Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 10

Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 10
14. maí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Háskólatorgi www.boksala.is s. 5 700 777 www.facebook.com/boksala Útsala 30-70% afsláttur KJARAMÁL „Slík birgða söfnun mun leiða til fjárhagslegs tjóns fyrir bændur löngu eftir að verkfalli lýkur,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bænda- samtaka Íslands, um uppsafn- aðar birgðir af svínakjöti og alifuglakjöti sem ekki fara á markað vegna verkfalls dýra- lækna. Í lok þessarar viku verða uppsafnaðar birgðir um fjórtán hundruð tonn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtök- um Íslands. „Kjötið er geymt í frosti þar sem ekki hafa fengist undan- þágur frá verkfalli til slátrunar, nema með þeim skilyrðum að setja vörur í frost,“ segir Sindri. Frá því að verkfall dýralækna hófst þann 20. apríl síðastliðinn hafa innlendir alifugla bændur og svínabændur ekki fengið tekjur af framleiðslu sinni. „Fjárhagsstaða margra búa er því orðin verulega erfið sem hefur áhrif á möguleika þeirra til að kaupa fóður og aðföng til að sinna dýrunum, sem og að framfleyta sér og fjölskyldum sínum. Ljúki verkfalli ekki brátt mun fjöldi búa standa frammi fyrir gjaldþroti.“ Þá kom fram í tilkynning- unni að magn innlends kjöts í frystigeymslum er sjöfalt meira í tonnum talið en þess erlenda kjöts sem bíður tollafgreiðslu og liggur á hafnarbakka á meðan kjaradeila dýralækna hjá Mat- vælastofnun eru óleyst. - ngy Uppsafnaðar birgðir af svínakjöti og alifuglakjöti vegna verkfalls dýralækna nema mörgum hundruðum tonna: Birgðasöfnun vegna verkfalls gæti leitt til gjaldþrots VERKFÖLL Frá því verkfall dýralækna hófst hafa innlendir alifugla- og svína- bændur ekki fengið tekjur af fram- leiðslu sinni. FLÓTTAFÓLK Evrópusambandið hyggst láta endurskoða Dyflinnar- samninginn svonefnda, sem heim- ilar aðildarríkjum Schengen-sam- starfsins að senda hælisleitendur úr landi hafi þeir fyrst reynt fyrir sér í öðru aðildarríki. Reiknað er með að þessari endur skoðun verði lokið um mitt næsta ár. Þetta er liður í fjölþættum aðgerðum sem Evrópusambandið hyggst ráðast í til að höndla betur flóttamannastrauminn yfir Mið- jarðarhaf. Tillögurnar voru kynnt- ar í gær. Aðrar hugmyndir snúast meðal annars um að þrefalda fjármagn til eftirlits- og björgunaraðgerða í Miðjarðarhafinu, beita hervaldi gegn smyglurum sem senda fólk ólöglega yfir Miðjarðarhafið, leggja meiri vinnu í að koma fólki aftur til síns heimalands og loks að deila með sanngjarnari hætti niður á ESB-ríkin þeim hælisleit- endum sem ekki er hægt að senda til baka. Stjórnvöld einstakra ríkja eru misánægð með þessi áform. Bret- ar vilja til dæmis ekki að ríkj- um ESB verði gert skylt að taka við hælisleitendum og Ungverjar segja þessar hugmyndir fráleitar. Hvað hernað gagnvart smyglur- um varðar, þá er í tillögunum ekki útilokað að sendar verði her sveitir inn í Líbíu eða til annarra landa þar sem smyglararnir stunda iðju sína. Mesta áherslan er þó lögð á að eyðileggja báta og skip sem notuð hafa verið til að flytja fólk yfir hafið. Þessi hernaðaráform hafa mætt töluverðri gagnrýni og óljóst hvort þau stæðust alþjóðalög. Á síðasta ári freistuðu nærri 220 þúsund manns gæfunnar með þessum hætti, flestir frá Sýrlandi þar sem margra ára borgara- styrjöld hefur hrakið nærri helm- ing landsmanna að heiman. Það sem af er þessu ári hafa um 80 þúsund manns reynt að komast yfir Miðjarðarhaf. Þúsundir hafa drukknað á leiðinni. Megnið af flóttafólkinu hefur farið til Ítalíu, Grikklands og Spánar en fæstir hafa á endanum fengið hæli þar. Önnur aðildarlönd Evrópusambandsins hafa til þessa haft frjálsar hendur um það hvort þau taki við einhverjum þeirra. Þar hafa Þjóðverjar og Svíar verið duglegastir. Á síðasta ári tóku þeir við nærri helmingi þeirra flótta- manna sem leituðu hælis í aðildar- löndum ESB. Þessu á nú að breyta, þannig að hælisleitendum verði deilt niður á öll aðildarríki Evrópusambands- ins. Til að byrja með verði 20 þús- und manna hópi skipt niður, þann- ig að hvert ríki fái ákveðið hlutfall í samræmi við íbúafjölda viðkom- andi lands og að teknu tilliti til atvinnuleysis þar. Vísað er til þriðja liðs 78. grein- ar Lissabonsáttmálans, sem heim- ilar ráðherraráði Evrópusam- bandsins að grípa til aðgerða ef skyndilegur straumur fólks frá löndum utan ESB veldur neyðar- ástandi í einu eða fleiri aðildar- ríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is Vilja breyta Dyflinnarreglu Evrópusambandið hyggst láta endurskoða Dyflinnarákvæðið, deila hælisleitendum niður á aðildarlöndin með kvótakerfi og beita hervaldi á smyglara í Líbíu og víðar, sem senda fólk ólöglega yfir Miðjarðarhafið. FLÓTTAFÓLK „Í raun er ekki verið að fjölga móttöku flóttamanna í Evrópu heldur er verið að jafna áður ójafna dreifingu þeirra,“ sagði Íris Björg Kristjánsdóttir, sérfræðingur þingmannanefndar, um málefni útlendinga og fyrr- verandi formaður flóttamanna- nefndar. „Þýskaland og Svíþjóð hafa hingað til tekið á móti langflestum flóttamönnum, auk Grikklands og Ítalíu,“ sagði hún. Hún sagði að mikil umræða um málefni flóttafólks og hælisleit- enda væri farin af stað í stjórn- kerfinu og mikil jákvæðni væri í garð þess að taka við fleirum. „Dreifing umsókna hælisleit- enda mun líklega koma til með að ná til okkar þar sem við tilheyrum slíkum verkefnum þótt við séum utan Evrópusambandsins.“ Eygló Harðardóttir félagsmála- ráðherra hefur óskað eftir tillög- um frá flóttamannanefnd um mót- töku næsta hóps flóttafólks með ósk um að sérstaklega verði horft til Sýrlands í ljósi aðstæðna. „Ég tel mikilvægt að við leggj- um okkar af mörkum til að forða fólki frá þeirri hættuför sem hefur kostað svo margt flóttafólk lífið. Það gerum við best með samstarfi við alþjóðlegar stofnanir, líkt og við höfum gert hingað til og þá með því að taka á móti kvótaflótta- fólki,“ sagði Eygló. - srs Félagsmálaráðherra segir mikilvægt að Íslendingar leggi sitt af mörkum: Tökum við fleiri flóttamönnum FLÓTTAMENN Ísland mun hugsanlega hlaupa undir bagga með öðrum þjóðum. GIOVANNI ISOLINO/AFP FLÓTTAFÓLK HANDTEKIÐ Í LÍBÍU Hundruð manna í varðhaldi bíða flutnings annað eftir að hafa reynt að komast til Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SAMGÖNGUR Lokað verður í Hvalfjarðargöngunum næstu helgi vegna malbikunar. Göngin verða lokuð frá klukkan 20 að kvöldi föstudagsins 15. maí til klukkan 6 að morgni mánudags- ins 18. maí. Í tilkynningu frá Speli, sem rekur Hvalfjarðargöngin, segir að akreinin til suðurs hafi verið malbikuð í október. Til hafi staðið að taka seinni áfanga verksins í apríl en það hafi frestast vegna óhagstæðra veðurskilyrða helgi eftir helgi. Þess vegna sé ráðist í fram- kvæmdirnar núna um helgina - vh Ekki hægt að fara göngin: Lokuð vegna malbikunar HVALFJARÐARGÖNG Til stóð að ljúka seinni áfanga verksins í apríl en það hefur frestast vegna veðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SVÍÞJÓÐ Sjötugum manni í Sví- þjóð hefur verið gert að endur- greiða yfir 64 milljónir íslenskra króna og dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa mörg ár þóst vera elliær og fengið bætur til að greiða aðstoðarmönnum sem voru ættingjar hans. Þeir voru einnig ákærðir. Upp komst um manninn vegna eftirlits lögreglu. Hann komst leiðarsinn- ar án aðstoðar þegar hann spilaði póker í ólöglegum klúbbi. - ibs Svíi þóttist vera elliær: Endurgreiði tugi milljóna SVONA ERUM VIÐ 72,1 prósent framhalds-skólanema lærði erlend tungumál skólaárið 2013- 2014. Skólaárið 2011-2012 lærðu 74 pró- sent nemenda á framhaldsskólastigi erlend tungumál. 219 þúsund fl óttamenn komu til ESB-ríkja árið 2014 3.500 fórust í Miðjarðarhafi nu 46 þúsund fl óttamenn hafa komið til ESB-ríkja það sem af er þessu ári 1.750 fórust í Miðjarðarhafi 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 2 -D 1 E C 1 7 6 2 -D 0 B 0 1 7 6 2 -C F 7 4 1 7 6 2 -C E 3 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.