið, þegar mamma var að skammta, kom Dani inn í búrið til
hennar og spurði hvort ekki væru í lagi plögg hans til fararinnar
vestur eftir næsta dag. Mamma varð hálfundarleg og spurði hvort
honum væri alvara að leggja upp í svona útliti. Dani svaraði þá
nokkuð dræmt: „Það verður víst að vera svo“. Þá hafði hann setið
lengi á tali við Steinunni inni í húsi þeirra Unu og Sigurðar.
Svo stóð á að Steinunn var ráðin til tóvinnu fram í dal strax eftir