Fréttablaðið - 04.07.2015, Qupperneq 37
| ATVINNA |
Öflugur bókari óskast.
Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar og dótturfélög
þeirra óska eftir öflugum og áreiðanlegum bókara til starfa
sem fyrst. Reynsla við bókhald og uppgjör er áskilin.
Starfssvið :
• Færsla bókhalds í Microsoft Dynamics AX, þ.m.t.
merking fylgiskjala, skráning reikninga, innborgana
og greiðslna.
• Afstemmingar á bókhaldsreikningum,
bankareikningum og lánadrottnum.
• Vinna við ársuppgjör og árshlutauppgjör.
• Skil á virðisaukaskattsskýrslum, skattskýrslum og
öðrum gögnum til skattyfirvalda.
• Aðstoð við áætlanagerð.
• Önnur störf eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Veruleg þekking og reynsla á bókhaldi er skilyrði.
• Mjög góð kunnátta í Excel og almenn tölvufærni
áskilin.
• Þekking á Microsoft Dynamics AX æskileg.
• Þekking á uppgjörum samkvæmt alþjóðlegum
reikingsskilastöðlum (IFRS) kostur.
• Nákvæm og öguð vinnubrögð.
• Rík hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 13. júlí n.k.
Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilskrá í
tölvutæku formi til gylfi@eir.is.
Laus störf við
leikskólann Laut
Deildarstjóra og leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum
Laut í Grindavík frá 1.okt. Um er að ræða stöður á nýrri deild fyrir
átján mánaða börn. Vinnutími frá kl. 08:00-16:00.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn verður fimm deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða
- 6 ára frá og með 1.október. Við erum ,,Skóli á grænni grein” og
vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði ,
hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um
leikskólann er að finna á heimasíðu hans.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
æskileg.
• Færni í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til
greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 426-8396 og 847-9859.
Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið gleik@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir.
Umsóknarfrestur er til 1.ágúst 2015
Hjá Icelandair hótelum starfar úrvals-
hópur með sameiginleg markmið þar
sem borin er virðing fyrir gestum og
samstarfsmönnum.
Icelandair hótelin leggja áherslu á
samvinnu, ábyrgð og frumkvæði í starfi
ásamt vilja til að takast á við krefjandi
verkefni.
Nýir starfsmenn fá vandaða
kynningu á fyrirtækinu og fara í
gegnum markvissa þjálfun til þess að
geta tekist á við störf sín af öryggi.
Unnið er að stöðugri framþróun og
starfsmönnum veitt tækifæri til vaxtar
og þroska í starfi.
Flugleiðahótel reka tvær hótelkeðjur; Icelandair Hotels og Hótel Eddu, samtals 21 hótel ásamt því að
reka Hilton Reykjavík Nordica og Canopy.
ICELANDAIR HÓTEL REYKJAVÍK NATURA
LEITAR AÐ STARFSFÓLKI Í GESTAMÓTTÖKU
Hæfniskröfur:
• Rík þjónustulund og vönduð framkoma
• Góð samskipta- og samstarfshæfni
• Góð enskukunnátta er skilyrði, önnur
tungumálakunnátta er kostur
• Þekking á bókunarkerfinu Cenium (Navision) er kostur
• Reynsla af störfum í gestamóttöku eða
öðrum þjónustustörfum er kostur
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Talnaglöggni
• Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
Starfssvið gestamóttöku er fjölbreytt og lifandi þar sem fólk með ríka samskiptahæfni fær að njóta sín.
Við leitum að öflugu samstarfsfólki í dag- og næturvinnu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí 2015.
Umsóknir sendist til: umsoknir@icehotels.is, merktar „Umsókn um starf í gestamóttöku“.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Kristjana Milla Snorradóttir, gestamóttökustjóri: kristjanas@icehotels.is eða í síma 444-4500
Björk Baldvinsdóttir, starfsmannastjóri: bjorkbal@icehotels.is
Starfssvið:
• Veita gestum og starfsfólki
hótelsins framúrskarandi þjónustu
• Undirbúningur fyrir komu og
brottför gesta
• Reikningagerð og afstemmingar
• Öryggiseftirlit á hótelinu
• Úrlausn þeirra verkefna sem
upp koma hverju sinni
• Önnur verkefni sem tilheyra
gestamóttöku hótelsins
Við leitum að áreiðanlegu samstarfsfólki með ríka þjónustulund til starfa í
gestamóttöku á Icelandair hóteli Reykjavík Natura.
LAUGARDAGUR 4. júlí 2015 5
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-0
4
2
C
1
7
5
7
-0
2
F
0
1
7
5
7
-0
1
B
4
1
7
5
7
-0
0
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K