Fréttablaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 2
14. maí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Suðaustankaldi og súld eða
rigning sunnan og vestan til í dag,
uppstigningardag, og hiti víða 5 til 10
stig. Þurrt norðaustanlands og jafnvel
sólarglennur, en hiti getur náð allt að
15 stigum. FRÁ STRANDSTAÐ Útgerðarmenn óttast að skipið
brotni niður í fjörunni; þung alda skelli á skrokk bátsins
og lemji því utan í fjöruna. MYND/HARALDUR BJÖRN BJÖRNSSON
VEÐUR
7°
3°
12°
7°
6°
10
9
5
6
9
SJÁ SÍÐU 42
Kringlan | 588 2300
Opið í dag 13-18
Við erum á 1. hæð í Kringlunni
SLYS Mannbjörg varð þegar bátnum Gottlieb
GK39 strandaði við Hópsnes skammt frá innsigl-
ingunni í höfnina í Grindavík. Fjórir menn voru
um borð í bátnum. Bátsverjar gengu frá borði og
upp í fjöru þegar báturinn hafði strandað.
Erfiðar aðstæður eru á strandstað og sam-
kvæmt upplýsingum frá útgerðarfélaginu Nes-
fiski, sem gerir út línubátinn, gæti orðið mjög
erfitt að ná skipinu af strandstað. Skipið er nú
þegar byrjað að brotna niður og göt komin á
skrokk þess. Því gæti farið svo að skipið eyði-
legðist í fjöruborðinu.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðar-
kall frá vélarvana bátnum um hádegisbil í gær.
Þegar í stað var þyrla Landhelgisgæslunnar
kölluð út sem og björgunarsveitir á Suðurnesj-
um og björgunarskip Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar.
Það tók bátinn skamma stund að reka í land
en strekkingsvindur var á svæðinu og aðstæður
erfiðar. Nærstaddir bátar komust ekki í tæka tíð
til að ná að taka bátinn í tog. Sjómenn á bátnum
Gulltoppi náðu þó að koma stuttum spotta í skipið
en hann slitnaði. Ekki var nægur tími til að koma
annarri taug í skipið. Það tók Gulltopp í kringum
tíu mínútur að ná til mannanna.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti sjómennina
í fjöruna og flutti þá til Grindavíkur. - sa
MENNTUN „Við vorum að ræða
hvernig megi efla skólastarfið á
Norðausturlandi. Þetta var góður
og gagnlegur fundur,“ sagði Þór-
unn Jóna Hauksdóttir, sérfræðing-
ur á skrifstofu menntamála innan
menntamálaráðuneytisins.
Fulltrúar menntamálaráðu-
neytisins funduðu með skólameist-
urum Menntaskólans á Trölla-
skaga, Menntaskólans á Akureyri
og Framhaldsskólans á Húsavík
annars vegar og skólameisturum
Verkmenntaskólans á Akureyri og
Framhaldsskólans að Laugum hins
vegar um aukið samstarf og hugs-
anlega sameiningu skólanna.
Hún segir að hugmyndir
um aukið samstarf séu bara á
umræðustigi. Fjárlög 2014 og 2015
gera ráð fyrir auknu samstarfi
framhaldsskóla en það var upp-
hafið að umræðunni.
„Þetta er heildarumræða með
skólunum fimm um hvernig við
getum eflt nám og stoðþjónustu
skólanna. Við munum halda áfram
samtali við þessa skóla um fram-
haldið,“ segir hún.
„Við ræddum hvernig mætti
ná fram hagkvæmni í fjárhag,
rekstri og námsframboði,“ sagði
Lára Stefánsdóttir, skólameistari
Menntaskólans á Tröllaskaga.
„Við fórum yfir þá þætti sem
ráðuneytið gæti fengið út úr
auknu samstarfi eða sameiningu
skólanna og það verður í kjölfar-
ið unnin fýsileikaskýrsla líkt og
í tilfelli Iðnskólans í Hafnarfirði.
Síðan getum við búist við niður-
stöðu í haust,“ sagði Lára.
Katrín Jakobsdóttir, fyrrver-
andi menntamálaráðherra, segir
að áætlanir um sameiningu fram-
haldsskóla hafi ekki verið á borð-
inu í hennar tíð og gagnrýnir sam-
ráðsleysi ráðherra.
„Þetta er auðvitað mjög við-
kvæmt mál og við á þinginu höfum
ekkert fengið að vita um þetta. Ég
lagði fram fyrirspurn til ráðherra
um sameiningu framhaldsskóla
fyrir mánuði en hef ekki feng-
ið nein svör. Við vitum ekki hver
rökin fyrir því eru né hvaða skóla
eigi að sameina,“ segir hún.
„Mig grunar að með þessu sé
ráðherrann að draga úr sveigjan-
leika skólakerfisins. Hættan er sú
að smærri skólar verði einhvers
konar undirdeildir og það dragi
úr þrótti smærri samfélaga,“ segir
Katrín. „Ráðherra ber ekki skylda
til að ræða þetta mál á þinginu en
hugmyndir um slíkar sameiningar
eru ekkert nema stefnubreyting í
menntamálum. Mál af slíkum toga
á erindi inn á þingið.“
Í gær gaf menntamálaráðu-
neytið út yfirlýsingu þess efnis
að orðrómur um að menntamála-
ráðherra hafi hug á að sameina
Menntaskólann á Ísafirði og Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra sé
ekki á rökum reistur.
Ekki náðist í Illuga Gunnarsson
menntamálaráðherra við vinnslu
fréttarinnar.
stefanrafn@frettabladid.is
Hófu umræðu um
sameiningu skóla
Fimm framhaldsskólar á Norðausturlandi ræddu mögulegar sameiningar við full-
trúa menntamálaráðuneytisins í gær. Fyrrverandi menntamálaráðherra segir sam-
ráð skorta og að umræða um sameiningu skóla sé stefnubreyting í menntamálum.
GÆTI KOMIÐ TIL SAMEININGAR Menntaskólinn á Akureyri er einn þeirra sem
gætu sameinast öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
ÞÓRUNN JÓNA
HAUKSDÓTTIR
TYRKLAND Í gær var þess minnst í Tyrklandi að ár er liðið frá hörmu-
legu námuslysi í Soma-námunni en 301 lést í námusprengingunni.
Meðal annars lést barnabarn þessarar áttatíu ára gömlu konu sem
minntist barnabarnsins í athöfninni í gær. - vh
Minntust þeirra sem létust í námuslysi í Soma fyrir ári:
Ár liðið frá námusprengingunni
SORG Margir minntust látinna ástvina í Tyrklandi í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest tíu ára fangelsisdóm yfir
Jóhannesi Óla Ragnarssyni, 33
ára karlmanni, fyrir frelsissvipt-
ingu, sifskaparbrot og kynferðis-
brot gegn tveimur drengjum og
kynferðisbrot gegn þroskahaml-
aðri konu. Dómur var kveðinn
upp í dag en Hæstiréttur stað-
festir þar með dóm Héraðsdóms
Norðurlands eystri frá því í des-
ember.
Í dómnum segir að Jóhannes
Óli hafi nýtt sér andlega fötlun
konunnar og neytt hana til munn-
maka.
Maðurinn hafði setið í gæslu-
varðhaldi frá því um miðjan
ágúst þegar hann var handtekinn
grunaður um að hafa brotið gegn
drengjunum tveimur.
Í greinargerðum lögreglu sem
fylgdu endurteknum kröfum
um gæsluvarðhald yfir mann-
inum kom fram að manninum
væri gefið að sök að hafa tælt
tvo drengi inn í íbúð sína. Braut
hann á þeim kynferðislega.
- ktd, vh
Dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega gegn tveimur drengjum og konu:
Staðfestu tíu ára fangelsisdóm
ALVARLEG BROT Jóhannes Óli var dæmdur fyrir frelsissviptingu, sifskapar- og kyn-
ferðisbrot gegn tveimur ungum drengjum og kynferðisbrot gegn þroskahamlaðri konu.
MENNTUNARMÁL Níu nemendur í
útskriftarárgangi Menntaskólans
við Sund voru staðnir að svindli í
stúdentsprófi í þýsku á dögunum.
Fallist þeir á tilboð skólastjóra
mun málið ekki tefja þá í námi.
Þeir munu þó ekki taka við skír-
teinum sínum ásamt samnemend-
um sínum þegar húfurnar fara á
loft um mánaðamótin.
Nemendur máttu mæta með
orðabók í umrætt próf en svindl-
ið fólst í því að gögn voru falin
í orðabókinni. Var nemendum
vikið úr prófinu, prófgögn gerð
upptæk og þau send á fund skóla-
stjóra. Þau fá sjálfkrafa núll í
prófinu. - ktd, vh
Útskrifast ekki á sama tíma:
Svindluðu í
stúdentsprófi
VERSLUN Samtök atvinnurekenda
segja könnun verðlagseftirlits
ASÍ gefa skakka mynd af verð-
lækkunum vegna niðurfellingar
vörugjalda. Á fimmtudag birti
ASÍ niðurstöðu könnunar á verð-
lækkunum heimilistækja.
Þar er því haldið fram að lækk-
anir á slíkum tækjum séu mun
minni en gera hafi mátt ráð fyrir.
SA segja raftækjaverslanir marg-
ar hafa lækkað verðið í september
í samræmi við fyrirhugaða niður-
fellingu vörugjalda og þar sem
fyrri könnun ASÍ var gerð í októ-
ber og því ljóst að hið upprunalega
verð, þ.e. verð fyrir lækkun, kom
ekki til skoðunar hjá ASÍ. - kbg
Gagnrýni atvinnurekenda:
Segja verðkönn-
un ASÍ ranga
Línubáturinn Gottlieb GK39 missti vélarafl um hádegisbil í gær og strandaði við Hópnes:
Mannbjörg varð þegar línubátur strandaði
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
0
-C
6
8
C
1
7
6
0
-C
5
5
0
1
7
6
0
-C
4
1
4
1
7
6
0
-C
2
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K