Fréttablaðið - 14.05.2015, Page 16
14. maí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 16
Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra
skuldabréfa hækkaði umtalsvert
eftir að yfirlýsing Peningastefnu-
nefndar Seðlabanka Íslands var
kynnt í gær. Mest hækkaði kraf-
an á stuttum bréfum. Í yfirlýsingu
Peningastefnunefndarinnar segir
að þróun kjaraviðræðna að undan-
förnu og hækkun verðbólguvænt-
inga, auk vísbendinga um öflugan
vöxt eftirspurnar, bendi til þess að
aðstæður séu að skapast sem kalli á
að hækka þurfi vexti á næsta fundi
nefndarinnar í júní.
„Þetta er sterkara orðalag
en menn höfðu búist við,“ segir
Valdimar Ármann, sjóðsstjóri
hjá GAMMA. Hann segir orða-
lag nefndarinnar gefa til kynna að
þessar vaxtahækkanir séu nær í
tíma en markaðurinn hafði búist
við.
„Menn höfðu búist við að þeir
myndu leyfa blekinu á kjarasamn-
ingum að þorna og greina mögu-
leg verðbólguáhrif og taka síðan
ákvörðun í framhaldi, leyfa hlut-
unum aðeins að raungerast,“ segir
Valdimar. En miðað við yfirlýs-
inguna sé styttra í vaxtahækkanir
Seðlabankans en menn höfðu búist
við og markaðurinn bregðist við því
með hærri ávöxtunarkröfu.
Smitar út í verðbólguna
Valdimar segir að vextir á óverð-
tryggðum bréfum hafi hækkað
mjög mikið undanfarna þrjá mán-
uði vegna aukinna verðbólguvænt-
inga. Umræða um kjarasamningana
hafi hafist strax í haust og í vetur
hafi komið í ljós að kjarasamning-
arnir yrðu umfram uppgefin mark-
mið Seðlabankans. „Seðlabankinn
var búinn að gefa ákveðnar leið-
beiningar um launahækkanir sem
samrýmast verðbólgumarkmiði,“
segir Valdimar. Það sé liðinn tölu-
verður tími frá því að í ljós kom að
samningar myndu ekki taka mið af
þeim leiðbeiningum.
„En svo er erfitt að segja hvernig
samspil skattalækkana og launa-
hækkana verður. Þetta smitar á
ólíkan hátt út í verðbólguna og þess
vegna hefði maður haldið að þeir
myndu bara bíða eftir því að sjá
Sterkara en menn bjuggust við
Töluverð viðbrögð urðu á skuldabréfamarkaði við yfirlýsingu Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í gær. Nefndin telur aðstæður vera
að skapast fyrir hækkun stýrivaxta. Seðlabankinn gerir ráð fyrir miklum launahækkunum á næstunni sem auki á spennu í hagkerfinu.
hvað þeir hafa í hendi áður en þeir
byrja að bremsa af eitthvað sem
þeir vita ekki hvað verður,“ segir
Valdimar. Með skattalækkunum
vísar Valdimar í hugmyndir sem
hafa verið reifaðar í fjölmiðlum
um möguleg útspil stjórnvalda til
að liðka fyrir kjarasamningum, til
dæmis hækkun persónuafsláttar.
Hagkerfið í þenslumörk
Valdimar segir að það verði að
hafa í huga að á sama tíma og
Seðlabankinn spáir miklum launa-
hækkunum spái þeir einnig meiri
hagvexti. „Þeir eru að spá 4,5
prósenta hagvexti í ár og fram-
leiðsluspennu strax á þessu ári og
góðum bata á vinnumarkaði. Þann-
ig að það spilar saman líka. Þeir
eru að sjá að hagkerfið er að fara
í þenslumörk strax á þessu ári,“
segir hann.
Valdimar segir að þegar horft
hafi verið til allra þessara þátta
hafi bankanum væntanlega fund-
ist mikilvægt að taka snemma í
bremsuna í stað þess að bregðast
við eftir á. „En í raun er hægt að
segja að yfirlýsingin var harðari
en búist var við og vaxtahækkan-
irnar nær í tíma en skuldabréfa-
markaðurinn hafði gert ráð fyrir,“
segir hann.
Menn
höfðu búist
við að þeir
myndu leyfa
blekinu á
kjarasamn-
ingum að
þorna og
greina
möguleg
verðbólgu-
áhrif og taka
síðan ákvörð-
un í fram-
haldi, leyfa
hlutunum
aðeins að
raungerast.
Valdimar Ármann,
sjóðsstjóri hjá
GAMMA
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Í KRÖFUGÖNGU Seðlabankastjóri og aðalhagfræðingur Seðlabankans hafa áhyggjur af því að of miklar launahækkanir ógni stöðugleikanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Ég skil ekki hvaða hagsmuni menn eru að verja,“ segir
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. Þór-
arinn telur kröfu stéttarfélaga um miklar nafnlaunahækkanir
kunna að koma verst niður á þeim sem standa höllum fæti,
einkum þeim með litla menntun. Bæði Már Guðmundsson
seðlabankastjóri og Þórarinn lýsa miklum áhyggjum af stöðu
kjaraviðræðna. Már segir að ekki virðist allir skilja hvað gæti
gerst ef launahækkanir yrðu óhóflegar. „Ég hef haft af þessu
áhyggjur og held að öll nefndin deili áhyggjum af því að það
sé ekki nægur skilningur á því að það eru ákveðnir hlutir sem hafa breyst,
sem verða til þess að viðbrögðin við mjög miklum launahækkunum verða
allt önnur en voru hér fyrr á árum. Þegar gengið var bara fellt og verðbólgan
þurrkaði ávinninginn út og allir stóðu í sömu sporum. Áhrifin á atvinnustigið
verða miklu meiri heldur en ég held að fólk átti sig á,“ sagði Már.
Atvinnuleysi gæti aukist
Innskráningar í app Arion banka
voru fleiri í janúar síðastliðnum en
innskráningar í netbankann.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
Arion, segir engu að síður að heim-
sóknir í netbankann standi í stað.
Breytingin stafaði af því að fólk
væri í auknum mæli að nýta sér
appið. Höskuldur segir að hann hafi
búist við því að þróunin yrði þessi,
en hún hefði orðið hraðari en hann
bjóst við.
Aukin áhersla bankanna á staf-
ræna þjónustu er einn liðurinn í því
að draga úr rekstrarkostnaði bank-
anna. Í kynningu á uppgjöri fyrsta
fjórðungs kemur fram að laun séu
í takti við síðustu fjórðunga en
starfsmönnum hjá móðurfélaginu
hafi haldið áfram að fækka á tíma-
bilinu.
Eins og fram kom í Markaðnum,
fylgiriti Fréttablaðsins, í gær nam
hagnaður Arion banka á fyrstu
þremur mánuðum ársins 14,9 millj-
örðum króna en var 2,9 milljarðar á
sama tíma í fyrra.
Afkoman er óvenjugóð og mark-
ast af óreglulegum liðum. Þar hafa
mest áhrif einskiptisatburðir eins
og skráning og sala bankans á hlut-
um í fasteignafélaginu Reitum og
alþjóðlega drykkjaframleiðandan-
um Refresco Gerber.
Höskuldur segir að regluleg
starfsemi bankans hafi líka geng-
ið vel. „Arðsemi reglulegrar starf-
semi er tæplega 10% á tímabilinu.
Við höldum áfram að vinna að því
að styrkja grunnrekstur bankans,“
sagði Höskuldur í afkomutilkynn-
ingu frá bankanum. - jhh
Aukin áhersla íslensku bankanna á stafræna þjónustu fyrir viðskiptavini er einn liður í því að draga úr rekstrarkostnaði:
Fleiri viðskiptavinir Arion notuðu app en netbanka
BANKA-
STJÓRINN
Höskuldur
Ólafsson
segir notk-
un á appi
bankans
vera að
aukast.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Fisk Seafood hefur keypt FleX-
icut-vatnskurðarvél frá Marel
ásamt sjálfvirkri afurðadreifingu
og nýjustu gerð ferskfiskflokk-
ara. Vélin sker beingarð úr fersk-
um þorski, ýsu og karfaflökum,
og bitar þau niður eftir ákveðnum
skurðarmynstrum með mikilli
nákvæmni með eða án roðs.
Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Fisk Seafood, segir
að kaupin á þessum búnaði séu
gerð til að efla landvinnslu Fisk
Seafood á Sauðárkróki. - jhh
Fisk Seafood og Marel semja:
Fá nýja vél fyrir
landvinnslu
„Við erum ánægð með afkomu bankans á fyrsta
ársfjórðungi sem var umfram væntingar okkar.
Kostnaður heldur áfram að lækka enda mikil-
vægt að styrkja enn frekar arðsemi af reglu-
legri starfsemi,“ segir Birna Einars dóttir,
bankastjóri Íslandsbanka, vegna uppgjörs
fyrsta fjórðungs. Uppgjörið var birt í gær.
Hagnaður bankans eftir skatta var 5,4 millj-
arðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2015 saman-
borið við 8,3 milljarða króna á sama tíma-
bili 2014 en þá voru tekjur af einskiptisliðum
umfangsmeiri. Arðsemi eigin fjár eftir skatta
var 11,8% á fjórðungnum samanborið við 19,3%
á sama tímabili 2014.
„Góður árangur í rekstri bankans hefur
skilað því að lánshæfismatsfyrirtækið Fitch
Ratings mat bankann, fyrstan hér á landi frá
árinu 2008, í fjárfestingarflokk með stöðug-
um horfum. Sú niðurstaða er til þess fallin að
skila bankanum hagstæðari kjörum í kom-
andi skuldabréfaútgáfum bankans,“ segir
Birna.
Aukning í nýjum húsnæðislánum var tæp
60% á fjórðungnum miðað við sama tímabil
í fyrra. Birna segir vaxandi eftirspurn eftir
lánum hjá viðskiptavinum sem eru að festa
kaup á sinni fyrstu íbúð.
- jhh
Hagnaður Íslandsbanka nam 5,4 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi og dróst saman um 2,9 milljarða:
Afkoma Íslandsbanka umfram væntingar
ÁNÆGÐ Birna Einarsdóttir segir að mat Fitch sé til
þess fallin að skila bankanum hagstæðari kjörum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
0
-8
B
4
C
1
7
6
0
-8
A
1
0
1
7
6
0
-8
8
D
4
1
7
6
0
-8
7
9
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K