Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 29
Kynningarblað Hönnun skólabygginga, úr
garðyrkju í lögfræði og samfélagsmiðlar í kennslu.
SKÓLAR
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
&NÁMSKEIÐ
Sigurður Þór Helgason, eig-andi iStore, lét framleiða lyklaborðshulstrin en þau
eru ætluð iPad air 1 og 2. „Lykla-
borðið er með íslenskum stöfum
auk sérstakra fídusa fyrir iPad.
Með þessu er auðvelt fyrir fólk að
vinna eða læra á iPad,“ segir Sig-
urður og bætir við að reynslan sé
afar góð. Hulstrin fást í svörtu og
rauðu. „Það fer lítið fyrir lykla-
borðstöskunni og endingartími
raf hlöðunnar er mjög góður.
Taskan veitir iPadinum líka góða
vernd,“ segir Sigurður.
Allar leiðbeiningar með lykla-
borðinu eru á íslensku og því
einfaldar í notkun. Lyklaborðið
tengist iPadinum þráðlaust með
Bluetooth og er hlaðið með hefð-
bundnu iPad-hleðslutæki. Hulstr-
ið gefur möguleika á að stilla iPad-
inn á borði, hvort sem fólk vill hafa
hann hallandi eða uppréttan.
„Þetta er tilvalið fyrir námsmenn
sem geta tekið iPadinn í skólann
í staðinn fyrir fartölvu. Í dag er
hægt að fá allan office-pakkann
fyrir iPad,“ útskýrir Sigurður.
Í iStore versluninni í Kringlunni
er lögð rík áhersla á góða þjónustu
við viðskiptavini. „Við lánum við-
skiptavinum okkar iPad, iPhone
eða Mac-tölvu sem koma með
tækin sín í ábyrgðarmeðferð
og erum þeir einu með þá
þjónustu. Margir eru
mjög þakklátir fyrir
það.“
37 fötluð börn
hafa fengið iPad
að gjöf
iStore er með styrkt-
arsjóð þar sem 1.000
kr. af hverju seldu tæki
sem selt er í búðinni renn-
ur í sjóðinn. Sjóðurinn er notaður
til að gefa langveikum og hreyfi-
hömluðum börnum iPad til að
þjálfa upp hreyfigetu, þroska og
tjáningu. Fram til þessa hefur
iStore gefið fjölmörgum börnum
iPad fyrir tilstuðlan sjóðsins og
hafa þessar gjafir aukið lífsgæði
þessara barna mjög mikið.
„Við höfum verið með þennan
sjóð frá árinu 2010 og hann hefur
veitt 37 börnum iPad en hann er
afar gagnlegt hjálpartæki fyrir
hreyfihamlaða. Það er okkur mikil
ánægja að koma til móts við þessi
börn,“ segir Sigurður en það var
fyrir tilviljun sem hann stofn-
aði sjóðinn.
„Ég var nýbúinn að
opna búðina þegar ég
fékk tölvupóst frá
föður lamaðrar
stúlku
með taugahrörnunarsjúk-
dóm. Hún var á þriðja ári. Fað-
irinn spurði hvort ég teldi að iPad
gæti hjálpað dóttur sinni. Ég velti
þessu mikið fyrir mér og gúglaði
alls kyns forrit sem mögulega gætu
örvað hreyfingu barnsins. Síðan
hitti ég þau feðgin og sýndi barninu
forritin í iPadinum mínum. Það tók
ekki nema mínútu fyrir stúlkuna
að átta sig á tækinu og fljótlega fór
hún að sýna markvissar hreyfing-
ar. Sex mánuðum síðar var hún
farin að keyra hjólastól. Þessi upp-
lifun mín var svo sterk að það opn-
aðist nýr heimur fyrir mér. Ég gaf
stúlkunni iPadinn og stofnaði sjóð-
inn til að hjálpa fleiri börnum,“ segir
Sigurður. „iPad er stórkostlegt tæki
til að örva þroska og hreyfigetu. Auk
þess léttir iPadinn á umönnun fjöl-
skyldunnar og veitir barninu af-
þreyingu. Ég hef séð mörg krafta-
verk gerast hjá börnunum.“
Íslenskt lyklaborð fyrir iPad
Verslunin iStore í Kringlunni býður upp á algjöra nýjung fyrir iPad-eigendur, íslenskt hulstur með lyklaborði. Hulstrið er hannað hér á landi og er bylting fyrir
þá sem vilja skrifa á iPad. Verðið er þar að auki frábært, aðeins 9.990 kr. Hentar vel til vinnu eða fyrir skólafólk. Auðvelt er að hlaða lyklaborðið.
Hægt er að stilla skjáinn á borði
eftir því sem hentar hverjum
og einum.
Sigurður Þór Helgason hjá iStore með nýju iPad-lyklaborðshulstrin. MYND/ERNIRLyklaborðið kostar
aðeins 9.990 kr.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
1
-E
4
E
C
1
7
6
1
-E
3
B
0
1
7
6
1
-E
2
7
4
1
7
6
1
-E
1
3
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K