Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 46

Fréttablaðið - 14.05.2015, Síða 46
14. maí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30 ➜ Þótt færri orðum hafi verið eytt í konur en karla þegar fjallað er um myndlist, er enginn hörgull á nöfnum og lýsingarorðum yfir þennan helming Íslendinga. Tungumálið er spegill þjóðar- sálarinnar og orð íslenskrar tungu sem lýsa konum eru mýmörg. Sum hafa gleymst og ný orðið til í tímans rás og ef til vill er það einmitt þegar þessi þróun er skoðuð sem staða íslenskra kvenna verður sýnilegust. FIMMTUDAGUR Tilefni sýningarinnar er að í ár eru hundrað ár liðin frá því að konur fengu kosninga- rétt. Alls sýna ellefu fulltrúar sem tilheyra þremur kynslóð- um íslenskra listakvenna, en hver um sig hefur skapað sér sérstöðu og í listsköpun sinni tekist á við erfiðar spurning- ar er varða konur og kyn. Auk þeirra skrifa þær Anna Hallin, Eirún Jónsdóttir, Eva Ísleifs- dóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Lóa Hjálmtýs- dóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Rakel MacMa- hon og Valgerður Guðlaugs- dóttir stutta texta í sýningarskrá þar sem þær velta fyrir sér þema sýning- arinnar. Leitað er í eldri viðtöl við Elínu Pjet. Bjarnason, Rósku og Sigrid Valtingojer sem eru látnar, en þar má finna ummæli sem tengjast sýn- ingarefninu. Um svipað leyti og konur fengu kosn- ingarétt hér á landi var það helst í vefnaði og textíl sem kona gat látið ljós sitt skína á þessum vett- vangi og verk hennar þá gjarn- an afgreidd sem handverk fremur en myndlist af þeim sem til þóttust þekkja. Kon- urnar á þessari sýningu, höf- undar jafnt sem höfundarverk, beina athyglinni að tómarúm- inu sem blasir við í karllægri listasögu um leið og þær senda henni langt nef. Þótt færri orðum hafi verið eytt í konur en karla þegar fjallað er um myndlist, er eng- inn hörgull á nöfnum og lýs- ingarorðum yfir þennan helm- ing Íslendinga. Tungumálið er spegill þjóðarsálarinnar og orð íslenskrar tungu sem lýsa konum eru mýmörg. Sum hafa gleymst og ný orðið til í tímans rás og ef til vill er það einmitt þegar þessi þróun er skoðuð sem staða íslenskra kvenna verður sýnilegust. Í Gryfju safnsins hefur hluta þessara orða verið safnað saman, orðum sem spegla for- dóma og kvenfyrirlitningu en einnig ást, upphafningu og mikilleika íslenskra kvenna. Sýningin stendur til 28. júní og er safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 17. Sýningarstjórar eru þær Kristín G. Guðnadóttir og Steinunn G. Helgadóttir. Aðgangur er ókeypis. Sýning þar sem konur fj alla um konur Í dag opnar sýningin Frenjur og fórnarlömb í Listasafni ASÍ, sem hluti af Lista- hátíð í Reykjavík. Þar fj alla konur um konur og draga fram ýmsar birtingarmyndir kveneðlisins ásamt því að fj alla um stöðu kvenna í fortíð og samtíma. EITT VERKANNA Verk eftir Valgerði Guðlaugsdóttur. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 14. MAÍ 2015 Tónleikar 16.00 World Narcosis gefur út plötu og blæs af því tilefni til tónleika í Lucky Records. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00. Ekkert aldurstakamark og frítt inn. 20.00 Hljómsveitirnar KLIKK, In The Company Of Men, Conflictions og Brött Brekka spila á Húrra. 1.000 kr. inn. Húsið opnar 20.00 Fyrsta band á svið 21.00. 20.00 Kristjana Stefánsdóttir og Kjart- an Valdemarsson verða með spuna- tónleika í Hannesarholti, Grundarstíg 10. Miðaverð er 2.500 kr. 21.00 Jimmy Nyborg trio spilar í Mengi í kvöld. Skandinavískir listamenn með grunn í jazz, klassískri tónlist og þjóð- lagatónlist. 22.00 Hljómsveitin Flakk heldur tón- leika á ObLaDí ObLaDa, Frakkastíg 8 kl. 22.00. Aðgangur er ókeypis. Leiklist 20.00 Endatafl eftir Samuel Beckett á Listahátíð í Reykjavík. Leiksýning í Tjarnarbíói með umræðum við lista- menn á eftir. Opnanir Sýningin Handverk og hönnun fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 14.-18. maí. Hægt að skoða kynningu á öllum þátttakendum á síðunni www.hand- verkoghonnun.is/radhusid Sýningar 11.00 Dagur eldri borgara á Seltjarnarnesi haldinn hátíðlegur. Klukkan 15.00 opna eldri bæjarbúar handverks- sýningu í salnum á Skólabraut 3-5. Kaffisala og vöfflur á staðnum. 13.00 Myndverk Kristins G. Harð- arsonar verður afhjúpað á Gunn- fríðarstöpli fyrir framan Listasafn ASÍ við Freyjugötu 41. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 13.00 til 17.00 og aðgangur er ókeypis. 13.00 Sýning Huldu Hákon; Björg, sólskin, hetjur, himinn, haf og fuglar, opnar í Tveir hrafnar listhús, Baldurs- götu 12. Sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2015. 13.00 Í dag opnar sýning á verkum nemenda frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og Landakotsskóla sem unnin eru út frá óperunni og ævintýrinu um Lísu í Undralandi. 16.00 Sýning Ásdísar Sifjar Gunnars- dóttur, Misty Rain, opnar í Hverfisgall- erýi í dag. Þetta er hennar fyrsta einka- sýning. Sýningin er hluti af Listahátíð. 18.00 Sýningin Prýði / Adorn í sýn- ingarstjórn og umsjón Becky Forsythe verður opnuð í Nýlistasafninu í dag. Opið 18.00-20.00. 18.00 Sýningin Vorverk eftir Kristínu Helgu Káradóttur, verður opnuð í Nýlistasafninu. Opnunartími þriðjudaga til laugardaga 12.00-17.00. Hátíðir 13.00 Karnival á Ásbrú. Árlegur Opinn dagur á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ævar vísindamaður er sérstakur gestur karnivalsins í ár. Dans 17.00 Útskriftarnemendurnir Tony Vezich, Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Steinunni Ketilsdóttir sýna dansverk sín í Gamla Bíói. Sýningartímar: 14. maí kl. 17.00, 14. maí kl. 20.00 og 15. maí kl. 17.00. 20.00 Salsaveisla á RIO. Fimmtudagar eru Salsadagar á RIO. Frír prufutími í salsa fyrir byrjendur kl. 20.00 og síðan er dansgólfið laust. Uppistand 22.00 Tilraunauppistandskvöld á Íslenska Rokkbarnum í Hafnarfirði. Hafið samband gegnum Face- book- síðu uppistand.is ef þið viljið koma fram. Frítt inn. Fyrirlestrar 12.00 Hádegisleiðsögn með Bjarna Sigur- björnssyni um sýn- inguna Nýmálað 2 á Kjarvalsstöðum. Eftir leið- sögnina er gestum boðið upp á kaffi. Aðgangseyrir kr. 1.400, ókeypis fyrir menningarkortshafa, eldri borgara og 18 ára og yngri. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabla- did.is ELDRI BORGARAR Handverkssýning með verkum eldri borgara verður opnuð í dag. LÓA HJÁLMTÝS- DÓTTIR „Þetta er eiginlega orðið árlegt hjá okkur, á degi eldri borgara. Hann hefur oftast verið hald- inn á uppstigningardag, og þá setjum við upp handavinnusýn- ingu í tilefni dagsins,“ segir Kristín Hannesdóttir, forstöðu- kona félags- og tómstundastarfs eldri borgara á Seltjarnarnesi. Á handavinnusýningunni sýna þátttakendur í tómstundastarfi eldri borgara á Seltjarnar- nesi afrakstur af námskeiðum vetrarins. Í hópnum eru 40-50 manns. „Þetta er allt frá því að vera andlit á tannstönglum upp í rúmábreiður. Við erum með muni úr glerlist og glerbræðslu, leir og listasmiðju, handavinnu og bókband. Svo eru timbur- mennirnir okkar sér á báti, en þeir eru að skera út og tálga,“ segir Kristín. Sýningin verður haldin í saln- um að Skólabraut 3-5 og verður opin í dag frá klukkan 15. Einn- ig verður hún opin á föstudag og laugardag frá klukkan 14.00 til 17.00. Flest verkin eru í einka- eigu en sölubás verður á staðn- um, og að auki verður hægt að kaupa kaffi og vöfflur. - asi Frá andliti á tannstöngli í ábreiðu Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi opnar árlega handverkssýningu í dag. Svo eru timburmenn- irnir okkar sér á báti, en þeir eru að skera út og tálga. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 1 -B 3 8 C 1 7 6 1 -B 2 5 0 1 7 6 1 -B 1 1 4 1 7 6 1 -A F D 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.