Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 38
| ATVINNA |
United Silicon hefur hafið
byggingu kísilvers í Helguvík á
Reykjanesi og framleiðsla mun hefjast
á vordögum 2016. Áætlanir gera ráð
fyrir að um 60 starfsmenn muni starfa
hjá verksmiðjunni á rekstrartíma en
200 starfsmenn meðan á uppbyggingu
og uppsetningu búnaðar stendur.
Við leitum að jákvæðum og
dugmiklum starfsmönnum
sem vilja leggja sitt af mörkum til að
skapa frábært rekstrarteymi. Reynsla
af störfum í stóriðju eða við
annan framleiðslutengdan iðnað
er kostur en ekki skilyrði.
Við leitum að starfsfólki
í nýtt Kísilver í Helguvík
Nánari upplýsingar veitir
Rut Ragnarsdóttir í síma 669 6003.
Umsóknum ásamt ferilsskrá
skal skilað á netfangið rut@silicon.is
fyrir mánudaginn 20.júlí 2015
Verkfræðingur
í málmframleiðslu
Starfslýsing:
Starfsmaðurinn mun bera ábyrgð á framleiðsluferlum við kísilframleiðslu, allt
frá innmötun hráefna til framleidds málms. Starfið felur í sér mikil samskipti
við jafnt framleiðslustarfsmenn sem aðra.
Hæfniskröfur:
Verkfræðingurinn þarf að geta sett sig inní viðkomandi efnaferla og þekkja
framleiðslubúnaðinn. Einnig þarf verkfræðingurinn að hafa góða greiningar-
hæfileika og frábæra samskiptahæfileika. Við leitum að einstaklingi með
próf í verkfræði, efnaverkfræði eða sambærilegum greinum.
Framleiðslustarfsmenn
Starfslýsing:
Við leitum að lykilmönnum til að vinna við framleiðslu á kísli. Á meðan á
uppbyggingu verksmiðjunnar stendur munu þessir starfsmenn taka þátt í
uppsetningu og prófunum á búnaði ásamt því að hjálpa til við undirbúning að
því að hefja rekstur. Áður en framleiðslan hefst munu starfsmenn verða
þjálfaðir í framleiðslu kísils. Þegar framleiðsla hefst munu starfsmenn vinna
við umhirðu ofns, málmtöku og útsteypingu. Framleiðslan mun fara fram allan
sólarhringinn og unnið verður á vöktum.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi starfsmenn þurfa að vera áhugasamir, duglegir og nákvæmir og
vera tilbúnir til að setja sig inní bæði virkni búnaðar og framleiðsluferli.
Nauðsynlegt er að viðkomandi eigi auðvelt með að starfa í teymi með öðrum
starfsmönnum. A.m.k. 5 ára starfsreynsla er nauðsynleg ásamt góðri kunnáttu
á tækjabúnað en ekki er krafist formlegrar menntunar.
Viðhaldsstarfsmenn
við raf- og vélbúnað
Starfslýsing:
Við leitum að rafvirkjum, vélvirkjum og vélstjórum til að vinna við viðhald á búnaði
kísilversins. Hér er um að ræða störf fyrir aðila sem hafa brennandi áhuga á
rekstri og fyrirbyggjandi viðhaldi. Meðan á uppbyggingu verksmiðjunnar stendur
munu viðkomandi starfsmenn vinna við uppsetningu og prófanir á búnaði
Hæfniskröfur:
Mikil áhersla er lögð á skipulagt fyrirbyggjandi viðhald og störfin munu fela í sér
bæði beina viðhaldsvinnu og skipulagsvinnu. Starfsmenn þurfa að vera skipulagðir
og metnaðarfullir fyrir hönd búnaðar verksmiðjunnar. Starfsmenn þurfa að hafa
sveinspróf og a.m.k. 5 ára starfsreynslu.
Stjórnandi
framleiðslustarfsmanna
Starfslýsing:
Starfsmaðurinn mun stýra og samræma vinnu framleiðslustarfsmanna sem vinna
á vöktum ásamt því að bera ábyrgð á ferlum við málmtöku og útsteypingu
málms. Starfið er unnið í dagvinnu.
Hæfniskröfur:
Við leitum að kraftmiklum starfsmanni með leiðtogahæfileika. Starfsmaðurinn
þarf að vera nákvæmur, áreiðanlegur og útsjónarsamur við lausn verkefna.
Hann/hún þarf að sýna frumkvæði og sjálfstæði og kalla fram það besta í
samstarfsmönnum sínum. Ekki er krafist formlegrar menntunar en
starfsmaðurinn þarf að hafa góða kunnáttu á tækni – og stýribúnaði og vera vel
rit og tölvufær ,vera vanur/vön að stýra bæði fólki og framleiðsluferlum.
A.m.k. 5 ára starfsreynslu er nauðsynleg.
Au
gl
ýs
in
ga
ge
rð
: V
íku
rfr
ét
tir
e
hf.
SORPA auglýsir eftir starfsfólki.
SORPA leitar að starfsmönnum til starfa í móttöku- og
flokkunarstöð SORPU í Gufunesi.
Um er að ræða tvö störf, almennur starfsmaður í móttöku-
og flokkunarstöð og vélamaður í móttöku og flokkunarstöð.
Starfsmaður í móttökustöð
Hlutverk:
• Móttaka og aðstoð viðskiptavina
• Aðstoð við flokkun farma á gólfi
• Stjórnun véla
• Sinna þrifum
• Önnur tilfallandi verkefni
Kröfur:
• Hafa bílpróf.
• Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og góða
þjónustulund
• Hafa ríka öryggis- og umhverfisvitund
• Hafa gott vald á íslensku.
Vélamaður í móttökustöð
Hlutverk:
• Vinna á vél, meðal verkefna er að færa til farma,
moka í og frá tætara og hlaða í gáma
• Umsjón og viðhald véla
• Sinna þrifum og snjómokstri
• Önnur tilfallandi verkefni
Kröfur:
• Hafa vinnuvélaréttindi á gröfu (yfir 4 tonn) og
hjólaskóflu
• Hafa þekkingu á vélum og viðhaldi þeirra.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og
góða þjónustulund
• Hafa ríka öryggis- og umhverfisvitund
• Hafa gott vald á íslensku.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um á
heimasíðu SORPU, www.sorpa.is.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR6
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
6
-D
7
B
C
1
7
5
6
-D
6
8
0
1
7
5
6
-D
5
4
4
1
7
5
6
-D
4
0
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K