Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 20
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
að snúa þannig upp á verkið að
það sé árás á manninn sem teiknaði
blómin í bókina.
„Þetta er svo langsótt. En það
er viðtekinn misskilningur í list-
heiminum að þetta hafi verið árás
á blómin.“
Ásmundur segir enga eina túlkun
á þessu verki. „Heldur er það marg-
rætt og marglaga líkt og önnur
góð listaverk. Hvernig er hægt að
gera sýningu um íslenskt mynd-
mál, vinna með þjóðarímyndir og
sjálfsmynd þjóðarinnar, án þess að
nota bókina sem íkon? Við vorum
að vinna með bókina sem slíka og
þennan helgidóm sem handritin
okkar eru. Þessi tiltekna bók hent-
aði vel sem hráefni því hún er þykk,
í stóru broti með tiltölulega auðum
síðum. Svo notum við aðferðafræði
sem var lengi vel kennd hér í skól-
um, arfleifð Dieters Roth, með því
að nota mat sem efnivið í listaverk.“
Ofsafengin viðbrögð
Bjóstu við þessum ofsafengnu við-
brögðum? Sérðu eftir þessu? „Ég
vissi að það yrði eitthvað, en að
það yrði svona ýkt vissi ég ekki.
Ég hafði ekki áttað mig á því að
fólk myndi ráðast á þetta verk. Við
keyptum bók með ISBN-númeri og
strikamerki og breyttum í lista-
verk. Ég sé ekki að það sé skemmd-
arverk og árás, en þetta er eitt mest
umtalaða og mikilvægasta lista-
verk síðustu ára. Ég get ekki verið
óánægður með það,“ segir Ásmund-
ur.
Fleiri verk voru umdeild á sýning-
unni. Meðal annars samsett mynd
sem sýnir Bjarna Ármannsson og
friðarsúluna í bakgrunni, ljósmynd-
ir af listamönnum í faðmlögum við
útrásarvíkinga og upprifjun af því
sem sumir lýsa sem vandræðalegri
stemningu fyrir hrun sem margir
vildu gleyma.
„Ef Koddu hefði til dæmis verið
að gagnrýna Framsóknarflokkinn
þá hefði listheimurinn tekið því, en
þetta var eins konar sjálfsgagnrýni.
Fólk sá sýninguna sem árás á sína
eigin sjálfsmynd og það þótti því
erfitt.“
Átti ekki að blanda sér í menningu
Aðspurður segir Ásmundur Koddu
hafa haft talsverð áhrif á möguleika
sína til að starfa hérlendis. „Engin
spurning. Svona sýningu gæti til
dæmis enginn sett upp í dag. Mér
hefur verið kippt út úr því umbun-
arkerfi sem sem áður stóð mér til
boða, til dæmis starfslaun lista-
manna. Ég hef ekkert kennt við
Listaháskólann síðan sýningin var
og sýningin ekki verið til umfjöll-
unar þar enda mikilvægt að senda
nemendum skýr skilaboð um hvað
má og hvað má ekki. Áður hafði ég
kennt þar við ágætan orðstír.“
Deilurnar héldu áfram. Ásmund-
ur og myndlistarmaðurinn Krist-
inn Hrafnsson deildu í fjölmiðl-
um vegna ráðningar nýs rektors
við Listaháskóla Íslands. Í kjölfar-
ið sagði Kristinn í grein sinni að
Ásmundur væri kunnastur fyrir að
eyðileggja listaverk annarra lista-
manna. Ásmundur höfðaði meið-
yrðamál gegn Kristni fyrir þessi
ummæli og krafðist miskabóta.
„Hann gerir þarna persónulega
árás á mig og starfsheiður minn.
Og hann sagði fleira – sem ég hefði
átt að kæra hann fyrir líka– til
dæmis að ég hefði sótt um stöður
við Listaháskóla Íslands sem ég
hefði síðan ekki fengið og í kjölfarið
hótað málsóknum. Þetta er uppspuni
frá rótum. Ég held að þessi grein
hafi verið hugsuð sem náðarhöggið.
Skilaboðin til mín áttu að vera þau
að ég ætti ekkert með að blanda mér
inn í þennan heim menningar.“
Ásmundur tapaði málinu fyrir
dómi. „Dómarinn hefur tekið það
trúanlegt að Fallegasta bók í heimi
væri skemmdarverk en ekki lista-
verk. Kristinn skrifaði um mig
marga síðna skýrslu sem hann setti
fram sem gagn í málinu, þetta var
rógburður, sóðarit um mig á tuttugu
síðum með tugum neðanmálsgreina.
Sá einbeitti brotavilji sem birtist í
skýrslunni hefði átt að duga til þess
að ég ynni málið. En það var samt
gaman og mikilvægt að fara með
málið fyrir dómstóla.“
Ekki hluti af vinnunni
„Þetta er aðferðafræðin sem er
notuð – ráðist á persónuna og þess
vegna fer ég í þessi málaferli við
Kristin. Þetta er ekki bara árás á
tjáningarfrelsið og mig sem lista-
mann heldur líka á afkomuöryggið
og þar með heimili mitt.“
Ásmundur og fjölskylda hans
ætla að flytja til Noregs. „Við förum
núna í sumar, eltum hjúkrunarfræð-
ingana. Auðvitað er þetta óviðun-
andi ástand að mörgu leyti, þó að í
því leynist áhugaverður efniviður.
Það er líka mjög mikilvægt að lista-
menn vinni með þessi mörk tjáning-
arfrelsisins og þenji þau út. Það er í
sjálfu sér áhugavert.“
Ásmundur segist hafa komið
tvíefldur út úr öllu saman, en segir
líka erfitt að sjá hvernig hlutirnir
virka. „Að sjá hvernig einstakling-
urinn hagar sér í svona átökum þar
sem sannleikurinn verður aukaat-
riði. Þá getur það verið mjög sjokk-
erandi að sjá hræðsluna sem grípur
fólk þegar kerfið sýnir tennurnar.“
Ertu að bugast og þess vegna að
fara úr landi? „Nei, en þetta er auð-
vitað orðið rosalega aðþrengt. Þetta
heldur áfram. Ég veit ekki hvort ég
er að ýkja með að kalla þetta ofsókn-
ir. Þær náðu hápunkti niðri í Mynd-
höggvarafélaginu í Reykjavík í
maí, þar sem ég hef unnið síðustu
ár. Ég og Hannes Lárusson vorum
sem sagt reknir úr Myndhöggv-
arafélaginu fyrir þjófnað, óheil-
indi, skemmdarverk og misnotkun
á aðstöðu félagsins svo fátt eitt sé
nefnt,“ útskýrir Ásmundur og held-
ur áfram.
„Þessum óhróðri var laumað inn
á aðalfund Myndhöggvarafélagsins
undir liðnum önnur mál, tillögu um
að okkur yrði vísað úr félaginu án
þess að við fengjum tækifæri til að
bregðast við ásökunum. Það greiddu
átta atkvæði með þessu og sjö
voru á móti. Hinir sátu hjá,“ segir
Ásmundur og bætir við að hann hafi
verið steinhissa þegar hann frétti af
brottrekstrinum.
„Þetta er hneisa, fyrir félag sem
er rekið fyrir opinbert fé. Svo kom í
ljós að Kristinn Hrafnsson var höf-
undur að þessari tillögu. Hann er
þarna í ofstækisfullri hagsmuna-
gæslu og hatursherferð.“
Snemma til vandræða
Ásmundur byrjaði snemma í Mynd-
listarskólanum á Akureyri, átján
ára gamall. „Ég fór svo í fjöltækni-
deild í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Síðan fór ég til New York, í
School of Visual Arts og lærði þar.
Ég byrjaði strax að gera gjörninga
og innsetningar í myndlistarskólan-
um, það var svona stemningin í fjöl-
tæknideild, ég sótti þar gjörninga-
kúrsa og þess háttar,“ segir hann.
Ásmundur segist strax hafa
rekið sig á veggi innan myndlistar-
heimsins, nýútskrifaður. „Mér var
boðið að taka þátt í sýningu á Kjar-
valsstöðum. Sýningin hét Skúlp-
túr skúlptúr skúlptúr árið 1994 og
Gunnar Kvaran var sýningarstjór-
inn. Ég sendi póstkort til félaga
míns á Akureyri og setti lógó Kjar-
valsstaða framan á. Inni í póstkort-
inu lýsi ég samskiptum mínum við
starsfólk safnsins og geri góðlátlegt
grín að því. Þetta endar einhvern
veginn hjá Kjarvalsstöðum en ekki
Akureyri.
Þegar ég ætla að koma með verk-
ið og held ég sé með á sýningunni,
er ég stoppaður og spurður hvort
ég hafi ekki verið að senda bréf til
þeirra um samskipti mín við þau.
Ég kannaðist ekkert við það. Það
endaði þannig að ég var rekinn af
sýningunni. Ég varð strax til vand-
ræða, en þetta var reyndar óvart.
Og þarna sá ég möguleikana í þessu.
Þetta víkkaði sviðið fyrir mér. Hvað
væri hægt að vinna með, þá fór ég
að skoða þessi innviði og stofnanir
listheimsins og nota sem efnivið í
listaverk. Í sjálfu sér var þetta póst-
kort jafnvel enn þá betra en verkið
sem ég ætlaði að sýna.“
Hola
Í vor var opnuð grunnsýning á
íslenskri list og sjónrænum menn-
ingararfi, Sjónarhorn, í Safnahús-
inu við Hverfisgötu. Til stóð að
verk Ásmundar, Hola, yrði sett
upp fyrir utan bygginguna. Hola
er verk frá 2009 þar sem Ásmund-
ur fékk hóp grunnskólabarna til
að moka fyrir sig djúpa holu, síðan
var afsteypa tekin af holunni og
það stykki var sýnt sem skúlp-
túr. Þegar til kom steig þjóðminja-
vörður fram og sagði að verkið yrði
ekki sett upp fyrir utan Safnahús-
ið. Ástæðan var húsafriðun. „Ég
hafði samband við Minjastofnun
og fékk þær upplýsingar að húsa-
friðunarnefnd skipti sér ekki af
því þótt verk væru sett tímabundið
fyrir utan húsið. Ég fékk reyndar
líka að vita að aldrei barst Minja-
stofnun erindi vegna Holu. Það var
aldrei nein alvara á bak við það að
setja verkið upp.“
Straumlínulögun
Ásmundur leggur áherslu á hversu
alvarleg ritskoðun sé. „Tjáningar-
frelsið er þungamiðjan í siðuðu
samfélagi. Listin á að vera vett-
vangur átaka, því það er með átök-
unum sem útvíkkunin á sér stað. En
þetta ofstæki og þöggunartilburðir
er eitthvað sem á ekki að viðgangast
og er í rauninni hættulegt og stór-
skaðlegt fyrir listina í landinu og
frjálsa hugsun. Róttækni er umbor-
in upp að vissu marki. Allt skal vera
straumlínulagað. Það má gagnrýna
Framsóknarflokkinn, en ekki þá
sem gagnrýna Framsóknarflokk-
inn. Það er svo spurning hvort ungt
listafólk ætli að sætta sig við þetta
ástand. Ég held að það sé kominn
tími til róttækrar endurskoðunar
og endurnýjunar.“
FALLEGASTA BÓK Í HEIMI Bók og matvæli, 2011. MYND/INGVAR HÖGNI RAGNARSSON
HOLA, STEINSTEYPA OG STÁL Frá sýningunni Hola í Listasafni Reykjavíkur árið 2009.
MYND/ÍVAR BRYNJÓLFSSON
OPNUNARTÍMAR
Virka daga
10:00 - 18:30
Laugardaga
11:00 - 16:00
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ÖRYGGISVÖRN
2.990
ISECUR1
2. JÚLÍ 2015 - BIRT M
EÐ
FYRIRVARA UM
BREYTIN
GAR, PREN
TVILLUR OG M
YN
DABREN
GL
0%VEXTIRALLAR VÖRURVAXTALAUST Í 12 MÁNUÐI
99.900
13” FHD OG SSD DISKUR
• Intel Dual Core 3556U 1.7GHz 2MB• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 120GB SSD SATA3 diskur• 13.3’’ FULL HD LED 1920x1080 skjár• 512MB Intel HD Graphics skjákjarni• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar• 720p Crystal Eye HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
V3-331
P7XB
7
FULL HDLED1920x1080 ULTRA SLIM SKJÁR
HÁGÆÐA TÖSKUR
4.990
VERÐ FRÁ:
Office University
11.900
MENNTA- OG HÁSKÓLAR
WORD, EXCEL,
OUTLOOK, POWER-
POINT, ONENOTE OG
ÓTAKMARKAÐ PLÁSS
Á ONEDRIVE
OFFICE365
LEYFI Í 4ÁRFYRIR FRAMHALDSSKÓLA OG HÁSKÓLA NEMENDUR 1 NOTANDI, 2 TÖLVUR PC&MAC
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
5.990
VERÐ ÁÐUR 8.990
15.6” TRAVELMATE
99.900
P255
3
Á
R
A
AC
ER
ADVANTAGE ÁBYR
G
Ð
ÁRA
A
C
E
R
B
U
SINESS LINE HÁGÆ
ÐA
T
Ö
LV
U
R
179.900
ÓTRÚLEG DRAUMAFARTÖLVA:)
• Intel Core i5-4210U 2.7GHz Turbo 4xHT• 12GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 1TB SSHD og 8GB SSD Hybrid diskur• 15.6’’ FULL HD 1920x1080 IPS skjár• 4GB GeForce GTX850M leikjaskjákort• 4.0 Dolby Digital Plus Surround hljóðkerfi• 300Mbps WiFi 2x2 MIMO, BT 4.0, USB 3.0• 720p Crystal Eye HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
NITRO
FULL HDIPS1920x1080 SKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
9
209.900
80HE00GXM
Sú allra flottasta frá Lenovo og ein glæsilegasta far-tölvan í dag með QHD+ IPS fjölsnertiskjá sem hægt er að snúa 360° og mögnuðu JBL Waves Audio!
• Intel Core M-5Y51 2.6GHz Turbo 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 256GB SATA3 SSD ofur hraður diskur• 13.3’’ QHD+ IPS fjölsnertiskjár 3200x1800• Intel HD 5300 DX11 skjákjarni• AccuType lyklaborð með baklýsingu• 900Mbps WiFi AC, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
YOGA3 PROLENOVO MEÐ QHD+ SNERTISKJÁ
7
360°
SNÚNINGUR
FARTÖLVA ,
STANDUR OG
SPJALDTÖLVA
TOSHIBA Á BETRA VERÐI
129.900
L50-B-1H
119.900
8555GTK
VN7-571G
NÝ
KYNSLÓÐ
ÖRÞUNN AÐEINS
18mm OG FISLÉTT
Öflug fartölva í leikina með 4ra kjarna örgjörva ásamt öflugu 2GB Radeon HD8750M DUAL DX11 leikjaskjákorti og Dolby 4.0 hljóðkerfi.
• AMD A8-5557M Quad Core 3.1GHz Turbo• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 1TB SATA3 Ultra Fast harðdiskur• 15.6’’ HD LED CineCrystal 1366x768• 2GB HD8750M DUAL leikjaskjákort• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• 4.0 Dolby Home Theater v4 hljóðkerfi• 720p HD Crystal Eye vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
V5-552G
NÝJASTA KYNSLÓÐ FARTÖLVA
VINSÆLASTA FARTÖLVAN OKKAR;)
139.900
ÖFLUG i7 MEÐ SNERTISKJÁ
• Intel Core i7-4510U 3.1GHz Turbo 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 500GB SSHD og 8GB SSD Hybrid diskur• 14’’ HD+ LED 1600x900 fjölsnertiskjár• 2GB GeForce GT730M leikjaskjákort• 300Mbps þráðlaust net, Bluetooth 4.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 10 tímar• Innbyggð 720p HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
59421728
U430
HD+
TOUCH
HÁGÆÐA 10-PUNKTA
FJÖLSNERTISKJÁR 10ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 149.900
10ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 219.900
15.6” HP PAVILION
3
LITIR
99.900
15-P271ND
LIVE
SAFE 2015
VÖRN FYRIR ÖLL TÆKI
HEIMILISINS. TÖLVUR,
SÍMA
OG SPJALDTÖLVUR
6.990
SUMARSMELLURÚRVALIÐ ER Í STÆRSTU TÖLVUVERSLUN LANDSINS
15.6” Skjár
Intel i3 örgjörvi
4GB vinnsluminni
500GB HYBRID diskur
Windows 8.1
15.6” Skjár
Intel i3 örgjörvi
8GB vinnsluminni
500GB harðdiskur
Windows 7/8.1
15.6” Skjár
Intel i5 Örgjörvi
4GB vinnsluminni
1TB Harðdiskur
Windows 8.1
Fislétt og þæginleg lokuð heyrnartól, frábær hljómur og öflugur bassi og hljóðnemi í snúru.
FYRIR FÓLK Á FERÐINNI
19.900
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Fislétt en öflug spjaldtölva frá Lenovo með 7” HD IPS skjá Quad-Core örgjörva Dolby Digital hljóðkerfi.
29.900
FRÁBÆR FERÐAFÉLAGI;)
Ný kynslóð öflugri og þynnri spjaldtölva frá Acer með ótrúlegum 8” IPS HD fjölsnertiskjá.
ACER A1-830
6.990
89.900
• Intel Core i3-4030U 1.9GHz 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 500GB SATA3 Ultra Fast harðdiskur• 14’’ HD LED 1366x768 fjölsnertiskjár• 1GB Intel HD 4400 DX11 skjákjarni• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar• 720p Crystal Eye HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
471P
ÖRÞUNN MEÐ SNERTISKJÁ!
TRUE HD
TOUCH
HÁGÆÐA 10-PUNKTA
FJÖLSNERTISKJÁR
7
E5-TOUCH
Í Júlí fást al
lar
vörur með v
axtalausum
raðgreiðslu
m með 3.5%
lántökugjald
i og 390kr
greiðslugjald
i af hverjum
gjalddaga
12V FARTÖLVU
SPENNUBREYTIR
Í BÍLA VIRKAR
FYRIR FLESTAR
FARTÖLVUR
FARTÖLVAN Í BÍLINN!
10ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 99.900
10ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 109.900
189.900
59423795
Y50
• Intel Quad Core i7-4710HQ 3.5GHz Turbo • 16GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 1TB SSHD og 8GB SSD Hybrid diskur• 15.6’’ Full HD LED AntiGlare 1920x1080• 4GB GeForce GTX860M leikjaskjákort• 2.1 JBL Dolby Digital Plus hljóðkerfi• AccuType lyklaborð með baklýsingu• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
MÖGNUÐ LEIKJAFARTÖLVA
99.900
GLÆSILEG MEÐ SNERTISKJÁ
472PG
V3-Touch kemur úr lúxus snertilínu Acer meðrammalausum fjölsnertiskjá, nýrri rafhlöðutækni,burstað álbak og Dolby Digital Plus hljóðkerfi.
• Intel Core i5-4210U 2.7GHz Turbo 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 1TB SATA3 Ultra Fast harðdiskur• 14’’ HD LED 1366x768 fjölsnertiskjár• 2GB GeForce 840M leikjaskjákort• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar• 720p Crystal Eye HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
7
V3-TOUCH
LÚXUS SNERTILÍNA ACER
FRAMELESS
TOUCH
HÁGÆÐA 10-PUNKTA
FJÖLSNERTISKJÁR
20ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 119.900
149.900
• Intel Core i5-4210U 2.7GHz Turbo 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 500GB SSHD og 8GB SSD Hybrid diskur• 13.3’’ FULL HD IPS fjölsnertiskjár• 1GB Intel HD 4400 DX11 skjákjarni• AccuType lyklaborð með baklýsingu• 300Mbps WiFi, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 8 tímar• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
YOGA2
59428551
NÝ SENDING VAR AÐ LENDA
FULL HDIPSFJÖLSNERTISKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
SILICON
BUMPER
VARNARHLÍF
MOBII P722
SPJALDTÖLVA
ÖFLUG DUAL CORE 7” MOBII SPJALD-
TÖLVA MEÐ SILICON HÖGGHLÍF OG
VÖNDUÐUM ROCK100 HEYRNAR-
TÓLUM. FRÁBÆR FYRIR KRAKKANA!
16.900
ROCK100
HEYRNARTÓL
FYLGJA
7
1024x768IPSHD SKJÁR MEÐ ALLT AÐ178° SJÓNARHORN
1024x600IPS SKJÁR MEÐ ALLT AÐ178° SJÓNARHORN
FLOTT SVÖRT EÐA HVÍT TASKA2.990AÐEINS Í JÚLÍ
TILBOÐ
229.990
• Intel Core i5-5250U 2.7GHz Turbo 4xHT• 4GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 256GB SSD PCle Flash - 60% hraðari• 13.3’’ HD LED Glossy 1440x900 skjár• AC WiFi, BT4.0, USB 3.0, Thunderbolt 2• Li-Polymer rafhlaða allt að 12 tímar• Apple OS X Yosemite stýrikerfi
MacBookAir
13” 256GB SSD
MACBOOK
ÍSL
EN
SK
IR L
ETUR L
ÍMMIÐAR Á LYKLABORÐI
E
N
N BETRA VE
RÐ
!
Á BETRA VERÐI MEÐ ÍSLENSKUM LETUR LÍMMIÐUM
ÞÚ FÆRÐ
2015
ALGENGT VERÐ 249.990
• Intel Dual Core N2830 2.41GHz Burst• 4GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 500GB SATA3 Ultra Fast harðdiskur• 15.6’’ HD LED CineCrystal 1366x768• 512MB Intel HD Graphics skjákjarni• 300Mbps þráðlaust net, Bluetooth 4.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 12 tímar• 720p Crystal Eye HD vefmyndavél• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
49.900
Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
12
EX2509
EXTENSA
15.6” LENOVO G50
LENOVO G5015.6” fartölva með Intel Dual Core örgjörva, 4GB minni, 500GB disk og Windows 8.1
G50-30-800G
59.900
279.900
MacBook Pro Retina
13.3” 256GB
MACBOOK
ÍSL
EN
SK
IR L
ETUR L
ÍMMIÐAR Á LYKLABORÐI
E
N
N BETRA VE
RÐ
!
Á BETRA VERÐI MEÐ ÍSLENSKUM LETUR LÍMMIÐUM
ÞÚ FÆRÐ
2015
KOSS UR23i
NÝ
ERU AÐ
LENDA
NÝ
VAR AÐ
LENDA
4
LITIR
ALLSOP MÚSAMOTTUR
AFSLÁTTUR
50%
AF ÖLLUM ALLSOP
MÚSARMOTTUM MEÐ
LITUÐUM MYNDUMMEÐAN BIRGÐIR ENDAST!
390
VERÐ FRÁ:
QHD+IPSFJÖLSNERTISKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
FÆST Í 2 LITUM
IDEATAB TAB2
189.900
• Intel Core M-5Y70 2.6GHz Turbo 4xHT• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni• 256GB SATA3 SSD ofur hraður diskur• 13.3’’ QHD+ IPS fjölsnertiskjár 3200x1800• Intel HD 5300 DX11 skjákjarni• AccuType lyklaborð með baklýsingu• 900Mbps WiFi AC, Bluetooth 4.0, USB 3.0• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar• Windows 8.1 64-bit, hlaðið nýjungum
YOGA3 PRO
80HE0071
360°
SNÚNINGUR
FARTÖLVA ,
STANDUR OG
SPJALDTÖLVA
7
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST!
30ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 219.900
SNJALLARIHEIMASÍÐAVið kynnum til sögunar Mobile útgáfuna af Tolvutek.is njóttu þess að vafra um síðuna okkar í símanum eða spjaldtölvunni!
4BLS
K
IP
P
A
Ú
T :)
NÝR BÆKLINGUSTÚTFULLURAF SPENNAN I TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
OPIÐ
Í DAG Á
11-16
AFSLÁTTUR
50%
AF ÖLLUM CLINGO FARSÍMA FESTINGUMÍ JÚLÍ Á MEÐANVERÐ FRÁ 490kr.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Hann gerir þarna
persónulega árás á mig og
starfsheiður minn.
Og hann sagði fleira –
sem ég hefði átt að kæra
hann fyrir líka.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
6
-2
F
D
C
1
7
5
6
-2
E
A
0
1
7
5
6
-2
D
6
4
1
7
5
6
-2
C
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K