Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar og námskeið FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 20156
Vigdís segir að fáir viti að á fyrstu önninni á Bifröst hafi hún stundað nám í við-
skiptafræði. „Mér fannst það allt of
létt nám og liggja svo í augum uppi
eins og til dæmis markaðsfræði-
kúrsinn sem ég tók. Ég tók því
ákvörðun um að hefja nám í við-
skiptalögfræði á annarri önn. Þar
sló ég í raun tvær flugur í einu
höggi því ég tók viðskiptatengdu
fögin með lögfræðinni og skildi
„kjaftafög“ viðskiptafræðinnar
eftir,“ svarar Vigdís þegar hún er
spurð hvers vegna hún hefði farið
í lögfræði. „Ég var 38 ára þegar ég
fór í skóla á ný. Ég var ekki með
stúdentspróf þannig að ég byrj-
aði í frumgreinadeildinni. Hafði
verið þrjú ár í framhaldsskóla (Fjöl-
braut á Selfossi og Garðyrkjuskól-
anum) og hafði mikla atvinnu-
reynslu. Ég uppfyllti því skilyrðin
til að hefja nám, en hafði ekki hug-
mynd um hvort ég kynni enn að
læra. Þegar upp var staðið er þetta
það besta sem ég hef gert á lífsleið-
inni og námið gekk vel. Endaði
skólagönguna með því að fá verð-
laun fyrir bestu mastersritgerðina
við skólann. Hún bar heitið „Hver
á losunar heimildirnar“ og bar ég
saman kvótakerfi í landbúnaði og
sjávarútvegi við þessa nýju auðlind
og er ritgerðin byggð á auðlinda-
og umhverfisrétti, eignarrétti og
stjórnskipunarrétti,“ segir hún.
Breytingar í lífinu
Vigdís segist hafa þurft að gera
breytingar á lífi sínu þegar hún hóf
nám á nýjan leik. „Já, ég flutti með
börnin mín tvö, þau Hlyn og Sól-
veigu, úr Reykjavík og upp á Bif-
röst. Sonurinn var þá 11 ára og
dóttirin, 5 ára. Þarna bjuggum
við í fallegum Borgarfirði í fimm
ár. Það besta við námið var að þá
voru keyrðar sumarannir þann-
ig að ég tók námið eins og vinnu,
tók bara fimm vikna sumarfrí á
hverju sumri. Við breyttum um
gír á haustönn 2006 og fórum til
Winnipeg en ég tók þá önn við
Manitoba-háskóla og krakkarnir
fóru hvort í sinn skólann. Það var
afar ánægjulegur tími og mikil
lífsreynsla fyrir okkur öll. Snæ-
dís, systurdóttir mín, var með og
Vigdís fór úr
garðyrkju í lögfræði
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður lauk prófi frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1984.
Árið 2003 ákvað hún að söðla um í lífinu og fór í lögfræði við Háskólann á
Bifröst, þá 38 ára. Vigdís segir það hafa verið góða ákvörðun.
Útskriftarhópur á Bifröst.
Vigdís Hauksdóttir
Það var gott félags-
líf á Bifröst, meðal
annars Bifróvision.
Vigdís var öflugur
stuðningsmaður en
hún er hér til vinstri
á myndinni.
hjálpaði mér með börnin; skutlaði
og sótti í skólann og fleira.“
Skemmtilegt í skóla
Vigdís segir að það hafi verið
skemmtilegt að setjast aftur á
skólabekk. „Ég fann mig vel í
náminu. Skólasamfélagið á Bif-
röst er líka einstakt, allir á sama
stað í lífinu, að læra og klára sitt
nám. Það var mikill kraftur í
unga fólkinu og ég fann aldrei
fyrir aldursmun. Stundum hugs-
aði ég, aumingja fólkið, nýkomið
úr menntaskóla að gera verkefni
með eldra fólki. Ég fann þó aldrei
fyrir því að það setti það eitthvað
fyrir sig.“
Vigdís hafði hug á að nýta
námið og starfa á lögfræðistofu.
„Ég var ákveðin í að taka mál-
flutningsréttindi en þá gripu ör-
lögin inn og ég var kosin á þing.
Hins vegar hefur námið nýst mér
á mörgum sviðum. Í starfi mínu
er gott að þekkja réttarsviðin.
Sömuleiðis leita vinir og vanda-
menn oft ráða hjá mér í hinum
ýmsu málum.“
Vigdís hvetur eldra fólk til að
hefja nám hafi það áhuga fyrir
að breyta til og feta nýjar braut-
ir. „Námið hefur nýst mér mjög
vel í starfi. Eftir á að hyggja hefði
ég ekki getað hugsað mér að vera
þingmaður án lögfræðikunnáttu.
Að kunna að lesa frumvörp, til-
gang laga og greinargerðir spar-
ar mér mikinn tíma í vinnunni.“
Gott félagslíf
Áttu skemmtilega sögu frá náms-
árunum? „Þær eru nú margar og
margt og mikið var brallað utan
skólatíma. Bifróvision hélt enn
velli þegar ég var í námi, það var
árshátíð nemenda og kennara
byggð á Eurovision. Ég tók reynd-
ar aldrei þátt enda vita laglaus en
var því betri stuðningsmaður
þess atriðis sem mér fannst best.
Síðan stofnaði ég ásamt f leira
góðu fólki Framsóknarfélag Bif-
rastar og var það mjög öflugt og
hátt í 100 félagsmenn þegar mest
var. Það lognaðist út af stuttu eftir
að ég flutti en var nýverið endur-
vakið.“
Skemmtilegar
sögur af
skelfilegum
dreng!
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
1
-2
4
5
C
1
7
6
1
-2
3
2
0
1
7
6
1
-2
1
E
4
1
7
6
1
-2
0
A
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K