Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 27
| FÓLK | 3
Árlegt Hvítasunnuhlaup Hauka fer fram annan í hvítasunnu en hlaupið
er eitt vinsælasta utanvega-
hlaup landsins. Utanvegahlaup
hafa notið sívaxandi vinsælda
meðal hlaupara undanfarin
ár enda fátt meira gefandi en
að hlaupa í fögru umhverfi ís-
lenskrar náttúru. Hjá Skokkhópi
Hauka í Hafnar firði hefur stór
hópur hlaupara fært sig úr hefð-
bundnum götuhlaupum í utan-
vegahlaup enda er eitt fallegasta
útivistarsvæði höfuðborgarsvæð-
isins í næsta nágrenni Ásvalla,
íþróttasvæðis Hauka.
Hlaupið var fyrst haldið árið
2013 og segir Jóhann Konráð
Birgisson, rekstrarstjóri Sportís,
það strax hafa slegið í gegn. „Fal-
legt umhverfið og náttúrufegurð
var það sem kom flestum á óvart
og áttu margir hlauparanna varla
orð til að lýsa upplifuninni. Enda
sögðust flestir örugglega koma
aftur að ári sem og þeir flestir
gerðu.“ Sportís er aðalstyrktar-
aðili hlaupsins en Skokkhópur
Hauka, með þá Pétur og Anton
í fararbroddi, sér um skipulagn-
ingu og framkvæmd hlaupsins
ásamt Jóhanni.
Svæðið sem hlaupið er um
er afar fjölbreytt og fallegt að
sögn Jóhanns. „Hlaupið er með-
fram vatnsbökkum, upp og niður
brekkur, í gegnum þéttan skóg,
með hrauni og þétta breiðu af
lúpínu og upp á Stórhöfðann
þar sem er einstakt útsýni yfir
Reykjanesið og höfuðborgar-
svæðið. Meginhluti hlaupsins fer
þó fram á góðum stígum.“
Lögð er áhersla á gott skipulag
en um 50 brautarverðir starfa við
hlaupið sem leiðbeina og hvetja
keppendur. „Í ár verða þrjár
drykkjarstöðvar þar sem boðið
verður upp á vatn og Powerade
auk þess sem plötusnúðar munu
halda uppi góðri stemningu með
dúndrandi tónlist. Allir keppendur
fá svo Hleðslu-íþróttadrykk frá MS
þegar þeir koma í mark og boðið
verður upp á súpu og brauð.“
Boðið verður upp á tvær
vegalengdir; aðalhlaupið er 17,5
km en einnig er boðið upp á 14
km leið en þar er sleppt hlaupinu
upp á Stórhöfðann sem gerir þá
vegalengd færa flestum hlaupur-
um sem treysta sér í 10 km götu-
hlaup. „Í fyrsta skiptið verður
keppt í þremur aldursflokkum
og verða veitt verðlaun fyrir þrjú
fyrstu sætin í hverjum aldurs-
flokki. Auk þess fá sigurvegarar
í kvenna- og karlaflokki í 17,5 km
afhentan farandbikar sem ber
nafnið Hvítasunnumeistarinn.
Sigurvegarar í karla- og kvenna-
flokkum í báðum veglengdum fá
gjafabréf í Sportís ásamt líkams-
ræktarkorti í Hreyfingu að and-
virði 170.000 þúsund kr.“
Allir þátttakendur eiga mögu-
leika á að vinna útdráttarverð-
laun en Sportís gefur meira en
tíu pör af Asics-hlaupaskóm auk
ýmissa annarra gjafa. „Það hefur
verið hörð keppni öll árin enda
mæta flestir bestu utanvega-
hlauparar landsins. Kári Steinn
hljóp í fyrra hlaupið á 1:04,07
og mikil keppni hefur verið í
kvennaflokknum. Árið 2013 vann
Eva Skarpas Einarsdóttir en í
fyrra var það Elísabet Margeirs-
dóttir sem sigraði. Þær eru báðar
skráðar til leiks ásamt mörgum
af sterkustu kvenhlaupurum
landsins sem gætu blandað sér í
baráttuna um efsta sætið.“
Nánari upplýsingar um hlaup-
ið og skráningu má finna á www.
hvitasunnuhlaup.is.
HLAUPIÐ Í FALLEGRI NÁTTÚRUNNI
SPORTÍS KYNNIR Hvítasunnuhlaup Hauka fer fram 25. maí en hlaupið hefur á fáum árum skipað sér sess sem helsta utanvega-
hlaup landsins. Hlaupið er í fallegri og fjölbreyttri náttúru fyrir utan Hafnarfjörð og er stemningin jafnan frábær.
Sportís er ein stærsta sport-vöruheildsala landsins og hefur umboð fyrir nokkur
af vönduðustu og vinsælustu
íþróttavörumerkjum heims. Fyr-
ir nokkrum árum opnaði fyrir-
tækið glæsilega verslun í Mörk-
inni 6 í Reykjavík þar sem boðið
er upp á mikið úrval íþrótta- og
útivistavara fyrir fólk á öllum
aldri. Að sögn Jóhanns K. Birg-
issonar, rekstrarstjóra Sportís,
eru þekktustu vörumerki versl-
unarinnar Asics, Casall, Seafolly
og Canada Goose auk þess sem
Sportís hefur sölu á nýju vöru-
merki í sumar sem ber heitið
Kari Traa.
„Aðaláherslur okkar eru á
Asics og Casall. Hlaupaskórnir
og fatnaðurinn frá Asics eru
vandaðar vörur sem hafa verið
mjög vinsælar undanfarin ár.
Einnig bjóðum við upp á úrval
íþróttavara frá Casall sem er
mjög vinsælt íþróttamerki og
þá sérstaklega hjá konum.
Casall býður meðal annars
upp á vandaðan og fallegan
íþróttafatnað auk úrvals af ýmis
konar æfingatækjum og öðrum
íþróttavörum.“
Sportís selur einnig úrval af
sundfatnaði frá Seafolly sem er
að sögn Jóhanns mjög vandað
merki og eingöngu ætlað kon-
um. „Nýjasta merkið í verslun
okkar heitir Kari Traa en um er
að ræða fallegan og góðan úti-
vistar- og íþróttafatnað sem er
ætlaður konum á öllum aldri.“
Viðskiptavinir hafa tekið
versluninni fagnandi að sögn
Jóhanns enda staðsetningin
frábær og vöruúrvalið gott.
„Ekki skemmir fyrir starfsfólk
okkar en þar er valinn maður
í hverju rúmi. Viðskiptavinir
okkar fá svo sannarlega faglega
ráðgjöf og úrvalsþjónustu hér
hjá okkur enda koma þeir aftur
og aftur.“
Auk ofangreindra vara býður
verslunin Sportís upp á vand-
aðar útivistarvörur frá Canada
Goose, hlaupafatnað frá CW-X,
GoPro-myndavélar og SIGG-
vatnsbrúsa svo dæmi séu tekin
af fjölbreyttu vöruúrvali versl-
unarinnar.
„Við opnuðum fyrir stuttu
nýjan vef og vefverslun sam-
hliða honum og erum slegnir
yfir góðum viðbrögðum. Þar er
hægt að panta fjöldann allan af
vörum frá okkur og fá sent heim
eða sækja til okkar í Mörkina.
Vefverslun okkar býður upp
á alla nútíma greiðslumögu-
leika, þar á meðal með Net-
gíró þar sem hægt er að dreifa
greiðslum til allt að tólf mánaða
eða borga tveimur vikum síðar.“
Allar nánari upplýsingar um
vöruúrval Sportís má finna á
www.sportis.is.
ÚRVALS ÍÞRÓTTAVÖRUR
SPORTÍS KYNNIR Sportís selur úrval af íþrótta- og útivistarvörum fyrir fólk á öllum aldri. Meðal þekktustu merkjanna má nefna
Asics, Casall, Seafolly og Canada Goose. Nýlega opnaði Sportís nýja og glæsilega vefverslun sem hefur fengið góðar undirtektir.
VINSÆLL FATNAÐUR CASALL -fatnaðurinn hefur slegið í gegn enda hentar hann
hvaða íþrótt sem er. MYND/GVA
NÝTT Kari Traa er nýjasta merkið og
ætlað konum á öllum aldri.
MYND/ÚR EINKASAFNI
FRÁBÆRIR SKÓR Asics eru með betri hlaupaskóm sem fást í dag. MYNDIR/GVA
SKIPULEGGJENDUR Jóhann K. Birgisson, rekstrarstjóri hjá Sportís, með Pétri og Antoni frá Haukum. MYND/GVA
Í NÁTTÚRUNNI Hvítasunnuhlaup Hauka
eru fjölmenn og þykja vel heppnuð.
JÓHANN K. BIRGISSON
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
2
-A
5
7
C
1
7
6
2
-A
4
4
0
1
7
6
2
-A
3
0
4
1
7
6
2
-A
1
C
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K