Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 26

Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 26
FÓLK| Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Gallabuxur kr. 13.900.- Háar í mittið sídd 78 cm str. 36-46/48 fleiri litir. Við erum á Facebook Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir HEILDSTÆÐ LÍNA Línunni tilheyra fjögur hálsmen, tvær tegundir af eyrnalokkum, hringur og armband. Línan minnir á brum eða blóm- knúppa og er væntanleg á næstu dögum. Nýjasta lína gullsmiðsins Ásu Gunnlaugsdóttur er inn-blásin af blómknúppum en skartgripir Ásu hafa margir vísun í náttúruna. Línan er hins vegar ekki komin með nafn og tekur Ása gjarnan við góðum hugmyndum á facebook-síðunni asa jewellery. „Ég byrjaði með asa árið 2008 og fyrsta varan kom í verslanir 2009. Ég hef haft það að mark- miði að vera að minnsta kosti með eina nýja línu á ári auk þess sem ég bæti inn í eldri línur en að undanförnu hef ég gefið svolítið í. Síðasta lína kom síðastliðið haust, þetta er vorlína og svo er von á annarri í haust. Þetta fer svolítið eftir því hvað maður er frjór en ferlið tekur langan tíma,“ útskýrir Ása en tíunda línan er væntanleg á allra næstu dögum. Ása lætur framleiða gripina erlendis. Þegar hugmyndavinnu og prótótýpugerð er lokið af hennar hálfu tekur framleiðsluferlið eitt og sér um sex mánuði. „Ferlið í heild tekur því yfirleitt í kringum ár,“ segir Ása, sem að vonum hlakkar til að fá nýju línuna í hendur. Ása er gefin fyrir blóm og fær oft hugmyndir á fjöllum. „Þessi lína minnir á brum eða blóm- knúppa. Línunni tilheyra fjögur hálsmen, tvær tegundir af eyrna- lokkum, hringur og armband. Ég er ekki komin með nafn en var að hugsa um að bjóða fylgjendum mínum á Facebook að koma með hugmyndir.“ Hver lína Ásu hefur íslenskt nafn og lýsir það yfirleitt einhvers konar hughrifum sem tengjast útlitinu. Ein línan heitir Sumar- blær en upphaflega hugmyndin að baki henni kemur frá lamba- grasi. Önnur lína heitir Gleym mér ei. „Margir kannast við að hafa skreytt peysurnar sínar með gleym mér ei-um og er hugmyndin í þeim anda, enda skart til skrauts. Þá eru skartgripir gjarnan gefnir sem ástarvottur og er nafnið í þeim skilningi svolítið róman- tískt,“ útskýrir Ása. Ása er með vinnustofu á Vesturgötu 19 í Reykjavík. Vörur hennar eru meðal annars til sölu í Michelsen úrsmiði á Laugarvegi, Epal í Hörpu, Mebu Rhodium í Kringlunni og víða á landsbyggð- inni. Þá eru þær nýkomnar í sölu í skartgripaverslun í Helsinki í Finn- landi þar sem Ása lærði. „Ég vona að það verði upphafið að frekari útrás.“ ■ vera@365.is ÓSKAR EFTIR NAFNATILLÖGUM TÍUNDA LÍNAN Gullsmiðurinn Ása Gunnlaugsdóttir sendir frá sér nýja skartgripalínu á næstu dögum en hún er sú tíunda frá því að hún hóf að hanna skartgripi undir merkinu asa jewellery árið 2008. Á VINNUSTOFUNNI Ása er ekki komin með nafn á línuna og býður fylgjendum sínum á Facebook að koma með hugmyndir. MYND/ÚR EINKASAFNI 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 3 -2 F B C 1 7 6 3 -2 E 8 0 1 7 6 3 -2 D 4 4 1 7 6 3 -2 C 0 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.