Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 58
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 26
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Útileikur
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur
nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka-
safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Sóldís Urður Ólafardóttir Imsland 9 áraLestrarhestur vikunnar
Er gaman að vera hæna?
Það er mjög gaman að vera
hæna. Að minnsta kosti lítil gul
hæna.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
Þetta er erfið spurning. Ég hef
svo gaman af öllum mat. En ég
kann til dæmis að baka dýrindis
brauð. Það er sko ekkert mál ef
maður syngur bara brauðsöng-
inn og skemmtilegast þykir mér
að baka það með góðum vinum.
Eru kötturinn, lambið og svínið
vinir þínir?
Já, auðvitað eru þau það. Við
búum fjögur saman uppi á skýj-
unum, hjá risanum sem er hús-
bóndi okkar. Það eru heilmikil
verðmæti fólgin í mér og margir
sem vilja eiga mig þar sem
ég verpi gulleggjum svo hann
ákvað að fara með mig þangað
sem enginn næði til. Og það er
hérna uppi á skýjunum, hingað
kemst enginn. Hann tók líka
með sér Kleinu kettling til að
leika við, Lettu lamb út af ull-
inni og svo auðvitað Gilla grísl-
ing. Þau eiga það að vísu til að
stríða mér og það finnst mér
leiðinlegt en þau eru góð inn
við beinið.
Ertu stundum pirruð á letinni
í þeim?
Kannski pínulítið. Lífið er miklu
skemmtilegra ef allir hjálpast að
og vinna verkin saman. Ef marg-
ar hendur vinna verkið verður
það miklu auðveldara fyrir alla.
En ég er nokkuð viss um að ég
muni ná til þeirra áður en sumr-
inu lýkur.
Finnst þér gaman að fara í
ferðalög?
Mér finnst fátt skemmtilegra en
að ferðast. Um helgina ætla ég
til dæmis að vera á Flúðum, í
Hljómskálagarðinum í Reykjavík
og á Akranesi. Í sumar ferðast
ég svo á yfir 50 staði um allt
land ásamt vinum mínum í Leik-
hópnum Lottu. Það skemmtileg-
asta við að ferðast er að hitta
alla krakkana. Það er alltaf tekið
svo vel á móti okkur.
Lífi ð er skemmtilegra
ef allir hjálpast að
Þið munið eft ir litlu gulu hænunni sem fann fræ og hin dýrin nenntu ekki að
hjálpa. Nú er litla gula hænan á leiðinni um landið með leikhópnum Lottu og
við náðum af henni tali áður en hún brá sér með Herjólfi til Vestmannaeyja.
Hvað er skemmtilegast við
bækur?
Það er oftast hvað þær eru
spennandi.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún?
Ég las „Fjörugt ímyndunarafl“.
Hún var um strák sem hafði
mjög fjörugt ímyndunarafl.
Hvaða bók lastu á undan?
Ég las Skúla skelfi.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Já, það var „Fjóla á ferð í rign-
ingu“. Mamma las hana fyrir
mig þegar ég var lítil.
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar?
Spennubækur.
Í hvaða skóla gengur þú?
Í Ölduselsskóla.
Ferðu oft á bókasafnið?
Já, mjög oft.
Hver eru þín helstu áhuga-
mál?
Það eru íþróttir og að spila á
píanó.
LESTRARHESTUR Sóldís Urður fékk
pakka í verðlaun – spennandi að vita
hvaða bók er í honum!
Skipt er í tvö lið sem velja sér
liðsstjóra. Þau stilla sér upp með
um 10 metra millibili og lína er
mörkuð mitt á milli. Liðin setja
hendur fyrir aftan
bak.
Annar liðsstjór-
inn gengur aftan
við lið sitt og
setur lítinn stein í
lófann á einhverj-
um, en þykist setja
hann í fleiri lófa.
Hitt liðið horfir á og sá ysti í röð-
inni þar á að giska hver sé með
steininn. Ef hann giskar rétt fær
liðið hans að taka eitt stökk fram.
Ef hann giskar rangt tekur hitt
liðið eitt stökk fram.
Liðin skiptast á að fela
steininn og þátttak-
endur skiptast
á að giska. Það
lið sem kemst
fyrr að mið-
línunni vinnur.
Fela stein
Bragi Halldórsson
155
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-D
7
B
C
1
7
5
6
-D
6
8
0
1
7
5
6
-D
5
4
4
1
7
5
6
-D
4
0
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K