Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 32
Skólar og námskeið FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 20154
Háskólanám eykur í flestum tilfellum möguleika fólks á betri störf-
um og hærri tekjum. Ýmsir háskólar í Bandaríkjunum kenna þó
óvenjuleg fög sem gagnast sjálfsagt misvel á vinnumarkaði eða í líf-
inu almennt þótt þau séu vissulega skemmtileg.
University of Wisconsin kennir áhugasömum nemendum álfa-
málið úr Hringadróttinssögu. Það nýtist vafalaust helst í þröngum
hópi aðdáenda bókanna og myndanna.
Zombies in Popular Media heitir fag sem kennt er í Columbia
College í Chicago-borg. Þar er farið sérstaklega yfir uppvakninga í
kvikmyndum og bókmenntum út frá ýmsum skemmtilegum sjón-
arhornum.
Tupac Shakur er talinn einn besti og áhrifamesti rappari allra
tíma. Nemendur við University of Washington geta sótt fag þar sem
kafað er djúpt í textagerð rapparans og lífshlaup á sama tíma.
Oberlin Experimental College í Ohio-ríki er á skyldum slóðum og
býður upp á fagið „Nuthin’ but a ‘G’ Thang“. Þar er nemendum gert
kleift að vera hluti af glæpahyski í eina önn og upplifa örlítið óþokka-
líferni þótt vafalaust fari það allt fram innan veggja skólastofunnar.
Cornell University í New York er meðal virtustu háskóla landsins.
Skólinn býður meðal annars upp á fag þar sem kenn er hvernig skuli
klífa tré hratt og örugglega. Annar virtur háskóli, Temple University,
kennir fag sem heitir „UFOs in Americ-
an Society“ en þar er farið yfir við-
brögð landsmanna undan-
farna áratugi við fljúg-
andi furðuhlutum og
geimverum af ýmsu tagi.
Misgagnlegur fróðleikur
Hægt er að læra álfamálið úr Hringadróttinssögu í bandarískum háskóla.
Samspil 2015 er fræðslu-átak um upplýsingatækni ætlað kennurum. Verkefnið
er styrkt af Rannís og er byggt á
sérþekkingu sem til hefur orðið
á Menntamiðju og svo kölluð-
um torgum, sem eru starfssam-
félög skólafólks á netinu. „Þegar
við fórum af stað með þetta höfð-
um við velt því fyrir okkur hvern-
ig best væri að kenna þetta. Eins
og fólk veit hafa tæknibreytingar
verið mjög örar á undanförnum
árum svo ef við kenndum það sem
er til staðar í dag gæti það orðið
úrelt mjög fljótt. Á námskeiðunum
leggjum við því áherslu á tækni-
þróun sem slíka og kannski minna
á tiltekna tækni,“ segir Tryggvi
Thayer, verkefnisstjóri Mennta-
miðju og Samspils. „Við horfum
á hvernig tækniþróun hefur áhrif
á nám og kennslu til framtíðar og
einnig hvernig við getum reynt að
stýra því hvaða áhrif tækni hefur
á nám og kennslu. Ef við erum
nógu meðvituð um hvað er að ger-
ast í tækniþróun ættum við að geta
gert það.“
Upplýst samfélag
Tryggvi segir það vera nauðsyn
að kennarar séu upplýstir og með-
vitaðir um það sem er að gerast
í tengslum við tækni. Markmið
með námskeiðinu Samspil er að
fræðslan skapi og styðji við sam-
félög kennara þar sem kennarar
eru virkir í að miðla eigin reynslu
og þekkingu. „Þar eru það jafnt
kennarar sem eru reynslubolt-
ar sem hafa brennandi áhuga á
tækni og fylgjast vel með sem eru
virkir í að miðla til þeirra sem
eru ekki eins uppteknir af því að
fylgjast með þróuninni og einnig
samfélagið sem slíkt sem heldur
sér upplýstu um hvað sé í gangi,
hvaða möguleikar eru fyrir hendi
og hvernig best sé að miðla upplýs-
ingum,“ útskýrir Tryggvi.
Deila reynslu og þekkingu
Námskeiðin eru byggð þannig upp
að kennarar mæta á fimm klukku-
stunda námskeið þar sem farið er
yfir Samspils-fræðsluátakið, til
hvers það sé ætlað, hver staða
tækniþróunar sé í dag, hvern-
ig kennarar fylgjast með henni
og sérstaklega hvernig þeir nýta
samfélagsmiðla til þess að deila
reynslu og þekkingu. „Allir kenn-
arar þurftu að hafa með sér ein-
hvers konar tæki, fartölvu, síma
eða spjaldtölvu. Við kynntum
svo ákveðin öpp og þess háttar
sem kennarar gætu nýtt í námi
og kennslu. Framhaldið fer síðan
fram að mestu leyti á netinu, sem
vefnámskeið og þátttaka á sam-
félagsmiðlum, við erum til dæmis
með Facebook-hóp með öllum þátt-
takendum og umræðuvettvanginn
#menntaspjall á Twitter í sam-
starfi við Ingva Hrannar Ómars-
son, kennsluráðgjafa á Sauðár-
króki, þar sem hægt er að fylgjast
með skipulegum umræðum annan
hvern sunnudag. Allir þátttakend-
ur koma sér upp ferilbók á netinu
þar sem þeir skrá hvað þeir hafa
gert, hvaða öpp þeir hafa próf-
að, hver árangurinn var og fleira.
Þeir nýta til þess ýmsa miðla svo
sem blogg og Pinterest-síður. Aðrir
þátttakendur geta fylgst með.“
Alls kyns kennarar tekið þátt
Samspil 2015 hófst í janúar síðast-
liðnum og hafa um 350 kennarar
af öllu tagi tekið þátt. Ætlast er
til að þeir sem hafa skráð sig séu
virkir allt árið. „Við höfum tekið
mismunandi þemu fyrir í hverjum
mánuði. Í maí er til dæmis lögð
áhersla á notkun upplýsingatækni
í skapandi skólastarfi og sérstak-
lega möguleika á að nota tækni
til að fara út fyrir veggi skólans.
Alls kyns kennarar hafa tekið
þátt, fólk sem kennir mismunandi
greinar, á öllum stigum skóla-
starfs, í leik-, grunn- og fram-
haldsskólum. Þeir eru allt frá því
að hafa mjög litla reynslu af notk-
un tækni upp í að vera tæknistjór-
ar í sínum skólum. Skráningar á
námskeiðin hafa farið fram úr
áætlunum og við höfum þurft að
bæta við námskeiðum. Við erum
einnig að horfa á samlegðaráhrif
þeirra sem tekið hafa námskeið-
in. Þeir smita út frá sér og deila
þekkingu og reynslu innan síns
nærsamfélags. Það eru ekki færri
en um tíu þúsund kennarar á Ís-
landi og við vonumst til að ná til
töluvert margra með þessum 350
sem skráðir eru,“ segir Tryggvi
bjartsýnn.
Samfélagsmiðlar nýttir í kennslu
Samspil 2015 er heildstætt verkefni þar sem nýttar eru fjölbreyttar leiðir til að stuðla að og styðja við notkun upplýsingatækni í
skólastarfi. Nauðsynlegt er að kennarar séu upplýstir og meðvitaðir um það sem er að gerast í tengslum við tækni.
Bjarndís Fjóla
Jónsdóttir, sam-
verkefnisstjóri
Samspils og
verkefnisstjóri
UT-torgs.
Tryggvi Thayer,
verkefnisstjóri
Menntamiðju og
Samspils.
Samspil 2015 hefur fengið góð viðbrögð þátttakenda. Frekari upplýsingar um Samspil
má finna á menntamiðja.is.
NÆRANDI ÞÆTTIR
Á NÝJU VEFSVÆÐI VÍSIS
Fylgstu með þessum fróðlegu örþáttum á
visir.is/heilsuvisir.
Vísir.is er hluti af
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
0
-F
2
F
C
1
7
6
0
-F
1
C
0
1
7
6
0
-F
0
8
4
1
7
6
0
-E
F
4
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K