Fréttablaðið - 04.07.2015, Side 62
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVERRIR SIGURJÓNSSON
húsasmíðameistari,
Þorlákshöfn,
lést 1. júlí. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju,
Þorlákshöfn, fimmtudaginn 9. júlí kl. 14.00.
Hrönn Sverrisdóttir Guðni Pétursson
Hlín Sverrisdóttir Hreggviður Jónsson
Hlynur, Leifur, Arna, Alma Rún og Sverrir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og dóttir,
HELENA ÍNA JÓHANNESDÓTTIR
Dalsbraut 12,
Njarðvík,
lést á Landspítalanum v/ Hringbraut,
þriðjudaginn 30. júní. Útförin fer fram
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, þriðjudaginn 7. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Danelíus Á. Hansson
Alexander Magnússon Hulda María Newman
Sigurbjörg Rós Davíðsdóttir
Baldvin Pétur Davíðsson Kristjana Hafdal
Sumarrós Ína Danelíusardóttir
Benedikta Ína Danelíusardóttir
Garðar Julian Newman
og Rósa Samúelsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
JÓN KRISTÓFER SVEINSSON
fv. framkvæmdastjóri,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. maí.
Útförin fór fram í kyrrþey frá Vídalínskirkju
í Garðabæ þann 19. júní sl. Aðstandendur
vilja koma á framfæri innilegu þakklæti fyrir auðsýnda samúð.
Kristján Þorbergur Jónsson Sveinbjörg Guðmarsdóttir
Inga Sveinbjörg Jónsdóttir
Jóna Fríður Jónsdóttir Þorsteinn Ingi Jónsson
Svala Rún Jónsdóttir Guðmundur Óli Reynisson
barnabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR
Sléttuvegi 23,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut fimmtudaginn 2. júlí.
Valur Sigurbergsson
Ingveldur J. Valsdóttir Hreggviður Daníelsson
Björg Valsdóttir Jörgen H. Valdimarsson
Theódór Hjalti Valsson Auður Inga Þorsteinsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSLAUGAR HELGU ÁRNADÓTTUR
Árni Kolbeinsson Sigríður Thorlacius
Áslaug Árnadóttir Arnar Þór Guðjónsson
Kolbeinn Árnason Eva Margrét Ævarsdóttir
og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta síðan 1996
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR (SÍDA),
Jötunfelli, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
28. júní. Hún verður jarðsungin frá
Glerárkirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.30.
Ragnhildur Benediktsdóttir Einar Pálsson
Bára Benediktsdóttir Kristján Torfason
Víðir Benediktsson Jenný Ragnarsdóttir
Sigrún Benediktsdóttir Ari Jóhann Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og langafi,
GÍSLI ELÍASSON
Hrafnistu, Reykjavík,
fyrrv. verksmiðjustjóri S.R. á Siglufirði,
lést á Landspítalanum 30. júní sl. Jarðarförin
fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jens Gíslason Kristín María Eggertsdóttir
Dagmar Jensdóttir Heiðar J. Sveinsson
María Jensdóttir Ásgeir Gunnarsson
Elsa Jensdóttir Vilhjálmur Skúlason
og barnabarnabörn.
Hjónin á Ytra-Álandi í Þistilfirði
brugðu upp stóru tjaldi á hlaðinu og
héldu afmælishóf í tilefni sjötugs-
afmæla sinna fyrir viku. Gestir voru
í kringum 200 og komu víða að af
landinu. „Það var mjög gaman,“ segir
Bjarnveig húsfreyja. „Mikið sung-
ið, margar ræður fluttar og svolítið
dansað.“
Opinberir starfsmenn hætta störf-
um um sjötugt en Bjarnveig hefur
sjaldan haft meira að gera en nú
þegar hún stendur á þeim tímamót-
um. Hún segir það sína gæfu að hafa
heilsu til þess, áhuga og tækifæri.
„Á sumrin er hér ákaflega líflegt því
við erum með ferðaþjónustu. Það er
búið að vera gríðarmikið að gera í
sumar og er nánast fullbókað í júlí.
Ég hef líka séð um gistingu í skólan-
um á Svalbarði í nokkur ár. Síðustu
nótt (fyrrinótt) gistu 38 manns sam-
tals hér og í skólanum og ég var með
morgunmat fyrir þá fimmtán sem
sváfu hér heima.“
Hún kveðst vera mikil félagsvera
og því eigi þessi starfsemi vel við
hana. „Ég er alltaf að kynnast nýju
fólki og finnst það skemmtilegt og
gefandi. Það gerir mér erfitt fyrir að
hætta því ég hlakka alltaf til næsta
dags. Yngsti sonurinn er líka tekinn
við sauðfjárbúskapnum svo Skúli
bóndi minn hefur meiri tíma nú en
áður til að sinna ferðaþjónustunni.“
Bjarnveig sat í sveitarstjórn Sval-
barðshrepps í nokkur ár, var leiðbein-
andi í handmennt og heimilisfræðum
í Svalbarðsskóla um tíma og vann í
félagsstarfi eldri borgara um skeið.
Nú sér hún um heimasíðu fyrir sveit-
arfélagið sitt. En hún er fædd og upp-
alin í Sandgerði og kveðst eiga góðar
minningar frá æskuárunum þar.
Hvað kom til að hún flutti norður í
Þistilfjörð?
„Ástin réði för, ef ég á að vera alveg
hreinskilin. Skúli er héðan en var á
vertíð í Sandgerði og við fluttum
hingað 1973. Þistilfirðingar tóku vel
á móti okkur og hér hef ég átt ham-
ingjurík og skemmtileg ár. Var strax
drifin í kvenfélagið og leikfélagið.
Það er heldur ekki staðsetningin sem
skiptir mestu, ég á góðan mann og við
eigum fjögur börn, ellefu barnabörn
og fimm barnabarnabörn, fólk sem
mér þykir vænt um og þykir vænt um
mig. Svo er hér mikil víðátta og sólar-
lagið óvíða tilkomumeira.“
Hún kveðst hafa náð mörgum mið-
nætursólarmyndum í sumar. „Það
hefur einn ókost, blessað sólarlagið,“
segir hún hlæjandi. „Það heldur fyrir
manni vöku. Maður tímir ekki að fara
að sofa því fegurðin er svo mikil. En
vorið er búið að vera kalt og sumarið
hingað til. Það sem okkur vantar núna
eru hlýindin.“ gun@frettabladid.is
Ástin réði för, ef ég á að
vera alveg hreinskilin
Bjarnveig Skaft feld, ferðaþjónustubóndi á Ytra-Álandi í Þistilfi rði, er sjötug í dag. Hún hélt
upp á það um síðustu helgi ásamt bónda sínum, Skúla Ragnarssyni, sem á afmæli 17. júlí.
AFMÆLISHJÓN Bjarnveig og Skúli í göngutúr í grennd við bæinn sinn, nánar tiltekið niðri á Kálfsnesi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ég er alltaf að kynnast
nýju fólki og finnst það
skemmtilegt og gefandi.
Það gerir mér erfitt fyrir að
hætta því ég hlakka alltaf til
næsta dags.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-4
8
8
C
1
7
5
6
-4
7
5
0
1
7
5
6
-4
6
1
4
1
7
5
6
-4
4
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K